19:00
Tónleikur
Strengjakvartettar

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Áður á dagskrá veturinn 2008-2009

Í Tónleik að þessu sinni verður rætt um þróun tónlistar frá upphafi klassíkur til upphafs módernisma 20. aldarinnar og leiknir strengjakvartettar frá þrem ólíkum tímabilum. Fyrst verða leiknir fjórir þættir af fimm úr strengjakvartett í Es-dúr op. 0 eftir Joseph Haydn frá árinu 1757, einn af alfyrstu kvartettum sem samdir voru, síðan verða leiknir tveir þættir úr strengjakvartett op. 127 eftir Ludwig van Beethoven, sem líka er í Es-dúr og var frumfluttur 6. mars árið 1825. Hann er frá hátindi klassíska tímabilsins, en þó eru mikil umbrot í verkinu sem vísa fram til rómantíkur og jafnvel lengra. Að síðustu verður leikið hundrað ára gamalt módernískt verk, það eru Fimm þættir fyrir strengjakvartett op. 5 eftir Anton Webern – allt strengjakvartettar en tónlistin og tónhugsunin er gerólík.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 47 mín.
e
Endurflutt.
,