22:18
Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Litla flugan dregur fram plötur með harmonikuleikaranum Art van Damme og kvintetti hans. Terry Snyder og The All Stars leika nokkrar agasyrpur og kvintett Raymond Scott bætir um betur.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 43 mín.
e
Endurflutt.
,