Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Tónlist í þættinum:
It's a Heartache - Bonnie Tyler
Baker Street - Gerry Rafferty
Barndommens gade - Anne Linnet
I skovens stille dybe ro - Niels Henning og Kenny Drew
Den Røde Tråd - Shubidua
Blip båt - Kim Larsen
Rosalina - Povl Dissing
Hilsen Til Forårssolen - Povl Dissing
Mormors kolonihavehus - Eva Madsen
Mellem dig og mig - Anne Dorte Michelsen
Indianer - Tøsedrengene
- Endurflutt
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Mannfjöldi eða múgur getur verið hrikalegt afl, þar sem hundruð eða jafnvel þúsundir manna virðast fá eina hópsál. Aflið getur verið jákvætt, eins og þegar fagnað er gleðiviðburði eða sýnd samkennd við sorgarviðburð, en það getur líka verið hættulegt. Stundum getur það breytt mannkynssögunni, eins og þegar mannfjöldi gerir uppreisn eða byltingu. Í þessum þætti verða lesin brot úr nokkrum bókum þar sem lýst er krafti múgsins, svo sem skáldsögunum „Vesalingarnir“ eftir Victor Hugo, „Saga tveggja borga“ eftir Charles Dickens og „Billy Budd sjóliði“ eftir Herman Melville. Einnig verða flutt brot úr tónverkum þar sem lýst er múg eða miklum mannfjölda, má þar nefna sönglagið „La foule“ eftir Cabral, lag sem Edith Piaf gerði frægt, og atriði úr óperunum „La Boheme“ eftir Puccini, „Billy Budd“ eftir Britten og „Meistarasöngvararnir í Nürnberg“ eftir Wagner. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
- Endurflutt
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þættinum er fjallað um táknheim rósarinnar meðal annars út frá sögunni, hversdagsmenningu og pólitík. Rifjaðir eru upp atburðir úr fortíðinni þar sem rósir leika stórt hlutverk eins og sögufrægar rósblaðarigningar. Í seinni hluta þáttarins er kastljósinu beint sérstaklega að rósaættinni sem er fjölbreytt og finnst meðal annars í íslensku flórunni. Rætt er um runnamururnar sem skarta sínum oftast gulu blómum langt fram eftir hausti sem og þjóðarblómið holtasóley, maríustakk, fjalldalafífil, Ulleungreynir/Pálmareynir ‘Dodong’, hindber, brómber, hegg og fleira úr rósaætt.
Viðmælendur: Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir.
- Endurflutt

frá Veðurstofu Íslands.
Óperur og óperettur rötuðu ekki á íslenskt leiksvið fyrr en á fjórða áratug síðustu aldar.
Margar af fyrstu uppfærslunum urðu geysivinsælar en eru flestum gleymdar í dag. Á meðan kreppan lagðist þungt á íslenskt samfélag skemmti fólk sér við að syngja og tralla með persónum úr evrópskum hástéttarævintýrum. Á sviðinu ríkti glaumur og gleði en bak við tjöldin var tekist á.
Umsjón og dagskrárgerð: Bjarni Thor Kristinsson
Tímarnir breytast og menningin með
Óperettan Nitouche sló öll aðsóknarmet hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1941 og greinilegt var að fólk þyrsti í meira. Á næstu árum urðu miklar breytingar í íslensku samfélagi. Ísland varð lýðveldi, fyrsta íslenska óperettan leit dagsins ljós og amerísk menning og dægurtónlist tóku að hasla sér völl við hlið hinna rótgrónu evrópsku áhrifa. Það var spenna í loftinu, enda opnun Þjóðleikhússins og stofnun Sinfóníuhljómsveitar Íslands á næsta leiti.
Viðmælendur: Árni Heimir Ingólfsson, Guðjón Friðriksson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Una Margrét Jónsdóttir, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Ólafur Rastrick, Páll Baldvin Baldvinsson og Jón Karl Helgason. Lesarar: Pétur Grétarsson og Stefán Jónsson.
Sr. Elínborg Gísladóttir sóknarprestur, predikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Arnór B Vilbergsson, einsöngvari er Arney Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir, Kór Grindavíkurkirkju leiðir sönginn. Ritningarlestra les, Guðrún María Brynjólfsdóttir sóknarnefndarformaður.
Tónlist í messunni:
Fyrir predikun:
Forspil:Öll veröldin fagni fyrir Drottni sálmur nr 255. Sbr. Sl. 100 Egil Hovland
Númer 390 Líður að dögun Heiti lags/sálms Höfundar: Sigríður Guðmarsd- Gelískt þjóðlag
Miskunnabæn nr. 261 Sbr. Matt. 9:27 Lag. L.M Kolisi
Dýrðarsöngur/Gloria nr. 269 Sbr. Luk.2:14 -Lag, Jacques Berthier
565 Færðu mér ljósið T. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson L. Sigurður Flosason
655b Drottinn vakir Höfundar. T. Sigurður T Péutsson L. Gunnar Wennerberg
Eftir predikun
Númer Heyr mína bæn Erlent lag T. Ólafur Gaukur Heiti lags/sálms
459 Syngið Drottni, sól og máni T Kristján Valur Ingólfsson 1971 Lag. Hjálmar H Ragnarsson
Eftirspil: T. Valgeir Skagfjörð Lag. Sarah Mclachlan
Útvarpsfréttir.
Rússar og Úkraínumenn gerðu í nótt mannskæðar árásir á báða bóga. Úkraínumenn réðust á olíuinnviði í Moskvu og borgarstjórinn sakar þá um tilraunir til að trufla þingkosningar sem standa yfir.
Dómsmálaráðherra segir kosningalögin ekki besta verkfæri Alþingis og stjórnvalda til að verja byggð í landinu. Misvægi atkvæða eftir kjördæmum sé það mesta hér í Vestur-Evrópu. Ráðherra leggur til að þingmannanefnd vinni upp úr nýjum tillögum um breytingar á kosningalögum.
Forsætisráðherra Danmerkur ætlar ekki að ljóstra upp um allt innihald samnings Danmerkur og Grænlands við Bandaríkin að svo stöddu. Hún er á leið til Bandaríkjanna þar sem hún og Bandaríkjaforseti undirrita samninginn.
Ríkisskattstjóri kannaði ekki nógu vel fjárhagsleg áhrif þess að segja þremur aðalvarðstjórum upp. Þetta segir umboðsmaður Alþingis. Uppsagnir eldra fólks fyrir annað á lægri launum geti falið í sér óbeina mismunun á grundvelli aldurs.
Enska poppstjarnan Ed Sheeran baðst afsökunar á tónleikum í Fíladelfíu í Bandaríkjunum í gærkvöld. Hann hefur legið undir ámæli fyrir að standa ekki með upphitunaratriði sínu vegna yfirlýsinga þess um stuðning við Palestínu.
Plast, netadræsur, baujur og ýmsir skemmtilegir munir verða týndir upp úr Landeyjafjöru í dag í tilefni af alþjóðlega hreinsunardeginum.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða minnumst við þess að nýlega voru 25 ár liðin frá mannskæðustu hryðjuverkum sögunnar. Hvað var það sem gerðist 11. september 2001 og hvernig breyttu þessir atburðir heiminum? Fréttamaðurinn fyrrverandi Logi Bergmann Eiðsson er viðmælandi þáttarins.
Gunnar Hansson og Sólveig Jónsdóttir fóru nýverið til Derry á Norður Írlandi og tóku viðtöl við fólk sem var á staðnum og missti jafnvel fjölskyldumeðlimi í skotárásunum blóðuga sunnudaginn fyrir hálfri öld, 30. janúar 1972. Þau rekja forsöguna, aðdragandann og atburði þessa örlagaríka dags, afleiðingarnar og ófriðinn sem stóð í 30 ár eftir þetta.
Fimmtíu ár eru nú liðin frá einum afdrifaríkasta atburði The Troubles, óaldarinnar á Norður-Írlandi, sem stóð yfir á árunum 1968-1998.
Þann 30. janúar 1972 efndu kaþólikkar til friðsamlegrar réttindagöngu í borginni Derry þar sem þeir kröfðust aukinna borgaralegra réttinda en fátækt, atvinnuleysi og húsnæðisskortur hafði verið hlutskipti langflestra kaþólskra fjölskyldna í landinu áratugum saman.
Þegar nokkuð var liðið á gönguna hóf fyrsta fallhlífaherdeild breska hersins, Para 1, að skjóta á göngufólk og eftir aðeins nokkrar mínútur af algjörri ringulreið lágu þrettán í valnum. Fimmtán særðust og einn af þeim lést síðar af sárum sínum.
Í kjölfarið á þessum hræðilega atburði hörðnuðu átökin á Norður-Írlandi gríðarlega og áttu eftir að kosta fleiri en 3500 mannslíf áður en friðarsamkomulag var loks undirritað árið 1998.
Í fyrri þættinum er forsaga átakanna rifjuð upp um sögu misskiptingar og kúgunar af hálfu Englendinga sem hafði litað líf Íra öldum saman. Við rekjum ástæður þess að landinu var skipt upp í Írland og Norður-Írland og hvað varð til þess að árið 1968 blossuðu átökin upp á milli fylkinga mótmælenda og kaþólikka í landinu. Bloody Sunday breytti öllu, ekki aðeins fyrir þróun átakanna, sem hörðnuðu til mikilla muna, heldur umturnaði hann lífi ótal fólks sem nú stóð uppi sem fjölskyldur fórnarlamba voðaverkanna sem breski herinn framdi þennan dag.
Þátturinn er að stórum hluta byggður á lýsingum þeirra sem upplifðu tíma átakanna og þennan afdrifaríka, blóðuga sunnudag. Sum þeirra eru enn í dag að takast á við afleiðingar hans, hálfri öld síðar.
Viðmælendur í 1. þætti í þeirri röð sem þau birtast:
Bridgeen Sharkey,
Patsy Okane,
Margaret Armstrong,
Sinéad Cooper
Bronagh Cooper
Ursula Clifford
Kevin McDaid,
Bridie Gallagher,
Einnig heyrist í Brian Faulkner fyrrverandi forsætisráðherra Norður-Írlands.
Íslenskar raddir:
Guðrún Hálfdánardóttir
Guðrún Gunnarsdóttir
Hulda Geirsdóttir
Vera Illugadóttir
Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir
Þórhildur Ólafsdóttir
Guðni Tómasson
Jórunn Sigurðardóttir
Pétur Grétarsson
Tónlist:
Some Mother's Son (Ógánaigh Óig) e. Bill Wheelan.
- Endurflutt
Frelsissveitin (Iceland’s Liberation Orchestra) frumflutti nýtt verk eftir Hauk Gröndal á Djasshátíð Reykjavíkur í Norðurljósum Hörpu föstudaginn 28. ágúst kl 19.
Píanókonsert skrifaðan fyrir Davíð Þór Jónsson og Frelsissveitina.
Þátturinn hefst á viðtali Péturs Grétarssonar við Hauk Görndal og Davíð Þór Jónsson, um samstarfið og verkið, sem er ca. 50 mín. að lengd í 7 þáttum. Þar er teflt fram ótal litbrigðum, frjálsum spuna og skrifuðum köflum. Raddir sveitarinnar fá allar að njóta sín í telepatísku samspil nokkurra af færustu spunahljóðfæraleikurum Íslandsjazzins.
Flytjendur voru:
Davíð Þór Jónsson | píanó
Haukur Gröndal | saxófónn
Óskar Guðjónsson | saxófónn
Ólafur Jónsson | saxófónn
Snorri Sigurðarson | trompet
Sólveig Magnúsdóttir | flauta
Birgir Steinn Theódórsson | bassi
Matthías Hemstock | trommur
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þáttur um íslenskt mál og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
Fræðileg skrif eru ákveðin tegund ritunar sem einkennist af hlutleysi, gagnrýninni greiningu og röksemdafærslu þar sem vísað er til annarrar fræðilegrar þekkingar. Við ræddum við Baldur Sigurðsson, prófessor emeritus, sem stofnaði ritver menntavísindasviðs Háskóla Íslands á sínum tíma og var forstöðumaður þess um árabil og Sigrúnu Tómasdóttur, uppeldis- og menntunarfræðing, sem rannsakaði fræðileg skrif nokkurra meistaranema við Háskóla Íslands árið 2015 í samhengi við aðstoð sem hægt er að fá í ritveri.
- Endurflutt
Fréttir
Fréttir
Flokkarnir lengst til hægri og vinstri fögnuðu sigri í fylkiskosningum í Þýskalandi í dag. Flokkur kanslarans er hársbreidd frá að þurrkast út af þingi eins sambandslandanna.
Íþróttir eru besta forvörnin, segir forseti ÍSÍ, sem vill sporna við ofsaakstri í umferðinni með auknu aðgengi ungs fólks að akstursíþróttum.
Nýtt fagráð um öryggismál á Sólheimajökli hefur tekið til starfa. Veðurstofan varaði við hættulegum aðstæðum þar í sumar.
Innviðaráðuneytið íhugar að deila upplýsingum með fyrirtækjum sem rukka bílastæðagjöld – til að koma í veg fyrir að hreyfihamlað fólk sé rukkað, þrátt fyrir að eiga rétt á að leggja frítt.
Tveir þýskir karlmenn voru handteknir í Louvre-safninu í París eftir að þeir hengdu tvö málverk á vegg sýningarsalarins þar sem Mona Lisa er til sýnis.
Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.
Saga Nínu sem ólst upp í torfbæ, braust til mennta í Kaupmannahöfn og hélt svo til Parísar, Rómar, New York og Hollywood. Hvar staðsetjum við Nínu í listasögunni og afhverju þótti hún gamaldags þegar hún sneri aftur heim?

frá Veðurstofu Íslands
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Nærri 38 ár eru liðin síðan flugvél Pan Am var sprengd yfir skoska bænum Lockerbie en réttarhöld í málinu eru í undirbúningi. Þeim var þó frestað skyndilega í ágúst þegar ný sönnunargögn komu fram. Kona sem missti föður sinn í hryðjuverkunum telur réttarhöldin geta markað einhvers konar endalok. Ólöf Ragnarsdóttir talar við hana í Heimskviðum í dag.
Svo fjöllum við um ríkustu konu Rússlands síðustu fimm árin, en hún á og rekur netverslunarrisann Wildberries. Brynja Dögg Friðriksdóttir kynnti sér sögu þessarar konu og Wildberries, en árásir úkraínuhers frá því um miðjan júlí en árásirnar hafa markað ákveðin þáttaskil í átökunum milli Rússa og Úkraínumanna og hin sértæka hernaðaraðgerð Rússa líkt og innrásin kallast í Rússlandi, er komin mikið nær hinum almenna borgara í Rússlandi.
Óperur og óperettur rötuðu ekki á íslenskt leiksvið fyrr en á fjórða áratug síðustu aldar.
Margar af fyrstu uppfærslunum urðu geysivinsælar en eru flestum gleymdar í dag. Á meðan kreppan lagðist þungt á íslenskt samfélag skemmti fólk sér við að syngja og tralla með persónum úr evrópskum hástéttarævintýrum. Á sviðinu ríkti glaumur og gleði en bak við tjöldin var tekist á.
Umsjón og dagskrárgerð: Bjarni Thor Kristinsson
Tímarnir breytast og menningin með
Óperettan Nitouche sló öll aðsóknarmet hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1941 og greinilegt var að fólk þyrsti í meira. Á næstu árum urðu miklar breytingar í íslensku samfélagi. Ísland varð lýðveldi, fyrsta íslenska óperettan leit dagsins ljós og amerísk menning og dægurtónlist tóku að hasla sér völl við hlið hinna rótgrónu evrópsku áhrifa. Það var spenna í loftinu, enda opnun Þjóðleikhússins og stofnun Sinfóníuhljómsveitar Íslands á næsta leiti.
Viðmælendur: Árni Heimir Ingólfsson, Guðjón Friðriksson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Una Margrét Jónsdóttir, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Ólafur Rastrick, Páll Baldvin Baldvinsson og Jón Karl Helgason. Lesarar: Pétur Grétarsson og Stefán Jónsson.
- Endurflutt


frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Fyrsti þáttur af þremur úr verkinu Spil eftir Karólínu Eiríksdóttur. Guðrún S. Birgisdóttir og Martial Nardeau leika á flautur. Útgefið á plötunni Spil árið 1999.
Gaspard de la nuit eftir Maurice Ravel. Angela Hewitt leikur einleik á píanó.
Verið er í þremur þáttum:
1. Ondine
2. Le Gibet
3. Scarbo
Útgefið á The complete solo piano music (Disk 2 af 2) árið 2002.
Lindin í mónum (2010) fyrir sópran og bassaklarinett eftir Ingibjörgu Azimu Guðlaugsdóttur. Snorri Hjartarson orti ljóðið. Kammersveitin Azima Ensemble flytur, en hún er hér í formi dúetts: Margrét Hrafnsdóttir, sópran og Ármann Helgason, bassaklarínetta). Upptaka fór fram í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði sumarið 2022. Útgefið á plötunni Logn árið 2022. Lögin á plötunni voru samin á 12 ára tímabili frá árinu 2010-2022.
Langur skuggi (septett) eftir Hauk Tómasson. Kammersveit Reykjavíkur leikur. Hún er svo skipuð: á fiðlur leika Rut Ingólfsdóttir, Júlíana Elín Kjartansdóttir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir leikur á víólu; Hrafnkell Orri Egilsson og Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló og Richard Korn á kontrabassa.
Verkið er í 6 þáttum:
1. Semplice transparente ;
2. Arcico, ritmico ;
3. Presto nervoso ;
4. Lento, tenace ;
5. Presto, feroce ;
6. Calmo bucolico
Útgefið á plötunni Langur skuggi : kvartettar og septett eftir íslensk tónskáld, árið 2016.
Celos eftir Astor Piazzolla. Gidon Kremer leikur á fiðlu, Vadim Sakharov á píanó, Alois Posch á kontrabassa, Michel Portal á klarinettu og Per Arne Glorvigen á bandoneón. Útgefið á plötunni Hommage à Piazzolla árið 1996.
- Endurflutt

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hjálmar Jónsson í Bólu - öðru nafni skáldið Bólu-Hjálmar - skrifaði ýmsa þjóðsagna- og þjóðlífshætti og hér verður lesinn þáttur hans um Þorbjörgu Kolku, konu sem á að hafa verið uppi á 12. öld, var alin upp hjá huldukonu á Hornströndum en fluttist síðan á Skaga þar sem hún gerðist rómuð sjókona og reri ein á tíæringi.

Útvarpsfréttir.
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Það var Kristján Freyr sem hljóp í skarðið fyrir Huldu Geirsdóttur þennan morguninn.
Aðalgestur þáttarins var María Rán Guðjónsdóttir sem er bókaútgefandi, rekur útgáfu er kallast Angústúra. Við ræddum saman um heim bókaútgáfunnar á Íslandi, bókalestur, jólabókaflóðið sem fram undan er svo fátt eitt sé nefnt en ræddum einnig tónlistarútgáfu. María hefur svo glettilega einnig ratað í heim tónlistarinnar með listamanninum Benna Hemm Hemm og syngur með honum í Kórnum svokallaða og bregður sér í hlutverk þverflautuleikara þegar best lætur.
Í tónlistarvali þáttar valdi ég mér að beina örlítið sjónum að einni plötu hljómsveitar í gegnum þáttinn, það voru fleiri en eitt lag af þeirri skífu sem rötuðu undir nálina en þetta var hljómplatan Green með hljómsveitinni amerísku R.E.M frá árinu 1988. Tónlistin af þeirri plötu blandaðist ágætlega við annað en hér má sjá lagalista þáttarins þennan morguninn.
UNA TORFA - Ekkert að
TALK TALK - It's My Life
BUBBI - Ég er tilbúinn
R.E.M. - You are the everything
R.E.M. - World leader pretend
VELVET UNDERGROUND & NICO - femme fatale
EDDA HEIÐRÚN BACHMANN - Önnur sjónarmið
HAIRCUT 100 - Love Plus One
KAKTUS, JOHN GRANT - Follow
XTC - Senses Working Overtime
JÓNFRÍ, LÚPÍNA - Endalaus framtíð
BENNI HEMM HEMM, KÓRINN - Af hverju til einskis
GAMMOSÍUR - Benson
R.E.M. - Stand
R.E.M. - Pop song 89
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Nú er tími til að setja niður hvítlauk. Hvítlaukurinn er eins og Herra Rokk - virkar með öllu og gerir allt betra.
Hjálmar - Saknaðarljóð.
Thors Hammer - Better Days
Hljómar - Tasko tostada
GCD - Litli prinsinn
Trúbrot - Tangerine girl
Lonlí Blú Bojs - Vilji Sveins
Unun - Hann mun aldrei gleym´henni
Rúnar Júlíusson - Gott er að gefa
Trúbrot - Relax
Ásgeir Trausti Einarsson - Hunter.
Klara Einarsdóttir - Ef hann myndi.
Nina Simone - The look of love.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Askur.
HáRún - Týnd í berjamó.
Haraldur Ari Stefánsson - Tvær leiðir.
Eivör Pálsdóttir - Verjugarðar (Walls).
T-REX - Hot love.
DUSTY SPRINGFIELD - Spooky.
John Grant, Kaktus Einarsson - Follow.
ÚLFUR ÚLFUR - 100.000.
SPILVERK ÞJÓÐANNA - Sirkus Geira Smart.
Friðrik Dór Jónsson, SinfoniaNord - Hvað er það versta sem gæti gerst?.
PRINCE - Cream.
Útvarpsfréttir.
Rússar og Úkraínumenn gerðu í nótt mannskæðar árásir á báða bóga. Úkraínumenn réðust á olíuinnviði í Moskvu og borgarstjórinn sakar þá um tilraunir til að trufla þingkosningar sem standa yfir.
Dómsmálaráðherra segir kosningalögin ekki besta verkfæri Alþingis og stjórnvalda til að verja byggð í landinu. Misvægi atkvæða eftir kjördæmum sé það mesta hér í Vestur-Evrópu. Ráðherra leggur til að þingmannanefnd vinni upp úr nýjum tillögum um breytingar á kosningalögum.
Forsætisráðherra Danmerkur ætlar ekki að ljóstra upp um allt innihald samnings Danmerkur og Grænlands við Bandaríkin að svo stöddu. Hún er á leið til Bandaríkjanna þar sem hún og Bandaríkjaforseti undirrita samninginn.
Ríkisskattstjóri kannaði ekki nógu vel fjárhagsleg áhrif þess að segja þremur aðalvarðstjórum upp. Þetta segir umboðsmaður Alþingis. Uppsagnir eldra fólks fyrir annað á lægri launum geti falið í sér óbeina mismunun á grundvelli aldurs.
Enska poppstjarnan Ed Sheeran baðst afsökunar á tónleikum í Fíladelfíu í Bandaríkjunum í gærkvöld. Hann hefur legið undir ámæli fyrir að standa ekki með upphitunaratriði sínu vegna yfirlýsinga þess um stuðning við Palestínu.
Plast, netadræsur, baujur og ýmsir skemmtilegir munir verða týndir upp úr Landeyjafjöru í dag í tilefni af alþjóðlega hreinsunardeginum.
Gísli Marteinn spilar tónlist og spjallar við gest sinn.
Gísli Marteinn spilar góða tónlist og talar við gest sinn, sem er í dag er Katla Þórudóttir Nálsdóttir leikkona og söngkona.
PRINS PÓLO OG HIRÐIN - Ég er klár - Haustpeysulagið 2022.
RÚNAR JÚLÍUSSON OG UNUN - Hann Mun Aldrei Gleym'enni.
Purrkur Pillnikk - Annars góður.
BJÖRK - Big Time Sensuality.
Mammaðín - Frekjukast.
Stuðmenn, Grýlurnar - Reykingar.
KK & MAGNÚS EIRÍKSSON - Óbyggðirnar Kalla.
GRAFÍK - Húsið Og Ég.
HAM - Partýbær.
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Doddi fylgdist með leikjum dagsins og fór yfir það helsta sem var að gerast í sportinu.
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson kíkti við og ræddi úrslitakeppnina í fótbolta og þennan langa landsliðsglugga.
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-09-20
LANGI SELI OG SKUGGARNIR - VÍKINGUR (BOLTALAG).
JESUS AND MARY CHAIN - Far Gone And Out.
ZARA LARSSON - Lush Life.
SIMPLE MINDS - Chelsea Girl (80).
Friðrik Dór Jónsson, SinfoniaNord - Hvað er það versta sem gæti gerst?.
GDRN - Lætur mig.
THE CURE - Catch.
HOFFMAN - Royal Face.
Jón Jónsson Tónlistarm., Herra Hnetusmjör - Las á milli línanna.
David Sylvian - The Ink in the Well (80).
Fontaines D.C. - Marianne.
LENNY KRAVITZ - It ain't over 'til it's over.
PEARL JAM - State of Love and Trust.
Inspector Spacetime - ATM.
Klara Einarsdóttir - Ef hann myndi.
QUARASHI - Stick'em up.
Atli Dagur Stefánsson - So Long.
María Magnúsdóttir, Moses Hightower - Þakka þúsundfalt.
ARETHA FRANKLIN - (You Make Me Feel Like) A Natural Woman [with The Royal Philharmonic Orchestra]
CREATURE OF HABIT & BIRNA EYFJÖRÐ & MALEN - auðnin
TOTO - Georgy Porgy

Útvarpsfréttir.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.
Haustið heldur betur farið af stað á Rás 2 með 15 nýjum lögum á listanum þessa vikuna. Baksýnisspegilinn þurfti að stíga til hliðar til að gefa nýju lögunum pláss og Vilborg spáir hressandi lagi í Spákúlunni.
Lagalistinn:
AUÐUR - Eyðimörk! Geneva!
ATLI DAGUR STEFÁNSSON - So Long
THE REVIVALISTS - Heart Stop
SPACESTATION - Watching it happen
DAÐI FREYR & SINFONÍUHLJÓMSVEIT - Hvað með það?
FRIÐRIK DÓR & SINFONIANORD - Hvað er það versta sem gæti gerst?
LINDA HARTMANN - Rewind
ARIANA GRANDE - petal
SYCAMORE TREE - All Tangled Up
JOHNNY MARR - It's Time
Topp tíu:
10. CREATURE OF HABIT & BIRNA EYFJÖRÐ - auðnin
9. TOVE LO & STROMAE - Des fleurs x stromae
8. FONTAINES D.C. - Marianne
7. CAGE THE ELEPHANT - Beaches In Tennessee
6. JÓNFRÍ & LÚPÍNA - Endalaus framtíð
5. SIENNA SPIRO - Great Expectation
4. ÁSGEIR TRAUSTI - Hunter
Spákúlan - JAMIE MILLER - Babydoll
3. MEMFISMAFÍAN & BJÖRN JÖRUNDUR - Ég kenni þér um
2. HERRA HNETUSMJÖR & JÓN JÓNSSON - Las á milli línanna
1. ELLA LANGLEY - Be Her
- Endurflutt