06:50
Morgunvaktin
Mikilvægast að verja kaupmátt

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Í fyrsta hluta þáttarins var fjallað stuttlega um Barnamenningarhátíðina Púkann sem hefst á Vesfjörðum í dag og stendur í tíu daga. Skúli Gautason, menningarfulltrúi Vestfjarðastofu, sagði frá.

Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, ræddi um ástand og horfur í samfélaginu. Verkalýðsfélögin vinna að kröfugerðum fyrir komandi kjaraviðræður. Finnbjörn telur mikilvægast að verja kaupmátt launafólks en hann hefur rýrnað mjög á síðustu misserum með aukinni verðbólgu og vaxtahækkunum.

Björn Malmquist fjallaði um stjórnmál í Evrópu í spjalli frá Brussel. Fyrir dyrum standa kosningar í Póllandi og Slóvakíu og enn hefur ekki tekist að mynda ríkisstjórn á Spáni eftir kosningarnar þar í júlí. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins flytur stefnuræðu á miðvikudag.

Í síðasta hluta þáttarins var fjallað um staðla. Hægt er að kaupa og taka upp staðla fyrir hitt og þetta í flestri starfsemi samfélagsins og tryggja þar með að bestu leiðir séu farnar við ákvarðanatöku og framkvæmd. Til dæmis eru til staðlar gegn mútum og annarri spillingu. Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs, var gestur.

Tónlist:

Bátarnir á firðinum - Haukur Morthens,

Hann Tumi fer á fætur - Björgvin Halldórsson,

Sagan af Sigga - Ragnheiður Gröndal,

Minkurinn í hænsnakofanum - Ómar Ragnarsson,

Ég ætla að mála allan heiminn elsku mamma - Kristín Lilliendahl.

Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 44 mín.
,