22:10
Mannlegi þátturinn
Lífið er kynlíf, vinkill frá Guðjóni og Natasha S lesandinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Lífið er kynlíf er heiti á bók sem kom út í ágúst og er handbók kynfræðings um langtímasambönd. Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur og hjúkrunarfræðingur segir að erfiðleikar í kynlífinu geta orðið banabiti sambanda sem að öðru leyti eru farsæl og hamingjurík. Hún segir að þessir erfiðleikar stafa hins vegar alltof oft af þekkingarleysi. Á undanförnum árum og áratugum hafa rannsóknir og meðferðareynsla kynfræðinga leitt fram aðferðir og ráð sem nýtast öllum við að koma kynlífinu í betra lag. Áslaug kom í þáttinn í dag.

Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn lagði Guðjón vinkilinn við ferðalög og góðan félagsskap.

Lesandi vikunnar í þetta sinn var Natasha S. rithöfundur og þýðandi. Hún hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir fyrstu bók sína, Máltaka á stríðstímum. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina.

Natasha talaði um eftirfarandi bækur:

Chernobyl bænin e. Svetlana Aleksievits

Horsesoup e. Vladimir Sorokin

Wound e. Oksana Vasyakina

Eden e. Auði Övu Ólafsdóttur

Tónlist í þættinum

Saga farmannsins / Óðinn Valdimarsson (Marty Robbins og Jón Sigurðsson)

Haustkvöld í skógi / Gísli Magnason (Steingrímur M. Sigfússon)

Sveitapiltsins draumur / Hljómar (John Philips, Michelle Gilliam og Ómar Ragnarsson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 51 mín.
e
Endurflutt.
,