20:25
Gleymdar gleðistundir
4. þáttur: Tímarnir breytast og menningin með

Óperur og óperettur rötuðu ekki á íslenskt leiksvið fyrr en á fjórða áratug síðustu aldar.

Margar af fyrstu uppfærslunum urðu geysivinsælar en eru flestum gleymdar í dag. Á meðan kreppan lagðist þungt á íslenskt samfélag skemmti fólk sér við að syngja og tralla með persónum úr evrópskum hástéttarævintýrum. Á sviðinu ríkti glaumur og gleði en bak við tjöldin var tekist á.

Umsjón og dagskrárgerð: Bjarni Thor Kristinsson

Tímarnir breytast og menningin með

Óperettan Nitouche sló öll aðsóknarmet hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1941 og greinilegt var að fólk þyrsti í meira. Á næstu árum urðu miklar breytingar í íslensku samfélagi. Ísland varð lýðveldi, fyrsta íslenska óperettan leit dagsins ljós og amerísk menning og dægurtónlist tóku að hasla sér völl við hlið hinna rótgrónu evrópsku áhrifa. Það var spenna í loftinu, enda opnun Þjóðleikhússins og stofnun Sinfóníuhljómsveitar Íslands á næsta leiti.

Viðmælendur: Árni Heimir Ingólfsson, Guðjón Friðriksson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Una Margrét Jónsdóttir, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Ólafur Rastrick, Páll Baldvin Baldvinsson og Jón Karl Helgason. Lesarar: Pétur Grétarsson og Stefán Jónsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 42 mín.
Leyft öllum aldurshópum
  • Endurflutt
,