19:00
Flugur
Þokkabót, Hörður Torfason og Bergþóra Árnadótti

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Leikin eru nokkur lög, eftir erlenda og íslenska höfundar, þar sem ljóðaþýðingar Magnús Ásgeirssonar eru í forgrunni. Anna Pálína Árnadóttir flytur Söng Fríðu, sem er líka þekkt undir heitinu Í fyrsta sinn ég sá þig, Gunnar Guttormsson syngur lög sem heita Mansöngvarinn og Ameríkubréf, Einsöngvarakvartettinn syngur Kvæði um einn kóngsins lausamann, Lónlí blú bojs syngja Laugardagskvöld á Gili, Bubbi Morthens flytur eigin lög við kvæðin Eins og gengur og Bólivar, Páll Óskar Hjálmtýsson syngur Enska manvísu frá 14. öld, Ólafur Þórarinsson syngur eigið lag við kvæðið Kapellan, Sigurboginn flytur lag Sigurðar J. Grétarssonar við kvæðið Regla og Lítið eitt syngja kvæðið Konungurinn í Thule.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Í þættinum hljómar tónlist af fyrstu plötum þjóðlagasveitarinnar Þokkabótar og söngvaskáldanna Harðar Torfasonar og Bergþóru Árnadóttur. Þokkabót flytur lögin Litlir kassar, Veislusöngur, Sveinbjörn Egilson og Möwekvæði. Hörður Torfason flytur lögin Þú ert sjálfur Guðjón, Kveðið eftir vin minn, Ég leitaði blárra blóma og Jesú Kristur og ég. Bergþóra Árnadóttir flytur lögin Þorlákshafnarvegurinn, Ráðið, Gott áttu veröld og Verkamaður.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 44 mín.
e
Endurflutt.
,