Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Að þessu sinni er Vínill vikunnar helgaður fyrstu plötunni í safnplötupakka SATT sem kom út 1984.
Haustið 1979 stofnuðu nokkrir tónlistarmenn Samtök alþýðutónskálda og tónlistarmanna, sem skammstafað var sem SATT, öðrum þræði vegna deilna um skiptingu svonefndra STEF-gjalda sem greidd voru fyrir tónlistarflutning í Ríkisútvarpinu og innheimt af Samtökum tón- og textahöfunda. Að því sögðu þá var helsta baráttumál SATT að ýta undir lifandi tónlistarflutning og kaupa húsnæði undir félagsheimili tónlistarmanna.
Á næstu árum efndu samtökin til ýmissa viðburða til að safna fé til húsnæðiskaupa og 1984 gáfu þau út þrjár safnplötur í takmörkuðu upplagi, SATT 1, 2 og 3.
Á plötunum öllum er frumsamin tónlist íslenskra tónlistarmanna sem sumir voru að láta í sér heyra í fyrsta sinn á plasti og sumir jafnframt í síðasta sinn. Á fyrstu plötunni, sem er vínill vikunnar að þessu sinni, eru textar við lögin á íslensku, á annarri plötunni, sem hljómar í næstu viku, eru textar á ensku, en á þriðju plötunni, sem verður vínill vilkunnar eftir tvær vikur, er sýnishorn af rokkbyltingu níunda áratugarins.
Jóhann G. Jóhansson hafði umsjón með útgáfunni fyrir hönd SATT og fyrirtæki hans, Listamiðstöðin, annaðist dreifinu. Jóhann áritaði líka plötunar, 1.000 eitök alls.
A-hlið SATT 1 hefst með lagi Halldórs Fannars Ellertssonar Blómin mín, sem hann samdi við eigin texta með Rúnari Þór Péturssyni. Halldór syngur og leikur á hljómborð og ásláttarhljóðfæri, Rúnar leikur á trommur og rafgítar og Örn Jónsson á bassa.
Þá kemur Steinsteypurómantík eftir Ingva Þór Kormáksson við texta Ragnars Inga Aðalsteinssonar. Sverrir Guðjónsson syngur, Gunnar Jónsson leikur á trommur, Bjarni Sveinbjörnsson á bassa, Vilhjálmur Guðjónsson á gítar og tenórsaxófón og Ingvi Þór Kormáksson á píanó.
Hvar er friður heitir lag Bergþóru Árnadóttur sem hún syngur við undirleik Tryggvi Hübner á gítara og bassa og Þóris Baldurssonar á hljómborð, trommuheili og fleira.
Þá kemur Vinarkveðja Hallgríms Bergssonar, lag eftir hann við texta hans og Jóns G. Sigurðssonar. Pálmi Gunnarsson syngur, Ingvi Gunnar Jóhannsson leikur á kassagítar, Hallgrímur á hljómborð og Sigurður Rúnar Jónsson á fiðlu.
Lokalag A-hliðar er Rósir og lof með Hljómsveitinni Foss, en lag og texta á Ágúst Ragnarsson. Hann syngur og leikur á gítar, Axel Einarsson leikur einnig á gítar, Jón Ólafsson á bassa og Ólafur J. Kolbeins á trommur.
B-hlið plötunnar hefst með laginu Ég vil ekki vera... með Jóni G. Ragnarssyni, sem semur lag og texta og leikur á gítar og syngur. Með honum spila Einar Jónsson á gítar, Jón Ólafsson á bassa og Trausti Jónsson á trommur, en Ágúst Jónsson og Axel Einarsson syngja bakraddir.
Ég um þig frá okkur til beggja er eftir Sverri Stormsker Ólafsson. Sverrir á lag og texta og syngur og leikur á rafmagnspíanó og trommuheila, Halldór Halldórsson spilar á bassa og Þórður Magnússon á rafgítar og syngur bakrödd. Strengjabrúður, þær Elísabet, Ólöf, Bryndís og Vala, leika á strokhljóðfæri
Í hnotskurn er eftir Halldór Fannar Ellertssonar. Hann syngur og leikur á hljómborð og ásláttarhljóðfæri, Rúnar Þór Pétursson leikur á trommur og rafgítar og Örn Jónsson á bassa.
Desembersíðdegisblús er lag eftir Ingva Þór Kormáksson við texta Einars Ólafssonar. Flytjendur eru Ingvi Þór Kormáksson & Co: Guðmundur Hermannsson syngur, Gunnar Jónsson leikur á trommur, Bjarni Sveinbjörnsson á bassa, Vilhjálmur Guðjónsson á gítar og Ingvi Þór á hljómborð.
Lokalag B-hliðar eru svo lagið Tunglskyn með Hljómsveitinni Þrym. Halldór Erlendsson samdi lagið við ljóð Steins Steinarr. Þórður Bogason syngur, Halldór Erlendsson leikur á gítar og syngur bakraddir, Þórður Guðmundsson spilar á bassa, Pétur Einarsson á trommur og Kjartan Valdimarsson á hljómborð.
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 19. júlí 2014.
Umsjón: Bragi Ólafsson
Bragi Ólafsson leikur tónlist að eigin vali.

frá Veðurstofu Íslands.
Hvaða hugmyndir höfum við um geðveikar mömmur? Hvers vegna breytast sum viðhorf en önnur ekki?
Þættir um mæður, geðsjúkdóma og sögurnar sem fjölskyldur segja – eða segja ekki.
Hera Guðmundsdóttir fléttar saman sögu langömmu sinnar sem send var á Klepp um miðja tuttugustu öldina, eigin reynslu af geðhvörfum og samtímasögur mæðra sem lifa með geðsjúkdómum: Sögur um móðurhlutverkið, skömm og þagnir en líka ást, nánd og nýjar raddir.
Dagskrárgerð: Hera Guðmundsdóttir
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Líf lítillar fjölskyldu á Akureyri umturnaðist einn daginn þegar ung móðir var send suður – suður á Klepp.
Þegar langamma Heru var send suður á Klepp árið 1946 var amma hennar bara fjögurra ára. 80 árum síðar reyna þær í sameiningu að skilja hvað gerðist og hvers vegna enginn talaði um þetta. Í þessum fyrsta þætti tvinnast saman fjölskyldusaga, eigin reynsla Heru og spurningar um hvaða merkingu Kleppur hefur í samtímanum.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Í Vikulokunum 22. ágúst var rætt um kjaramál, hernað og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.
Í fyrsta hluta mættu Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Í öðrun hluta voru viðmælendur Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, Stefán Pálsson, hernaðarandstæðingur, og Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur.
Í þriðja hluta þáttarins mættu Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðingur, og Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur.

Tónlist héðan og þaðan
Útvarpsfréttir.
Nýtt viðskiptastríð virðist hafið milli Bandaríkjanna og Kanada efitr að viðræðum um tollasamning var slitið. 50% tollar Bandaríkjanna á kanadískar vörur tóku því gildi í dag, og því verður svarað í sömu mynt.
Stýrivaxtahækkun Seðlabankans er afleiðing hækkunar opinberra gjalda, og veldur því að forsenduákvæði kjarasamninga virkjast, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Húsnæðis- og félagsmálaráðherra segir Seðlabankann á villigötum
Mikil sorg ríkir í Fagersta í Svíþjóð eftir sverðsárás í framhaldsskóla í gær, þar sem 17 ára stúlka var drepin. Leiðtogar ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu heimsóttu bæinn saman í dag.
Þrír lagaprófessorar við Háskólann í Reykjavík saka Morgunblaðið um að halda því ranglega fram að þeir telji ómögulegt að semja um varanlegar undanþágur í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
Úkraínuforseti fordæmir drónaárás Rússlandshers á verslanamiðstöð í heimabæ hans í gær þar sem sextán týndu lífi. Á annað hundrað særðust, þar af fjöldi barna.
Það eru uppákomur um alla borg í dag í tilefni menningarnætur. Við heyrum í þreyttum hlaupurum í fréttatímanum sem eru að klára Reykjavíkurmaraþon en sextán þúsund hlauparar taka þátt í ár.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Fjöldi ungverskra kvenna tók upp á því að eitra fyrir eiginmönnum sínum með afleiðingum að yfir þrjú hundruð manns dóu. Höfuðpaurinn var ljósmóðir sem jafnan var kölluð Súsí frænka. Í störfum sínum kynntist hún vel aðstæðum fólks sem oft voru nöturlegar. Hún útvegaði konum því eitur og leiðbeindi þeim. Margir eiginmannanna í þorpinu beittu konur sínar ofbeldi og þær sáu enga aðra leið úr viðjum þess. Ástæðan fyrir því að við fjöllum um málið í vetur er sú að nýlega kom út bók þessa voveiflegu atburði í byrjun síðustu aldar. Bókin heitir The Women Are Not Fine, eða konurnar hafa það ekki gott. Dagný Hulda Erlendsdóttir talaði við höfund bókarinnir og hún segir að karlarnir hafi síður en svo haft það gott heldur. En voru konurnar kaldrifjaðir morðingjar eða þolendur ofbeldis sem í örvæntingu sinni fundu ekki aðra leið út?
Bók og glæpir fortíðar er sömuleiðis útgangspunkturinn í seinni umfjöllun dagsins. Þá ætlum við að huga að geðheilsu þeirra sem fremja voðaverk. Kveikjan er bók sem kom út 2013 sem lýsir sambandi geðlæknisins Douglas M. Kelley við Hermann Göring sem honum var gert að meta í aðdraganda Nuremberg réttarhaldanna. Saga sem nú er búið að gera bíómynd um. Birta Björnsdóttir fjallar um málið.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Tónlist hefur fylgt Unni Malín Sigurðardóttur eiginlega alla ævi. Snemma lærði hún að blása í trompet en færði sig svo á tenórhorn, tenórtúbu eða euphonium, eftir því hvaða heiti mönnum er tamt, en lærði líka söng. Um þrítugt áskotnaðist henni svo gítar og þá byrjaði hún að semja fjölbreytta flóru tónverka, allt frá tilraunamúsík í strengjaverk, kórverk og þjóðlagasöng, svo fátt eitt sé talið.
Lagalisti
Óútgefið - Glerhvolf
Óútgefið - Shy Zen Achtung
Óútgefið - No Conclusion
Óútgefið - Kósímós
Óútgefið - Slagarinn
Óútgefið - Enga grátkóra
Óútgefið - Stormur
Ferhendur tjaldarans - Einn vísifingur hreyfist
Óútgefið - Nuuk
Stjórnendur Lestarinnar, þau Lóa og Kristján, kryfja popplög með Friðriki Margrétar Guðmundssyni, tónskáldi, tónlistarmanni og poppmeinafræðingi.
Við kryfjum popplag með Friðriki. Að þessu sinni er það íslenskt popplag. Eitt af blómunum með Benna Hemm Hemm og Páli Óskari.
Umsjón:
Lóa Björk Björnsdóttir, Kristján Guðjónsson og Friðrik Margrétar-Guðmundsson
Í þættinum fær Sverrir Norland til sín skemmtilega gesti sem endurhugsa með honum heiminn.
Gestur þáttarins er Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og sagnfræðingur. Hann fjallar meðal annars um bókina Stund milli stríða. Saga landhelgismálsins 1961 til 1972. Hann ræðir einnig um sagnfræðistörf almennt, ritstörf og lífið á Bessastöðum.
Umsjón: Sverrir Norland.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Það er nánast alveg sama hvar leitað er í vestrænni bókmenntasögu, alltaf er von á því að mæta Ódysseifi í einhverri mynd, gríska kappanum, konungi Íþöku, sem hraktist um miðjarðarhafið í 10 ár á leið sinni heim eftir jafnlangt stríð við Trójumenn. Persónur, guðir og goðsagnir úr þessum elstu bókmenntatextum vesturlanda hafa vakið undrun og innblástur um aldir en líklega enginn eins og Ódysseifur, sem er ekki aðeins að finna í Ódysseifskviðu þar sem hann er söguhetjan og Illíonskviðu þar sem hann leikur líka stórt hlutverk heldur er hann goðsögn sem dúkkar upp reglulega í bókmenntasögunni, stundum í yfirfærðri merkingu og sagan um heimferð hans hefur orðið einskonar skapalón fyrir hetju- og heimferðasögur. Ódysseifur hefur orðið tákn flökkuhetjunnar sem leitar heimilis síns og hann hefur verið túlkaður á ótal vegu í takt við tíðarandann hverju sinni. Ódysseifur er menningartákn nánast eins og það sem í dag kallast jarm eða meme, hugmynd eða tákn sem berst milli manna og þvert á menningarheima. Alltaf á leiðinni heim. En virðist aldrei takast það. Hver er þessi flókni maður, bragðarefurinn, hinn ráðagóði Ódysseifur. Af hverju er hann í sífelldri aðlögun og endurnýjun?
Viðmælendur: Hjalti Snær Ægisson og Gottskálk Jensson.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Lagalisti:
Shearing, George - I see nothing to laugh about.
Waters, Muddy - Got my mojo working.
Mezzoforte - Beyond the horizon.
Sigurður Flosason, Legardh, Cathrine - Fyr og flamme.
New Air - Apricots on their wings.
Afro-Latin Jazz Orchestra, O'Farrill, Arturo - Clump, unclump.
Kári Egilsson Band - Óróapúls.
Ásgeir Ásgeirsson Tónlistarm., Qvick, Erik, Agnar Már Magnússon, Bjarni Sveinbjörnsson - Conversations.
O.N.E. - I See You.
Svetlana Marinchenko Trio - Berlin moment.
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Viðmælandi Gunnars Þorra Péturssonar í sjöunda þætti RÚS er Freyja Eilíf sem segir frá þýðingum sínum úr rússnesku og dvöl sinni í Rússlandi sem skiptinemi. Lesari ásamt Gunnari Þorra Péturssyni umsjónarmanni er Anita Briem.
Guðni Tómasson veitti aðstoð við dagskrárgerð og samsetningu.
Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Jónatan Garðarsson valdi.
Sextett Cannoball Adderley flytur lögin Peter And The Goats, Autumn Leaves, Dizzy's Business, This Is Here, Jive Samba og Never Say Yes. Tríó Jane Ira Bloom leikur lögin But Not For Me, Left Alone, Darn That Dream, For All We Know, Good Morning Heartache og Out Of This World. Kvartett Andy Sheppard flytur lögin Pop, Romaria, Thirteen, Forever..., And A Day... og All Becomes Again.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Það var stórhuga og bjartsýn þjóð sem byggði landið þegar Ríkisútvarpið var stofnað 1930; og tungan var sameiningartákn. Guðrún og Anna gramsa í kistu Ríkisútvarpsins, rifja upp Daglegt mál í umsjón Eiríks Hreins Finnbogasonar og blaða í Útvarpstíðindum.


frá Veðurstofu Íslands

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Í Vikulokunum 22. ágúst var rætt um kjaramál, hernað og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.
Í fyrsta hluta mættu Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Í öðrun hluta voru viðmælendur Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, Stefán Pálsson, hernaðarandstæðingur, og Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur.
Í þriðja hluta þáttarins mættu Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðingur, og Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur.

Útvarpsfréttir.
Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.
Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Sjórinn þekur 71% af yfirborði jarðar, er að meðaltali 4000 metra djúpur, og við skiljum hann verr en yfirborð Mars. Getur þetta verið?
Í næstu tveim þáttum fæ ég til mín Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun og prófessor við Háskólann á Akureyri, til að fara yfir grunneðlisfræði þessa risastóra og dularfulla fyrirbæris: hvaðan vatnið kom upphaflega, hvers vegna sjórinn er saltur, og hvernig þrýstingurinn á botninum er svo gríðarlegur að mælitæki þurfa að þola hann sérstaklega. Steingrímur fer með mig í gegnum hafstraumana, hvað drífur Golfstrauminn, hvernig jarðsnúningurinn sveigir hann, og hvers vegna djúpsjávarmyndun við Íslandsstrendur er einstök á heimsvísu. Við endum á því hvernig orka og næringarefni flæða um þetta risastóra kerfi, og hvers vegna stór hluti hafsbotnsins er einfaldlega flatur eyðimörk.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
Viðmælandi: Steingrímur Jónsson
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Í þessum þætti af Fram og til baka fengu þau Felix og Nanna til sín sparkspekingana Kjartan Atla Kjartansson og Kristjönu Arnarsdóttur til að ræða enska boltann sem fór af stað um helgina.
Svo er Menningarnótt haldin hátíðleg um helgina og Tónaflóð, tónleikar Rásar 2, verða á sínum stað á Arnarhóli. Þar kemur fram úrvalslið tónlistarmanna, þar á meðal JóiPé og Króli, sem kíktu í stúdíó til Nönnu og Felix þar sem þau ræddu til að mynda upphaf samstarfsins og það sem er framundan hjá þeim félögum.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Í Vikulokunum 22. ágúst var rætt um kjaramál, hernað og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.
Í fyrsta hluta mættu Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Í öðrun hluta voru viðmælendur Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, Stefán Pálsson, hernaðarandstæðingur, og Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur.
Í þriðja hluta þáttarins mættu Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðingur, og Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur.
Útvarpsfréttir.
Nýtt viðskiptastríð virðist hafið milli Bandaríkjanna og Kanada efitr að viðræðum um tollasamning var slitið. 50% tollar Bandaríkjanna á kanadískar vörur tóku því gildi í dag, og því verður svarað í sömu mynt.
Stýrivaxtahækkun Seðlabankans er afleiðing hækkunar opinberra gjalda, og veldur því að forsenduákvæði kjarasamninga virkjast, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Húsnæðis- og félagsmálaráðherra segir Seðlabankann á villigötum
Mikil sorg ríkir í Fagersta í Svíþjóð eftir sverðsárás í framhaldsskóla í gær, þar sem 17 ára stúlka var drepin. Leiðtogar ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu heimsóttu bæinn saman í dag.
Þrír lagaprófessorar við Háskólann í Reykjavík saka Morgunblaðið um að halda því ranglega fram að þeir telji ómögulegt að semja um varanlegar undanþágur í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
Úkraínuforseti fordæmir drónaárás Rússlandshers á verslanamiðstöð í heimabæ hans í gær þar sem sextán týndu lífi. Á annað hundrað særðust, þar af fjöldi barna.
Það eru uppákomur um alla borg í dag í tilefni menningarnætur. Við heyrum í þreyttum hlaupurum í fréttatímanum sem eru að klára Reykjavíkurmaraþon en sextán þúsund hlauparar taka þátt í ár.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.
Róleg vika hjá þeim báðum en samt nóg um að ræða. Ragga kíkti til sumarsins 2005 í Baksýnisspeglinum og Vilborg spáði lagi sem hún gat ekki borið fram í Spákúlunni.
Lagalistinn:
ALISSIA & Anderson .Paak - Can't Get Enough
Valdimar - Karlsvagninn
Páll Óskar & Benni Hemm Hemm - Eitt Af Blómunum
Calvin Harris & Jazzy - Satisfy
Quarashi - Do It Again
Baksýnisspegill: Sigur Rós - Hoppípolla
Klara Einars - Ef Hann Myndi
Harry Styles - Dance No More
ICEGUYS - 7 9 13
Topp tíu:
10. Sombr - My Body Isn't Ready
9. Mumford & Sons & Chris Stapleton - Here
8. Peggy Gou feat. Ayra Starr - Wo, man
7. Disco Bambino & Nile Rodgers feat. Sophie Ellis-Bextor - Dancing Without You
6. Kaktus Einarsson & John Grant - Follow
5. Dominic Fike - Babydoll
4. Kacey Musgraves - I Believe In Ghosts
Spákúlan - Tove Lo x stromae - Des fleurs
3. Chaka Khan & Snoop Dogg - Boogie's In My Soul
2. Ariana Grande - hate that i made you love me
1. Daði Freyr - I'm Out And I Wanna Go Home

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Bein útsending frá Tónaflóði Rásar 2 á Arnarhóli á Menningarnótt.
Fram koma:
JóiPé og Króli ásamt gestum
Árný Margrét
Spacestation
Daði Freyr
Páll Óskar og Benni Hemm Hemm
Kynnar: Atli Fannar Bjarkason og Guðrún Dís Emilsdóttir. Kynnir á sviði og DJ: Siggi Gunnars.


Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.