Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Endalok verða rauður þráður í Heimskviðum í dag. Það eru vægast sagt umdeild endalok þáttaraðarinnar Stranger things, en óhætt að segja að það séu margir ósáttir við þau. Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum.
Það er stefna bandaríkjastjórnar að draga úr umfangi þessara miðla sem reka staðbundnar útvarps- og sjónvarpsstöðvar um öll Bandaríkin. Núna séu komnir fjöldi sjálfstæðra miðla og það sé ekki aðeins úrelt fyrirkomulag að ríkið fjármagni miðlana heldur spilli það fyrir sjálfstæðri blaðamennsku. Við tölum við Ingibjörgu Þórðardóttur sem er fyrrverandi fréttastjóri BBC og CNN í Bandaríkjunum. Hún segir umræðuna um að ríkismiðlar hafi of mikil áhrif á fjölmiðlamarkaðinn góða og gilda en hún eigi ekki við Bandaríkjunum. Almannaþjónustumiðlarnir, NPR og PBS, eigi ekki roð í stærstu einkamiðlana og hvarf þeirra hefði lítil eða engin áhrif á þá. En það myndi hins vegar gera fjölmiðlalandslandslagið bæði einhæfara og fátæklegra.
Svo er það eitt helsta flaggskip Netflix-streymisveitunnar - Stranger Things. Aðdáendur þáttanna eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar samsæriskenningar meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg.
Duffer-bræður, skaparar þáttanna, eru sagðir hafa misst boltann í blálokin - eða er þetta kannski bara snilldar markaðssetning? Það hlýtur alla vega að vera ákveðin snilld að fá fólk til þess að vera enn að tala um þættina og jafnvel að horfa á þá aftur og aftur, til að finna vísbendingar og lesa milli línanna.
