18:00
Kvöldfréttir útvarps
Lífsbjörg að vera tekinn úr Bakkakoti, deilt um vísitölutengingar bóta á þingi og Maxwell svaraði engu

Fréttir

Fréttir

Maður, sem var í fóstri í Bakkakoti í æsku, segir að lífi sínu hafi verið bjargað þegar hann var færður á annað fósturheimili.

Ghislaine Maxwell svaraði ekki spurningum þegar hún kom fyrir þingnefnd sem rannsakar kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein fyrr í dag. Lögmaður segir Maxwell reiðubúna að leysa frá skjóðunni EF Bandaríkjaforseti náðar hana.

Fiskeldissjóður getur haft óbein áhrif á uppbyggingu í sveitarfélögum með ákvörðunum sínum og styrkskilyrðum. Í ár keppa sjö sveitarfélög um rúman hálfan milljarð króna.

Færri íslensk börn undir 13 ára eru á samfélagsmiðlum en áður. Hlutfall barna 9-12 ára á TikTok, Instagram og Snapchat lækkar en börnum sem spila á Roblox fjölgar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,