14:30
Kúrs
Hjartsláttur í takt

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.

Viðtal við tvíburasysturnar Laufeyju og Björk Björnsdætur þar sem kafað er ofan í upplifun þeirra af því að vera eineggja tvíburasystur og hvaða kröfum þær mæta af samfélaginu, fyrir það eitt að vera tvíburar. Inn í þetta flétta ég fróðleik um eineggja tvíbura út frá rannsóknum sem ég kannaði og sagði einnig frá minni upplifun af því að vera eineggja tvíburi.

Umsjón: Brynhildur Yrsa Valkyrja

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 30 mín.
,