07:03
Morgunútvarpið
Grágæsin,gervigreindin,netsvik og hvað verður um íslenskuna í ESB

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Gervigreindin getur haft áhrif á hvernig fólk hugsar, skrifar, man og metur upplýsingar. Fyrstu rannsóknir benda til þess að fólk eyði minni tíma í að hugsa um það sem verið er að gera, og hvernig, og þar af leiðandi treysti gervigreindinni í auknum mæli til þess að leysa verkefni fyrir sig. Elín Carsteinsdóttir, aðstoðarprófessor við tölvunarfræðideild HR, flytur erindi um þetta á ráðstefnunni AI and Society í Háskólanum í Reykjavík á morgun og kom til okkar í Morgunútvarpið og fræddi okkur.

Eldra fólk er oftar en ekki skotmörk netsvikara sem beita ýmsum aðferðum til að hafa af fólki háar upphæðir. Til að reyna að koma í veg fyrir að fólk lendi í klóm netsvikara hafa bankar reynt að fræða viðskiptavini sína um netöryggi og Eva Valdís Jóhönnudóttir, sérfræðingur í svikum hjá Íslandsbanka, hefur undanfarið tekið á móti fjölmennum hópum á sérstökum fræðslukvöldum. Hún kom til okkar og fræddi okkur um netsvik og sagði okkur raunverulegar sögur um aðferðir netsvikara.

Íslendingar velta nú fyrir sér kostum og göllum þess að ganga í Evrópusambandið, eftir að ríkisstjórnin lagði fram tilliögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna í lok ágúst. En hvað yrði um íslenskuna ef Íslendingar myndu kjósa að ganga til liðs við ESB? Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrum prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, bendir á ýmislegt sem ESB gerir til að styrkja tungumál aðildarríkja sinna og hann kom til okkar og fræddi okkur um það.

Hegðun grágæsarinnar hefur breyst mikið undanfarin ár. Grágæsin er hætt að fljúga suður á bóginn og hangir hér allan veturinn. Hvað útskýrir þetta? Arnór Sigfússon er okkar helsti sérfræðingur í grágæsum. Hann fylgist vel með þeim og leit við í Morgunútvarpinu og sagði okkur meira um þessar breyttu ferðavenjur.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,