12:42
Þetta helst
Sveitastjórnarmenn og bæjarstjórar skyldugir að birta hagsmunaskráningu sína

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Sveitarfélög á Íslandi verða skyldug til að birta hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa og æðstu stjórnenda þeirra opinberlega ef frumvarp um ný sveitarstjórnarlög verður að lögum. Þetta er nýbreytni sem ekki hefur áður verið í sveitarstjórnarlögum.

Þá eiga siðreglur sveitarstjórna líka að ná yfir framkvæmdastjóra og æðstu stjórnendur þeirra, það er að segja þá sem ekki eru kjörnir fulltrúar. Með lagafrumvarpinu eiga siðareglurnar því líka að ná yfir bæjar- og sveitarstjóra sem eru ráðnir í starfið, ekki bara til þeirra sem eru kjörnir fulltrúar. Þetta er líka nýbreytni.

Fjallað er frumvarpið um sveitastjórnarlögin sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mælti fyrir á Alþingi í síðustu viku og rætt við einn af höfundum þess, Björn Inga Óskarsson. Hann segir frá megininntaki frumvarpsins en helstu breytingar snúast um fjármál sveitarfélaga, reglur um stjórnsýslu og gagnsæi sem og samvinnu sveitarfélaga.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,