16:05
Bara bækur
Skrapp út, kem að vörmu kv. Ódysseifur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Það er nánast alveg sama hvar leitað er í vestrænni bókmenntasögu, alltaf er von á því að mæta Ódysseifi í einhverri mynd, gríska kappanum, konungi Íþöku, sem hraktist um miðjarðarhafið í 10 ár á leið sinni heim eftir jafnlangt stríð við Trójumenn. Persónur, guðir og goðsagnir úr þessum elstu bókmenntatextum vesturlanda hafa vakið undrun og innblástur um aldir en líklega enginn eins og Ódysseifur, sem er ekki aðeins að finna í Ódysseifskviðu þar sem hann er söguhetjan og Illíonskviðu þar sem hann leikur líka stórt hlutverk heldur er hann goðsögn sem dúkkar upp reglulega í bókmenntasögunni, stundum í yfirfærðri merkingu og sagan um heimferð hans hefur orðið einskonar skapalón fyrir hetju- og heimferðasögur. Ódysseifur hefur orðið tákn flökkuhetjunnar sem leitar heimilis síns og hann hefur verið túlkaður á ótal vegu í takt við tíðarandann hverju sinni. Ódysseifur er menningartákn nánast eins og það sem í dag kallast jarm eða meme, hugmynd eða tákn sem berst milli manna og þvert á menningarheima. Alltaf á leiðinni heim. En virðist aldrei takast það. Hver er þessi flókni maður, bragðarefurinn, hinn ráðagóði Ódysseifur. Af hverju er hann í sífelldri aðlögun og endurnýjun?

Viðmælendur: Hjalti Snær Ægisson og Gottskálk Jensson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 52 mín.
,