Annar þáttur: Sprengjan
Hvaðan kom Hafmeyjan og hvernig bar hana að ströndum Íslands? Og hvernig var rætt um verkið í aðdraganda sprengjunnar? Við sögu koma sendiherra og olíukóngur, sjálfstæðismenn í borginni,…
Saga Nínu sem ólst upp í torfbæ, braust til mennta í Kaupmannahöfn og hélt svo til Parísar, Rómar, New York og Hollywood. Hvar staðsetjum við Nínu í listasögunni og afhverju þótti hún gamaldags þegar hún sneri aftur heim?

Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.