10:15
Sprengjan sem sprakk
2. þáttur

Austurland á fimmta áratug síðustu aldar. Frásagnir tengdar hernámi Breta þar.

Atburðir sem aldrei liðu úr huga þeirra sem tókust á við lífið í kjölfar þeirra.

Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir

Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

Íslenska ríkið skuldbatt sig til þess að greiða ekkjum sjómanna, sem létust á hafi úti af völdum stríðsátakanna, bætur. En hvað með bónda og börnin sem létust af völdum handvammar af hálfu breska hersins og hvernig metum við mannslíf?

Viðmælendur í þættinum eru: Friðþór Eydal, Guttormur Metúsalemsson og Ragnheiður Kristjánsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 41 mín.
,