07:03
Morgunvaktin
Leikskólamál, Evrópa og Norðmenn í Epstein-skjölunum

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Fyrir helgi sendu 63 leikskólastjórar - allir leikskólastjórar starfandi leikskóla á vegum Reykjavíkurborgar - bréf til borgarinnar. Þar var krafist aðgerða í leikskólamálum, enda sé starfsumhverfið óviðunandi og óverjandi. Sigurður Sigurjónsson, formaður félags stjórnenda í leikskólum, kom á Morgunvaktina og talaði um málefni leikskóla um landið allt.

Vikan framundan á vettvangi Evrópu er annasöm, varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins funda í fyrsta sinn eftir deiluna um Grænland, leiðtogafundur Evrópusambandsins verður haldinn sama dag, og við heyrðum af samstarfi í heilbrigðismálum og úrslitum kosninga í Portúgal í gær. Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, var á línunni.

Við ræddum áfram um Epstein-skjölin og áhrif þess sem þar kemur fram á stjórnmál og samfélög. Við beindum sjónum okkar að Noregi, þar sem mikil umræða hefur verið um tengsl háttsettra Norðmanna við Epstein. Herdís Sigurgrímsdóttir, sem bjó í Noregi og fylgist vel með, ræddi um þessi mál.

Tónlist:

Bítlarnir - Baby it's you.

Bítlarnir - While my guitar gently weeps.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,