12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 22. ágúst 2026

Útvarpsfréttir.

Nýtt viðskiptastríð virðist hafið milli Bandaríkjanna og Kanada efitr að viðræðum um tollasamning var slitið. 50% tollar Bandaríkjanna á kanadískar vörur tóku því gildi í dag, og því verður svarað í sömu mynt.

Stýrivaxtahækkun Seðlabankans er afleiðing hækkunar opinberra gjalda, og veldur því að forsenduákvæði kjarasamninga virkjast, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Húsnæðis- og félagsmálaráðherra segir Seðlabankann á villigötum

Mikil sorg ríkir í Fagersta í Svíþjóð eftir sverðsárás í framhaldsskóla í gær, þar sem 17 ára stúlka var drepin. Leiðtogar ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu heimsóttu bæinn saman í dag.

Þrír lagaprófessorar við Háskólann í Reykjavík saka Morgunblaðið um að halda því ranglega fram að þeir telji ómögulegt að semja um varanlegar undanþágur í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

Úkraínuforseti fordæmir drónaárás Rússlandshers á verslanamiðstöð í heimabæ hans í gær þar sem sextán týndu lífi. Á annað hundrað særðust, þar af fjöldi barna.

Það eru uppákomur um alla borg í dag í tilefni menningarnætur. Við heyrum í þreyttum hlaupurum í fréttatímanum sem eru að klára Reykjavíkurmaraþon en sextán þúsund hlauparar taka þátt í ár.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,