
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínilplata þessarar viku er Fjórtán fóstbræður ásamt Ellý Vilhjálms og hljómsveit Svavars Gests. Platan, sem kom út hjá SG hljómplötum árið 1965, inniheldur átta lagasyrpur. Hún var tekin upp í Ríkisútvarpinu enda heimatökin hæg því Fjórtán fóstbræður höfðu frá árinu 1963 sungið reglubundið í útvarpsþáttunum vinsælu Sunnudagskvöldi með Svavari Gests. Raunar átti Svavar sjálfur frumkvæðið að því að fóstbræðurnir fjórtán urðu til árið 1963, og árið eftir hóf hann feril sinn sem hljómplötuútgefandi með því að gefa út plötuna Syngið með – Fjórtán fóstbræður með hljómsveit Svavars Gests. Þessi plata kom svo út ári seinna, og sló í gegn líkt og fyrsta platan.
A-hlið:
1. Syrpa af hröðum lögum - Litla Reykjavíkurmær, Komdu vina, Kenndu mér að kyssa rétt, Viltu með mér vaka í nótt og Káta Víkurmær. Lögin eru öll erlend og textarnir eftir Ragnar Jóhannsson, Þorstein Halldórsson, Skafta Sigþórsson, Valborgu Bentsdóttur og Jón frá Ljárskógum.
2. Jóns Múla-syrpa - Fröken Reykjavík, Einu sinni á ágústkvöldi, Söngur jólasveinanna, Gettu hver ég er? og Augun þín blá. Lögin öll eftir Jón Múla Árnason og hann á einnig textann í síðustu tveimur lögunum en bróðir hans Jónas Árnason samdi hina þrjá.
3. Valsa-syrpa - Ellý Vilhjálms syngur með - Kvöld við Signu, erlent lag við texta Helga Jónssonar, Hvítu mávar, erlent lag við texta Björn Braga Magnússonar, Ég líð með lygnum straumi, erlent lag við texta Eiríks Karls Eiríkssonar, Vogun vinnur - vogun tapar, erlent lag við texta Guðmundar Sigurðssonar sem á einnig textann í síðasta laginu sem er Þetta er ekki hægt eftir Árna Ísleifsson.
4. Rúmbu-syrpa - Nú liggur vel á mér eftir Óðin G. Þórarinsson við texta Núma Þorbergs, Mærin frá Mexíkó, erlent lag við texta Ólafs Gauks, Allt á floti, erlent lag við texta Jóns Sigurðssonar, Einsi kaldi úr Eyjunum, lag og texti Jón Sigurðsson og Ástarljóðið mitt, erlent lag við texta Björns Braga Magnússonar.
B-hlið:
1. Sjómannavalsa-syrpa - Vertu sæl, mey, lag og texti Ási í Bæ, Ship-o-hoj, lag Oddgeir Kristjánsson við texta Lofts Guðmundssonar, Baujuvaktin, lag Svavar Benediktsson og texti Kristján frá Djúpalæk, Síldarstúlkan, lag Árni Björnsson og texti Bjarni Guðmundsson og Sjómannavalsinn, lag Svavar Benediktsson og texti Kristján frá Djúpalæk.
2. Sigfúsar-syrpa - Við eigum samleið, Játning, bæði við ljóð Tómasar Guðmundssonar, Íslenzkt ástaljóð, ljóð Vilhjálms frá Skáholti, Tondeleyo eftir Tómas Guðmundsson og Litla flugan eftir Sigurð Elíasson. Lögin öll á Sigfús Halldórsson.
3. My Fair Lady-syrpa - Ellý Vilhjálms syngur með - Sértu hundheppinn, Yrði það ei dásamlegt, Áður oft ég hef, Ég vildi dansa í nótt og Ég á að kvænast kellu á morgun. Egill Bjarnason þýddi alla textana en tónlistin er eftir Frederick Loewe.
4. Polka-syrpa - Einu sinni var, lag Svavar Benediktsson, texti Kristján frá Djúpalæk, Piparsveinapolki, lag Guðjón Matthíasson við texta Núma Þorbergs, Kátir dagar, erlent lag við texta Jenna Jóns, Æ, Ó, aumingja ég, erlent lag við texta Ólafs Gauks og Ef leiðist mér heima, erlent lag við texta Ágústs Böðvarssonar.
Í hljómsveit Svavars Gests sem leikur undir í öllum syrpunum eru Svavar Gests á trommur, Garðar Karlsson á gítar, Grettir Björnsson á harmonikku og Reynir Sigurðsson á bassa. Bassaleikararnir Pétur Björnsson og Gunnar Pálsson koma einnig við sögu í þremur syrpum. Magnús Ingimarsson radsetti og fyrir kór og hljómsveit.
Á umslagi plötunnar má sjá fallega mynd úr garði Alþingishússins eftir Rafn Hafnfjörð. Á bakhliðinni er mynd Péturs Þorsteinssonar af fóstbræðrunum fjórtán sem syngja á plötunni. Þeir eru: Hákon Oddgeirsson, Ásgeir Hallsson, Ragnar Magnússon, Einar G. Þorsteinsson, Sigurður Jóelsson, Aðalsteinn Guðlaugsson, Einar Ágústsson, Árni Eymundsson, Jóhann Guðmundsson, Þorsteinn R. Helgason, Magnús Guðmundsson, Sigurður Símonarson, Guðmundur Helgi Guðmundsson og Garðar Jökulsson.
Umsjón: Stefán Eiríksson.

Útvarpsfréttir.
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 14. júní 2014.
Umsjón: Sigurbjörg Þrastardóttir
Í þessum þætti er sjónum beint að konum sem semja og flytja sín eigin lög. Flestar eru ungar, sumar amerískar, allar samtímalistamenn sem hafa byggt upp feril sinn á ótvíræðum hæfileikum.
1. Cat Power: Sea of Love (Juno Soundtrack)
2. Cat Power: The Greatest (The Greatest)
3. Joanna Newsom: This side of the blue
4. Eivör Pálsdóttir: Vársins ljóð (Eivör Pálsdóttir)
5. Carla Bruni: Quelqu'un m'a dit
6. Ana Carolina: Vestido Estampado (tónleikar)
7. Björk: Oceania (Medulla)
8. Ingibjörg Þorbergs: Píanóleikarinn (Í sólgulu húsi)
9. Ane Brun: Rubber and Soul (A temporary dive)
10. Martha Wainwright og Rufus Wainwright: I will always love you (tónleikar)
11. Lisa Ekdahl: Kom änglar (tónleikar)



frá Veðurstofu Íslands.
Anna Marsý leitar uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli.
Umsjón: Anna Marsbil Clausen
Óvænt bónorð leiðir litlu stúlkuna frá Ísafirði í ævintýri sem hún hefði aldrei getað ímyndað sér.


Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Tónlist héðan og þaðan

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Sumarið hefur líklega farið í áhorf á heimsmeistaramótið í fótbolta hjá mörgum og því fannst okkur við hæfi að helga þennan þátt íþróttum. Úrslitaleikurinn er á morgun og þá er hægt að stytta sér stundir með því til dæmis að velta því fyrir sér af hverju Kínverjar eru ekki betri í fótbolta en raun ber vitni.
Það er áhugavert að fjögur af fimm fjölmennustu ríkjum heims taka ekki þátt í HM, Indland, Indónesía, Pakistan og jú Kína. Þrátt fyrir að hinn annálaði fótboltaáhugamaður og forseti landsins, Xi Jinping, hafi sett ævintýralegar fjárhæðir í að byggja fótboltaskóla, fótboltavelli, að þjálfa upp stjórstjörnur heima við og flytja þær inn sömuleiðis til að spila í ört stækkandi efstu deild kínverska boltans, þá er Kína hvergi nærri háleitum markmiðum sínum. Sem eru að komast á HM karla í fótbolta, halda mótið og vinna það – allt fyrir árið 2050.
Eða það eru yfirlýstu markmiðin. Vafalaust vakir sömuleiðis fyrir forsetanum að gera Kína meira gildandi í allri pólitíkinni í kringum fótboltann. Eins og Sádar og Katarar hafa gert með glimrandi árangri. En hvers vegna er þessi fjölmenna þjóð ekki betri í einni vinsælu íþrótt heims. Oddur Þórðarson reynir að svara því.
Það hafa fleiri stórmót sett svip sinn á árið, vetrarólympíuleikarnir fóru fram fyrr á árinu og þar gekk á ýmsu. Játningar um framhjáhald, fótbrot og ásakanir um svindl og typpastækkanir er meðal þess sem var í umræðunni. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um mál Sydney Milani sem var meinuð þátttaka á leikunum eftir að sterar mældust í henni. Hún þvertekur fyrir að hafa tekið stera og segir efnin hafa mælst í henni vegna kærasta hennar, hann hafi tekið stera og hún hafi annað hvort fengið efnin í sig eftir sopa af drykk sem hann blandaði eða með sæði úr kærastanum.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Gunnhildur Hauksdóttir notar raddir til að skapa list, fléttar saman teikningum, pendúlum og kórum sem hún setur saman til að syngja teikningarnar og hugmyndirnar. Hún leggur áherslu á það að hún sé ekki að búa til tónlist, segist enda ekki kunna neitt í tónlist, en sé að búa til áferð með röddum.
Lagalisti:
Óútgefið - Kór fyrir einn
Óútgefið - Tvíeyrna
Five Drawings - Fimm teikningar
Óútgefið - jäkälä
Óútgefið - Úr hjarta í stein
Óútgefið - Rottukór
Óútgefið - Skýjakór
Stjórnendur Lestarinnar, þau Lóa og Kristján, kryfja popplög með Friðriki Margrétar Guðmundssyni, tónskáldi, tónlistarmanni og poppmeinafræðingi.
Hrekkjavökuslagarinn Dracula með áströlsku sýrupoppsveitinni Tame Impala er tekinn til krufningar.
Umsjón:
Lóa Björk Björnsdóttir, Kristján Guðjónsson og Friðrik Margrétar-Guðmundsson

Bandaríska stórstjarnan Whitney Houston skaust fram á sjónarsviðið um miðjan níunda áratug síðustu aldar og varð á skömmum tíma einn af vinsælustu skemmtikröftum veraldar. Tónlistarferill hennar spannar rúman aldarfjórðung en hún lést árið 2012, 48 ára að aldri.
Í fjórum þáttum fjallar Berglind María Tómasdóttir um feril og stormasamt lífshlaup Whitney Houston, áhrif hennar og arfleifð.
Bandaríska stórstjarnan Whitney Houston skaust fram á sjónarsviðið um miðjan níunda áratug síðustu aldar og varð á einn af vinsælustu skemmtikröftum veraldar um tvítugt. Rætt er við Leslie Leythham í þættinum.
Umsjón: Berglind María Tómasdóttir.

Útvarpsfréttir.

Umsjón: Illugi Jökulsson
Umsjón: Illugi Jökulsson
Árið 1600 varð mikið eldgos í fjallinu Huyanaputina í Perú. Ári seinna hófst mikið harðindatímabil á Íslandi er hafði í för með sér mikinn manndauða. Í ritgerð í tímaritinu Sögu hefur sagnfræðingurinn Skafti Ingimarsson tengt þessa tvo atriði saman og í spjalli við Illuga Jökulsson ræðir hann um niðurstöður sínar og Ísland í upphafi 17. aldar.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Lagalisti:
Óskar Guðjónsson, Magnús Jóhann Ragnarsson - Greindargerjun.
Brown, Ray, Peterson, Oscar, Getz, Stan, Ellis, Herb, Roach, Max, Gillespie, Dizzy - It's the talk of the town.
James, Elmore, Wilkins, Joe, Bivens, Cliff, Williamson, Sonny Boy, Campbell, Dave, O'Dell, Frock - Eyesight to the blind.
Mikael Máni Ásmundsson - Birthday.
Wright, Lizz - All the Way Here.
Steingrímur Karl Teague, Magnús Trygvason Eliassen, Andri Ólafsson Kontrabassaleikari, Ari Árelíus, Rebekka Blöndal - Hvað þú vilt (feat. Moses Hightower).
Fitzgerald, Ella and her Famous Orchestra - Stairway to the stars.
Haden, Charlie, Jarrett, Keith - Don't ever leave me.
Myers, Amina Claudine, Smith, Wadada Leo - Jaqueline Kennedy Onassis Reservoir.
Afro-Latin Jazz Orchestra, O'Farrill, Arturo - Clump, unclump.
Einar Scheving - Hvert örstutt spor.
ADHD Hljómsveit - Hofslundur.
Mondragon, Joe, Pepper, Art, Hawes, Hampton, Bunker, Larry - Holiday flight.

Fréttir
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Í þessum öðrum þætti ræðir umsjónarmaður við Hallveigu Thorlacius sem var í Sovétríkjunum á sjöunda áratugnum á tímabili sem kallað hefur verið þíðan.
Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Aðstoð við dagskrárgerð: Guðni Tómasson.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Jónatan Garðarsson valdi.
Martin Taylor og Pearl Django leika lögin Rue de Dinan, Serafina og Jive At Five. Martin Taylor og Alan Barnes leika lögin I Wish You Love, Willow Weep, Slow Coach og Stranger On The Shore. Ulf Wakenius, Niels-Henning Örsted Pedersen og Adam Nussbaum flytja lögin Moulin Rouge, Stella By Starlight, Jeg gik mig ud en sommerdag, To A brothe og Lines. Kvintett Johnny Griffin leikur lögin Do It, Leave Me Alone, You Must Believe In Spring, Without A Song, Hus-a-Bye og My Romance.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Egill Arnarson segir frá sínu uppáhalds tónverki, Le buisson ardent, eftir Charles Koechlin.
Flytjendur: Radio-Sinfonieorchester Stuttgart des SWR, stjórnandi Heinz Holliger, Christine Simonin, ondes martenot.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.


frá Veðurstofu Íslands

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.
Ragnar Bjarnason er söngvarin þáttarins.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.
Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Hverjir eru karakterarnir á bak við stærstu ákvarðanirnar í fyrri heimsstyrjöldinni?
Ólíkt seinni heimsstyrjöldinni, þar sem Churchill, Roosevelt, Stalín og Hitler eru okkur svo kunnir er erfiðara að festa hendur á því hverjir réðu örlögum heimsins í fyrri stríðinu. Í seinni hluta samtals míns við Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðing tökum við þetta fyrir, og förum þaðan í Versalasamninginn, þann biturleika sem hann sáði í Þýskalandi, og hvernig fasisminn og nasisminn náðu rótum í þeim jarðvegi.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
Viðmælandi: Gunnar Þór Bjarnason

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Í þessum þætti af Fram og til baka skoða Felix og Nanna hátíðir víða um land. Franskir dagar á Fáskrúðsfirði fagna 30 ára afmæli og í tilefni þess heyrðu þau í Alberti Eiríkssyni og ræddu hátíðina. Þau fengu til sín Bergsvein Arilíusson og fóru yfir árin með Pöpum sem koma fram á bæjarhátíðinni Hjarta Hafnarfjarðar um helgina.
Það styttist í þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og í tilefni þess tóku umsjónarmenn snúning á þjóðhátíðarlögum. Þá kíkti til þeirra Margrét Júlía Ingimarsdóttir, eyjakona, sem hefur aldrei látið sig vanta í dalinn og ræddi meðal annars hvað gerir gott þjóðhátíðarlag. Að lokum fengu þau til sín blaðamanninn og menningarrýninn Magnús Jochum Pálsson sem fór með þeim yfir nýjustu og mögulega síðustu myndina í Jackass kvikmyndabálknum.



Útvarpsfréttir.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Júlía Margrét setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.
Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskótvennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar, Veislustjórann og íslenska lagið. Að lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.
Í þætti kvöldsins spilum við hvern dansslagarann á fætur öðrum í órökréttri en fumlausri röð.
Í fyrri hlutanum fáum við að sjálfsögðu diskótvennu og förum út í frímínútur með þáttarstjórnendum þar sem þeir handvelja allskonar nostalgíudanssprengjur handa hlustendum.
Við kíkjum síðan inn á troðfullan skemmtistaðinn Prikið í kringum aldamótin í fylgd plötusnúðsins Benna B-ruff, förum aftur til dansársins 2004 og fikrum okkur svo auðvitað á barinn og hristum kokteil kvöldsins.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
