Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Höfuðverkur er tíður óboðinn gestur; hann getur verið vægur og hann getur verið svæsinn. Um höfuðverk var fjallað á Læknadögum á mánudag; við heyrðum hvað læknar vita og hvað þeir geta gert. Til okkar kom Anna Margrét Guðmundsdóttir læknir.
Grænland var efst á blaði í spjalli um dönsk málefni með Borgþóri Arngrímssyni. Hann sagði meðal annars frá hundasleðadeild danska hersins, hún er eftirsótt og ströng skilyrði eru fyrir því að komast inn í hana. Aðstæður þar sem hún er starfrækt eru líka afskaplega erfiðar.
Svo var fjallað um Friðarverðlaun Nóbels. Það vakti athygli og furðu þegar Maria Corina Machado frá Venúsúela - handhafi friðarverðlaunanna á síðasta ári - afhenti þau Trump Bandaríkjaforseta um daginn. Gjörningurinn fer á lista yfir undarlegheit í tengslum við verðlaunin og yfir þau var farið með Veru Illugadóttur.
Tónlist:
Hallveig Rúnarsdóttir, Hrönn Þráinsdóttir - Það kom söngfugl að sunnan.
Claudio Puntin, Gerður Gunnarsdóttir - Kvæðið um fuglana.
Nive Nielsen & The Deer children - Tuttukasik.
Bob Dylan - One More Cup Of Coffee.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Lagalistinn:
JAMES GANG - Walk Away.
Mason Ruffner - Baby I don't care.
BOB DYLAN - Where Teardrops Fall.
Freddie King - Going Down.
Steppenwolf - Magic Carpet Ride.
Peps Persson - Maskin nr. 2.
Dan Reeder - Angels may.
ROD STEWART - Maggie May.
J.J.CALE - Starbound.
THE BEATLES - I Will.
Stan Getz & João Gilberto, Joao & Astrud Gilberto - The Telephone Song.
TOM WAITS - Come on up to the House.
Tim Hardin - Reason To Believe.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Það standa yfir læknadagar í Hörpu og ráðstefnan opnaði á mánudeginum með tveimur málþingum um áfengi og lýðheilsu og það hefur vakið athygli í fjölmiðlum og áfram verður fjallað um þetta mikilvæga málefni á opnu málþingi fyrir almenning í kvöld kl.20.00 - Áfengi í alfaraleið. Síðastliðinn mánudag flutti Kristín Sigurðardóttir læknir erindi sem hét Flótti í flöskuna – áhrif álags og áfalla. Kristín starfaði lengi sem bráðalæknir og varð vör við breytingu á afleiðingum áfengisneyslu eftir að hún kom heim úr sérnámi og lenging á opnunartíma öldurhúsa hafði átt sér stað. Kristín fór með okkur yfir þessi mál í þættinum í dag.
Sóley Kristjáns og Auðbjörg Ólafs eru, eins og þær orða það sjálfar, tvær miðaldra á breytingarskeiðinu sem eru ferskari og fyndnari en nokkru sinni fyrr, enda konur með reynslu. Þær hafa verið saman með uppistandssýningu sem kallast Af hverju fórum við ekki bara á gönguskíði? sem þær ferðuðust með um landið. Þær eru nú með aðra sýningu í Tjarnarbíói sem þær kalla Konur þurfa bara... í henni fjalla þær um lærdóminn og það skemmtilega sem svona brölti miðaldra kvenna fylgir. Þær sögðu okkur aðeins frá þessu svokallaða brölti í dag.
Tónlist í þættinum:
Norðurljós / Eyjólfur Kristjánsson (Gunnar Þórðarsson, texti Ólafur Haukur Símonarson)
GMF / John Grant (John Grant)
Ferry Cross the Mercy / Gerry and the Pacemakers
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Stjórnarformaður Vélfags var handtekinn í aðgerðum héraðssaksóknara í morgun og húsleit gerð hjá fyrirtækinu. Vélfag er eina fyrirtækið sem sætt hefur viðskiptaþvingunum vegna meintra tengsla við skuggaflota Rússlands.
Ræðu Bandaríkjaforseta er beðið í ofvæni á viðskiptaráðstefnunni í Davos í Sviss. Hann ítrekaði í gær kröfur sínar um Grænland. Engin lausn virðist í sjónmáli.
Tæpum fimm prósentustigum munar á fylgi Samfylkingar og Miðflokks í nýrri könnun Maskínu. Viðreisn er þriðji stærsti flokkurinn. á kostnað Sjálfstæðisflokksins.
Öll tæki voru notuð til hálkuvarna í verulega krefjandi aðstæðum í gær segir Reykjavíkurborg. Tryggingafélög búast við tjóns og slysatilkynningum á næstu dögum.
Stjórnendur Niceair hafa frestað því að hefja starfsemi fram á seinni hluta árs. Forsvarsmaður segir það hefði verið rekstrarlegt sjálfsmorð að fljúga með hálffulla vél.
Landssamband veiðifélaga lýsir yfir miklum vonbrigðum með nýtt frumvarp um lagareldi. Veiðifélögin vilja stöðva stækkun sjókvíaeldis og fá áætlun um hvenær verði hætt að ala frjóan fisk í opnum kvíum.
Leiðarkerfi Strætós og þjónusta við viðskiptavini rennur inn í nýtt félag í eigu ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Sigur Íslands á Ungverjalandi á Evrópumóti karla í handbolta í gærkvöld var dýrkeyptur. Elvar Örn Jónsson verður ekki meira með vegna meiðsla.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Hvað er eiginlega á bak við fréttir ásælni Donalds Trumps í Grænland sem Vesturlönd hafa staðið á öndinni yfir síðustu daga?
Ástralski stjórnmálafræðingurinn Page Louise Wilson í Háskóla Íslands segir að skýringarnar fyrir hótunum hans liggi í stjórnmálastöðunni í Bandaríkjunum en ekki í rökum sem snúast um varnar- eða utanríkismál. Hún notar hugtök eins og valdaöryggi og efnahagslegt einelti til að lýsa kjarnanum í Grænlandsmálinu.
Paige segir Donald Trump vera að ganga erinda milljarðamæringa eins og Elons Musk á Grænlandi en nýlega hafi yfirvöld á Grænlandi ákveðið að semja ekki við fyrirtæki hans SpaceX um fjarskiptaþjónustuna Starlink. Hún segir Trump og Repúblikanaflokkinn þurfa stuðning Musks og fleiri milljarðamæringa í komandi þingkosningum í Bandaríkjunum.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Hvers vegna líður okkur oft ekki vel í byggða umhverfinu okkar? Þetta er spurning sem margir spyrja sig að þessa dagana, við í Samfélaginu þeirra á meðal. Við ætlum að halda áfram að fjalla um byggðarmál – í dag frá sjónarhorni arkítekta. Arnhildur Pálmadóttir arkítekt ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að ræða mannvæn mannvirki, sjálfbærar byggingaraðferðir, fagurfræði, nostalgíu, skipulagsmál, og ýmislegt fleira.
Síðan ætlum að ræða lestur og læsi. Hver er munurinn á þessu tvennu? Hvað þarf til að geta lesið sér til gagns? Hvað vitum við í raun og veru um stöðu læsis og lesturs á Íslandi? Sigríður Ólafsdóttir, dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands, ætlar að segja okkur meira.
Og í lok þáttar er það hið vikulega vísindaspjall. Edda Olgudóttir kíkir við og segir okkur frá nýlegum rannsóknum á áhrifum svefnleysis á heilann.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Inga Bjarna Skúlason píanóleikara um tónlist hans, nýjar plötur, áhrifavalda og ýmislegt fleira.
Tónlistin í þættinum:
Impulsive - Ingi Bjarni Skúlason - Fragile Magic
Escaped - Ingi Bjarni Skúlason - Hope
Passing Dream - Moscow Arts Trio
Subtle Living Equations - Craig Taborn - Daylight Ghosts
Hope - Ingi Bjarni Skúlason - Hope
Leikin er íslensk tónlist sem Kristinn Hallsson og Guðmundur Jónsson flytja, auk laga sem Kirkjukór Bústaðakirkju og Barnakór Bústaðakirkju flytja.
Ennfremur er eftirfarandi talmálsefni endurflutt úr segulbandasafni RÚV:
Gísli Björgvin Kristjánsson, umsjónarmaður Ráðningarstofu landbúnaðarins, flytur erindi um þýska verkamenn sem komu til að starfa á íslenskum sveitabæjum, 1949 - 1959.
Einar Ólafur Sveinsson flytur brot úr erindi sínu um náttúrukennd forfeðra okkar og fornan kveðskap, sem flutt var í útvarpið árið 1963.
Umsjón hefur Jónatan Garðarsson.
(Áður á dagskrá 1999)
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Gestur svipmyndar er Óskar Árni Óskarsson. Hann er fæddur í Reykjavík árið 1950 og var ekinn heim af spítalanum á feiknar stórum, rauðum olíubíl frá Esso. Hann ólst upp í Þingholtunum nánast í bakhúsi Borgarbókasafnsins en flutti síðan í Skipholtið á unglingsárum en þar las hann uppgötvaði helstu skáld samtíma síns. Óskar hefur lengi fengist við ljóðagerð, smáprósagerð, myndljóðasmíði, útgáfu og þýðingar. Árið 1986 sendi hann frá sér sína fyrstu ljóðabók, Handklæði í gluggakistunni og 1997 sína fyrstu smáprósabók, Vegurinn til Hólmavíkur. Á ferli sínum hefur Óskar hlotið Ljóðstaf Jóns úr Vör og viðurkenningu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins og árið 2008 var bók hans, Skuggamyndir úr ferðalagi, tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, veltir fyrir sér óhugsandi hlutum. Það er óhugsandi að standa uppi á Bolafjalli og horfa yfir til Bandaríkjanna, þangað til það er það ekki.
Mergur, nýtt íslenskt sviðs og tónverk, verður frumsýnt í Tjarnarbíó á Föstudag. Lestin kíkir á æfingu og Katrín Lóa, leikstjóri, svarar því hvers vegna það var nauðsynlegt að gera kórverk um það sem er ógeðslegt og fyllir okkur skömm.
Satu Råmö er stödd í Finnlandi, á leið á frumsýningu á sjónvarpsþáttum annars vegar og hinsvegar leikriti, sem byggt er á bókum eftir hana. Satu býr á Ísafirði, eins og skálsdsagnapersónan Hildur, Satu skrifar sögurnar og Hildur, leysir glæpi.
Fréttir
Fréttir
Utanríkisráðherra Dana segir samninga um kaup Bandaríkjanna á Grænlandi ekki koma til greina. Forseti Bandaríkjanna krafðist samninga um Grænland í Davos í dag en sagðist ekki ætla að beita valdi.
Fimm hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn á starfsemi fyrirtækisins Vélfags.
Prófessor í stjórnmálafræði segir Breta viðurkenna að beiting hryðjuverkalaganna gegn Íslandi 2008 í efnahagshruninu hafi verið efnahagsleg hernaðaraðgerð. Hann telur margt óuppgert í tengslum við atburðinn sem hann fjallar um í nýrri rannsókn.
Orkuveita Reykjavíkur skoðar þrjú lokatilboð sem henni hafa borist í rekstur Carbfix. Orkuveitan hyggst halda hugverkaréttindum og fá af þeim tekjur.
Elvar Ásgeirsson hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn á Evrópumótinu í handbolta.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Donalds Trumps var beðið með mikilli eftirvæntingu á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss. Hann talaði þar í annan klukkutíma - fór mikinn um efnahagsundur sem ætti sér stað í Bandaríkjunum en talaði líka um utanríkismál. Bandaríkin hefðu áratugum saman ausið fé í NATO en ekkert fengið til baka og nú bæði hann um Grænland. Trump nefndi Ísland mörgum sinnum í ræðunni og átti þar að öllum líkindum við Grænland en engu síður vekur þetta allt ugg og óróa segja þingmennirnir Jón Gnarr (C) og Guðlaugur Þór Þórðarson (D).
Aðalmeðferð er að hefjast í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu gegn þeim Sahar Babei og Elissu May Phillips, sem klifruðu upp í möstur tveggja hvalveiðibáta til að mótmæla hvalveiðum Íslendinga. Katrín Oddsdóttir verjandi þeirra telur stjórnarskrárvarinn rétt þeirra til mótmæla hafa veirð brotinn.

Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalistinn:
Björk Guðmundsdóttir Tónlistarm. - The gate.
Hamrahlíðarkórinn - 13 Hjá lygnri móðu (1981).
Þórunn Lárusdóttir Leikkona ; RKÍ, Eyþór Gunnarsson - Kvöldsigling.
ADHD Hljómsveit - Ame.

frá Veðurstofu Íslands

Hljóðritun frá tónleikum pólska strengjakvartettsins Appolon Musagète sem fram fóru á Strengjakvartetta-tvíæringnum í Barcelona á síðasta ári.
Á efnisskrá:
- Strengjakvartett nr. 1 í C-dúr op. 37 eftir Karol Szymanovskíj.
- Strengjakvartett nr. 3, Blöð úr óskrfaðri dagbók, eftir Krzysztof Penderecki.
- Strengjakvartett nr. 9 í d-moll op. 34 eftir Antonín Dvorák.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Hvers vegna líður okkur oft ekki vel í byggða umhverfinu okkar? Þetta er spurning sem margir spyrja sig að þessa dagana, við í Samfélaginu þeirra á meðal. Við ætlum að halda áfram að fjalla um byggðarmál – í dag frá sjónarhorni arkítekta. Arnhildur Pálmadóttir arkítekt ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að ræða mannvæn mannvirki, sjálfbærar byggingaraðferðir, fagurfræði, nostalgíu, skipulagsmál, og ýmislegt fleira.
Síðan ætlum að ræða lestur og læsi. Hver er munurinn á þessu tvennu? Hvað þarf til að geta lesið sér til gagns? Hvað vitum við í raun og veru um stöðu læsis og lesturs á Íslandi? Sigríður Ólafsdóttir, dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands, ætlar að segja okkur meira.
Og í lok þáttar er það hið vikulega vísindaspjall. Edda Olgudóttir kíkir við og segir okkur frá nýlegum rannsóknum á áhrifum svefnleysis á heilann.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Það standa yfir læknadagar í Hörpu og ráðstefnan opnaði á mánudeginum með tveimur málþingum um áfengi og lýðheilsu og það hefur vakið athygli í fjölmiðlum og áfram verður fjallað um þetta mikilvæga málefni á opnu málþingi fyrir almenning í kvöld kl.20.00 - Áfengi í alfaraleið. Síðastliðinn mánudag flutti Kristín Sigurðardóttir læknir erindi sem hét Flótti í flöskuna – áhrif álags og áfalla. Kristín starfaði lengi sem bráðalæknir og varð vör við breytingu á afleiðingum áfengisneyslu eftir að hún kom heim úr sérnámi og lenging á opnunartíma öldurhúsa hafði átt sér stað. Kristín fór með okkur yfir þessi mál í þættinum í dag.
Sóley Kristjáns og Auðbjörg Ólafs eru, eins og þær orða það sjálfar, tvær miðaldra á breytingarskeiðinu sem eru ferskari og fyndnari en nokkru sinni fyrr, enda konur með reynslu. Þær hafa verið saman með uppistandssýningu sem kallast Af hverju fórum við ekki bara á gönguskíði? sem þær ferðuðust með um landið. Þær eru nú með aðra sýningu í Tjarnarbíói sem þær kalla Konur þurfa bara... í henni fjalla þær um lærdóminn og það skemmtilega sem svona brölti miðaldra kvenna fylgir. Þær sögðu okkur aðeins frá þessu svokallaða brölti í dag.
Tónlist í þættinum:
Norðurljós / Eyjólfur Kristjánsson (Gunnar Þórðarsson, texti Ólafur Haukur Símonarson)
GMF / John Grant (John Grant)
Ferry Cross the Mercy / Gerry and the Pacemakers
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, veltir fyrir sér óhugsandi hlutum. Það er óhugsandi að standa uppi á Bolafjalli og horfa yfir til Bandaríkjanna, þangað til það er það ekki.
Mergur, nýtt íslenskt sviðs og tónverk, verður frumsýnt í Tjarnarbíó á Föstudag. Lestin kíkir á æfingu og Katrín Lóa, leikstjóri, svarar því hvers vegna það var nauðsynlegt að gera kórverk um það sem er ógeðslegt og fyllir okkur skömm.
Satu Råmö er stödd í Finnlandi, á leið á frumsýningu á sjónvarpsþáttum annars vegar og hinsvegar leikriti, sem byggt er á bókum eftir hana. Satu býr á Ísafirði, eins og skálsdsagnapersónan Hildur, Satu skrifar sögurnar og Hildur, leysir glæpi.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Menningarhátíðin Iceland Eclipse, sem fer fram í ágúst á sama tíma og almyrkvinn, er að sögn aðstandenda dýrasti og flóknasti menningarviðburður íslandssögunnar. Þarna verða ekki bara listamenn heldur vísindamenn, nóbelshafar og geimfarar. Við fengum Jón Bjarna Steinsson til að segja okkur nánar frá hátíðinni.
Nú er ár liðið síðan Donald Trump tók við embætti á ný. Af því tilefni hefur Morgunútvarpið tekið saman fimm „sérstökustu“ skipanir hans í embætti.
Ísland og Ungverjaland mættust á EM í handbolta í gærkvöldi og framunan er erfiðir leikir í milliriðli. Við höldum áfram að taka púlsinn á stemningunni hjá stuðningsfólki strákanna okkar og í þetta skipti hringjum við suður á Tenerife. Helgi Jean Claessen var á línunni.
Keppnistímabilið er að hefjast hjá atvinnukylfingnum Haraldi Franklín en um helgina heldur hann til Suður-Afríku. Þar bíða hans fjögur mót áður en hann fer til Abú Dabí, Ítalíu, Spánar, Danmerkur og víðar. Hann verður á ferð og flugi meira og minna út október og það er ljóst að strembið tímabil er framundan. Hvernig undirbýr hans sig fyrir þessu ósköp og hvernig er líf atvinnukylfingsins á þessum ferðalögum á meðan fjölskyldan býr á Íslandi? Haraldur Franklín mætti í Morgunútvarpið.
Brooklyn Beckham hefur rofið þögnina um erjur hans og foreldrar hans, David og Victoria Bekcham. Brooklyn segist ekki hafa neinn áhuga á að sættast við foreldra sína og sakar þau um lygar og pretti til þess að viðhalda fullkominni ímynd fjölskyldunnar. Við fengum stjörnusérfræðinginn Evu Ruzu til að útskýra þetta leiðindarmál fyrir hlustendum okkar.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Anna Sigríður málfarsráðunautur leit í heimsókn og rætt var um að vera léttur á bárunni. Baby Spice varð 50ára, DeLorean 45 ára, blaðrað var um The X-files, handbolta, fyrstu plötu Meg White og margt fleira.
Lagalisti þáttarins:
VÖK – Night & day
MARK MORRISON – Return of the mack
KINGS OF LEON – To Space
THE BEATLES – A Hard Day's Night
DEREK AND THE DOMINOS – Layla
ROBYN – Dopamine
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS – Sódóma
GNARLS BARKLEY – Crazy
EMINEM – My name is
SPICE GIRLS – Wannabe
PRINS PÓLÓ – París Norðursins
MIDNIGHT OIL – Beds Are Burning
THE SMITHS – This Charming Man
OJBA RASTA – Hreppstjórinn
AMBER MARK & ANDERSON .PAAK – Don't Remind Me
KK BAND – Besti vinur
KINGFISHR – Killeagh
R.E.M. – Shiny Happy People
HAIM – Relationships
PORTUGAL. THE MAN – Tanana
SYCAMORE TREE – Forest Rain
WARMLAND – All for All
THE WHITE STRIPES – Seven Nation Army
STEVE MILLER BAND – Abracadabra
OF MONSTERS & MEN – Ordinary Creature
THE KINKS – All day and all of the night
HREIMUR, MAGNI, BERGSVEINN OG GRETTISKÓRINN – Lífið er yndislegt
BUBBI MORTHENS – Bláu ljósin
ARCTIC MONKEYS – Why'd You Only Call Me When You're High?
HUEY LEWIS & THE NEWS – The Power Of Love
THE BAMBOOS – Ex-Files
MARK SNOW – The X files (original version)
PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON & BENNI HEMM HEMM – Eitt af blómunum
POISON – Every Rose Has Its Thorn
THE ROLLING STONES – Angie
CAMERON WINTER – Love Takes Miles
ADDISON RAE – Headphones On
BLONDIE – One Way Or Another
MOSES HIGHTOWER – 101 ósómi
JORDANA & ALMOST MONDAY – Jupiter
SOUNDGARDEN – The Day I Tried to Live

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Stjórnarformaður Vélfags var handtekinn í aðgerðum héraðssaksóknara í morgun og húsleit gerð hjá fyrirtækinu. Vélfag er eina fyrirtækið sem sætt hefur viðskiptaþvingunum vegna meintra tengsla við skuggaflota Rússlands.
Ræðu Bandaríkjaforseta er beðið í ofvæni á viðskiptaráðstefnunni í Davos í Sviss. Hann ítrekaði í gær kröfur sínar um Grænland. Engin lausn virðist í sjónmáli.
Tæpum fimm prósentustigum munar á fylgi Samfylkingar og Miðflokks í nýrri könnun Maskínu. Viðreisn er þriðji stærsti flokkurinn. á kostnað Sjálfstæðisflokksins.
Öll tæki voru notuð til hálkuvarna í verulega krefjandi aðstæðum í gær segir Reykjavíkurborg. Tryggingafélög búast við tjóns og slysatilkynningum á næstu dögum.
Stjórnendur Niceair hafa frestað því að hefja starfsemi fram á seinni hluta árs. Forsvarsmaður segir það hefði verið rekstrarlegt sjálfsmorð að fljúga með hálffulla vél.
Landssamband veiðifélaga lýsir yfir miklum vonbrigðum með nýtt frumvarp um lagareldi. Veiðifélögin vilja stöðva stækkun sjókvíaeldis og fá áætlun um hvenær verði hætt að ala frjóan fisk í opnum kvíum.
Leiðarkerfi Strætós og þjónusta við viðskiptavini rennur inn í nýtt félag í eigu ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Sigur Íslands á Ungverjalandi á Evrópumóti karla í handbolta í gærkvöld var dýrkeyptur. Elvar Örn Jónsson verður ekki meira með vegna meiðsla.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Margrét Erla sá um Poppland í dag og hrærði upp í afmælissúpu - en fjöldi tónlistarmanna á afmæli í dag, allt frá Davíð Stefánssyni frá Fagraskógi, til Emmu Bunton úr Spice Girls.
Valdimar – Karlsvagninn
Laufey – Snow White
Hayley Williams – Good Ol’ Days
Júníus Meyvant – Rise Up
Jón Jónsson, Silvía Nótt - Einhver þarf að segja það (Lokalag Áramótaskaupsins 2025)
Buddy Holly – That’ll Be the Day
The Beach Boys – Barbara Ann
Teddy Swims – Bad Dreams
Billy Ocean – Get Outta My Dreams, Get Into My Car
Óðinn Valdimarsson – Ég er kominn heim
Tame Impala – Dracula
Teitur Magnússon – Gullauga
Úlfur Úlfur Hljómsveit – Börnin og bítið
Duran Duran – Ordinary World
Robyn – Dopamine
CMAT – Ready
Lily Allen – Pussy Palace
GDRN – Lætur mig
Massive Attack – Unfinished Sympathy
Of Monsters and Men – Television Love
Írafár – Ég sjálf
Frankie Goes to Hollywood – Relax
Spice Girls – 2 Become 1 (Single Version)
Haukur Páll, Saint Pete – Endalausar sorgir
Power Paladin – Sword Vigor
Pétur Ben – Pink cream
Hozier, Mumford & Sons – Rubber Band Man
Men Without Hats – The Safety Dance
The Magic Mumble Jumble – Northern Lights
Blood Orange – Vivid Light
Len – Steal My Sunshine
Teddybears, Mad Cobra – Cobrastyle
Portugal. The Man – Tanana
Mannakorn – Einhverstaðar einhverntíman aftur
Birnir, Tatjana – Efsta hæð
Peter Björn & John – Young Folks
Jakob van Oosterhout, Króli, Þjóðleikhúsið – Kveðast á (úr söngleiknum Ormstunga)
Berndsen – Young Boy
Charli XCX – Chains of Love
Bastille – Laura Palmer
MGMT – Electric Feel
Pascal Pinon – En þú varst ævintýr
Svavar Knútur Kristinsson – Mamma ætlar að sofna
The Beths – Straight Line Was a Lie
Vance Joy – Riptide
CMAT – Running/Planning
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Það voru þau Margrét Marteinsdóttir og Kristján Freyr sem stýrðu þættinum að þessu sinni.
Trump Bandaríkjaforseti steig niður af sviðinu á alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos í Sviss um miðjan dag eftir að hafa átt þar sviðið í um einn og hálfan tíma. Ræðan hans var löng og fjölmiðlar víða um heim sýndu beint frá henni. Meðal þess sem vakti athygli var að hann nefndi Ísland nokkrum sinnum en talið er að hann hafi ruglast og ætlað að segja Grænland. Hann kenndi Íslandi til dæmis um dýfu á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í gær. Hann sagði að Bandaríkin væru að hjálpa NATO og Evrópu. „Þar til ég sagði þeim frá Íslandi um daginn þá elskuðu þeir mig. Þeir kölluðu mig pabba,“ sagði Trump. Oddur Þórðarson, fréttamaður hér á RÚV hefur fylgdist með útsendingunni frá Davos í dag og er kominn til okkar í Síðdegisútvarpið.
Trump sagðist í ræðu sinni ætla að hitta Zelensky Úkraínuforseta í Davos og sagði hann jafnvel vera í salnum að hlusta á sig tala. Zelensky var hins vegar búinn að tilkynna að hann kæmi ekki til Davos, hann yrði í Úkraínu í ljósi árása Rússa á orkuinnviði landsins. Neyðarástand hefur skapast vegna árásanna og þúsundir borgarbúa Kyiv eru án hita. Mikið frost er í borginni og fólk leitar skjóls í upphituðum tjöldum. Við hringdum til Kyiv og ræddum við Óskar Hallgrímsson, blaðamann og ljósmyndara sem þar býr ásamt Mariika Lobyntseva. Hann sagði okkur frá lífinu í borginni en sumir borgarbúar eru enn að fara daglega í vinnu og börn í skóla. Í lok dag leita sumar fjölskyldur skjóls á lestarstöðum. Þannig er daglegt líf fólks í hættulegum og ógnvekjandi aðstæðum. Óskar og Mariika búa í innsta hring loftvarna en hafa komið sér upp hálfgerðu byrgi á baðherberginu.
Vinavoðir er heiti á ákveðnu og afar fallegu hannnyrðaverkefni sem byggir á hugsjón Prayer Shawl Ministries úr Bandaríkjunum þar sem fjöldi handavinnuhópa hefur verið stofnaður til að prjóna og hekla sérstök bænasjöl. Bænasjöl þessi hafa verið gefin áfram sem vinarvottur og hlýjar blessunaróskir til sjúklinga og annarra sem eru staddir á krossgötum í lífi sínu. Þannig berst blessunin áfram lykkju fyrir lykkju, mann fram af manni. Félagsskapur um Vinavoðir hittist á fimmtudögum í Grensáskirkju og til að segja okkur frá verkefninu og félagsskapnum kemur hún Hólmfríður Ólafsdóttir djákni þar á bæ.
Á dögunum lýsti Sigríður Jörundsdóttir upplifun sinni á samfélagsmiðlum eftir að hafa verið stoppuð af ókunnum manni á bílastæði fyrir utan Bónusverlsun og þar fjargviðraðist viðkomandi við Sigríði fyrir að leggja í stæði fyrir hreyfihamlaða en virtist með öllu heil til heilsunnar. Þrátt fyrir að geta bent á þartilgerðan bláan miða í rúðu bifreiðar sinnar virtist það trufla manninn að Sigríður virtist ekki líta út fyrir að hafa nokkra hreyfihömlun. Þetta vakti athygli margra og þ.á.m. okkar en á vefsíðu Öryrkjabandalags Íslands eru upplýsingar um stæði fyrir hreyfihamlað fólk og er einmitt talað um að hreyfihömlun sjáist ekki alltaf utan á fólki. Við veltum fyrir okkur hvort algengt sé að fólk í sömu stöðu lendi í álíka tortryggni almennings og hann Bergur Þorri Þorgrímsson hjá ÖBÍ ræðir við okkur um þau mál hér innan skamms.
Kraftur-félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein er mögulega sá klúbbur sem enginn vill vera í en þar tekur félagsfólk velá móti ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum, veitir þeim stuðning og léttir þeim lífið með fjölbreyttri þjónustu. Ein helsta fjáröflunarleið Krafts er sala perluarmbanda með áletruninni „Lífið er núna“. Armböndin eru eingöngu framleidd af sjálfboðaliðum sem leggja félaginu lið með því að bjóða fram krafta sína. Nú á sunnudag verður Perlað af krafti hér í Reykjavík, í Hörpu og þær Guðný Sara fjáröflunarstjóri og Sólveig Ásta framkvæmdarstjóri hjá Krafti vita allt um viðburðinn og líta við hjá okkur á eftir.
Feita hjartað er nafn glænýrrar gamansýningar Halldórs Laxness Halldórssonar, Dóra DNA sem hann frumsýndi í Austurbæjarbíói á dögunum, Í kynningu segir „Maðurinn sem einnig hefur verið nefndur Gene Hackman sinnar kynslóðar, hinn íslenski Colonel Sanders,“ en svo er hann vitanlega bæði barnabarn og nafni nóbelsskáldsins, sjónvarpsmaður, rappari, rithöfundur og margt fleira. Í sýningunni Feita hjartað kafar Dóri ofan í kviku tilverunnar og skoðar sjálfan sig að innan. „Komið og sjáið miðaldramann í tilvistarkreppu, það er bæði fyndið og sorglegt“ segir hann í auglýsingu. Við fáum Dóra í heimsókn í seinni hluta þáttar.
Fréttir
Fréttir
Utanríkisráðherra Dana segir samninga um kaup Bandaríkjanna á Grænlandi ekki koma til greina. Forseti Bandaríkjanna krafðist samninga um Grænland í Davos í dag en sagðist ekki ætla að beita valdi.
Fimm hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn á starfsemi fyrirtækisins Vélfags.
Prófessor í stjórnmálafræði segir Breta viðurkenna að beiting hryðjuverkalaganna gegn Íslandi 2008 í efnahagshruninu hafi verið efnahagsleg hernaðaraðgerð. Hann telur margt óuppgert í tengslum við atburðinn sem hann fjallar um í nýrri rannsókn.
Orkuveita Reykjavíkur skoðar þrjú lokatilboð sem henni hafa borist í rekstur Carbfix. Orkuveitan hyggst halda hugverkaréttindum og fá af þeim tekjur.
Elvar Ásgeirsson hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn á Evrópumótinu í handbolta.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Donalds Trumps var beðið með mikilli eftirvæntingu á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss. Hann talaði þar í annan klukkutíma - fór mikinn um efnahagsundur sem ætti sér stað í Bandaríkjunum en talaði líka um utanríkismál. Bandaríkin hefðu áratugum saman ausið fé í NATO en ekkert fengið til baka og nú bæði hann um Grænland. Trump nefndi Ísland mörgum sinnum í ræðunni og átti þar að öllum líkindum við Grænland en engu síður vekur þetta allt ugg og óróa segja þingmennirnir Jón Gnarr (C) og Guðlaugur Þór Þórðarson (D).
Aðalmeðferð er að hefjast í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu gegn þeim Sahar Babei og Elissu May Phillips, sem klifruðu upp í möstur tveggja hvalveiðibáta til að mótmæla hvalveiðum Íslendinga. Katrín Oddsdóttir verjandi þeirra telur stjórnarskrárvarinn rétt þeirra til mótmæla hafa veirð brotinn.
Ólafur Páll Gunnarsson spilar tónlist að sínum hætti - hitt og þetta og þetta og allt í bland.
Í hit(t) & Þetta heyrist hitt og þetta milli frétta og í þætti kvöldsins förum við á norrænt flakk
Mannakorn / Vals númer tvö
Nive Nielsen / Aqquesernit (Grænland)
Trine Dyrholm / Smuk som et stjerneskud (Danmörk)
The Cardigans / You´re the storm (Svíþjóð)
Kings of Convenience / Mr.s Cold (Noregur)
Hjálmar og Jimi Tenor / Messenger of bad news (Finnland-Ísland)
Bubbi / Bláu ljósin

Fréttastofa RÚV.
Bein útsending í útvarpi frá 16 liða úrslitum Gettu betur 2026.
Menntaskólinn að Laugarvatni sigraði Menntaskólann við Sund 18-13, Borgarholtsskóli sigraði Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra 13-7, Verzlunarskóli Íslands sigraði Flensborgarskólann í Hafnarfirði 40-8 og Menntaskólinn í Reykjavík sigraði Kvennaskólann í Reykjavík naumlega með tveggja stiga mun 28-26 í seinni umferð 16 liða úrslita Gettu betur sem fram fór í kvöld.

Umsjón: Andrea Jónsdóttir.
Lagalistinn:
Melchior Hljómsveit - Alla leið til stjarnanna.
Bubbi Morthens - Allur Lurkum Laminn.
Bubbi Morthens - Bláu ljósin.
BUBBI MORTHENS OG MANNAKORN - Haltu Mér Fast.
MANNAKORN - Hudson Bay.
Bergþóra Árnadóttir - Heimurinn og ég.
Steinar Berg Ísleifsson, Grasasnarnir - Heimurinn og ég.
Ólöf Arnalds - Heimurinn núna.
PÉTUR KRISTJÁNSSON - Vitskert veröld.
ÓÐMENN - Spilltur heimur.
Ívar Ben - Stríð.
Ragnhildur Gísladóttir, Tómas R. Einarsson - Stríðið.
Pálmi Sigurhjartarson - Eftirsjá - Lag fyrir Fróða.
LOKBRÁ - Nosirrah Egroeg.
GEORGE HARRISON - All Things Must Pass.
Ívar Klausen - All Will Come To Pass.
Kári Egilsson - Royal Blue.
Dyrholm, Trine, Matti Lauri Kallio - Sovetryne [svefnpurrkur]?.
Purrkur Pillnikk - Gleði.
Dyrholm, Trine, Matti Lauri Kallio - Trommeslaven [Trommuþrællinn]?.
Dyrholm, Trine, Matti Lauri Kallio - Glor på vinduer.
Of Monsters and Men - Ordinary Creature.
TROGGS - Wild Thing.
Kings of Leon - To Space.
Kings of Leon - Arizona.