19:00
Tónhjólið
Tónlist Mortons Feldmans

Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.

Þáttur Tónhjólsins að sinni er tileinkaður tónskáldinu Morton Feldman, sem hefði orðið hundrað ára í janúar síðastliðnum. Feldman átti stóran þátt í að þróa Bandarísku tilraunahefðina á eftirstríðsárunum ásamt tónskáldum á borð við John Cage, Christian Wolff og Earle Brown. Feldman var innblásinn af myndlistarsenunni í New York og gerði löng abstrakt tónverk þar sem tilfinning fyrir tíma verður óljós og verk hans geta tekið allt að sex klukkustundir í flutningi.

Rætt við Sigurð Bjarka Gunnarsson úr Strokkvartettinum Sigga um flutning þeirra á Strengjakvartett nr. 2 eftir Feldman árið 2017.

Tónlist í þættinum:

Morton Feldman: The Straits of Magellan. Joe Tieman, Jos Zwaanenburg, The Barton Workshop, stj. James Fulkerson, 2005.

Anton Webern: Sinfónía, op. 21. Berlínarfílharmónían, stj. Herbert von Karajan, 1974.

Christian Wolff: Duo for pianists. John Cage og David Tudor, 1957.

Feldman: The King of Denmark. Pétur Grétarsson, 2014.

Feldman: Durations III. Don Butterfield, David Soyer & David Tudor, 1961.

Feldman: The Viola in my Life I. Marek Konstantynowicz & Cikada Ensemble, 2001.

Feldman: Rothko Chapel - pt. 1&2, Abel David, Deborah Dietrich, Karen Rosenak, William Winant, Kammerkór Kaliforníuháskólans í Berkley, 1990.

Feldman: For Philip Guston, VII bls. 53-76. Juliu Breuer, Matthias Engler og Elmar Schrammel, 2007.

Feldman: Strengjakvartett nr. 2, bls. 5-14. FLUX Quartet, 2001.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 32 mín.
e
Endurflutt.
,