09:03
Fram og til baka
Tónaflóð og enski boltinn

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Í þessum þætti af Fram og til baka fengu þau Felix og Nanna til sín sparkspekingana Kjartan Atla Kjartansson og Kristjönu Arnarsdóttur til að ræða enska boltann sem fór af stað um helgina.

Svo er Menningarnótt haldin hátíðleg um helgina og Tónaflóð, tónleikar Rásar 2, verða á sínum stað á Arnarhóli. Þar kemur fram úrvalslið tónlistarmanna, þar á meðal JóiPé og Króli, sem kíktu í stúdíó til Nönnu og Felix þar sem þau ræddu til að mynda upphaf samstarfsins og það sem er framundan hjá þeim félögum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 57 mín.
,