17:03
Lestin
Terminal X, McDonald's á Íslandi, Ásdís María

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Við heimsækjum lítið sýningarrými sem stendur við Strandgötu í Hafnarfirði, Litla Gallerý. Þar taka á móti okkur Olivia Kwok, Borghildur Indriðadóttir og Freyja Eilíf en þær eru aðstandendur sýningarinnar Terminal X Tangibility and Waves - áþreifanleiki og bylgjur sem opnaði þann 7. september síðastliðinn.

Anna Marsibil Clausen gerði fjögurra þátta seríu um sögu McDonalds, skyndibitakeðjunnar, hér á landi, árið 2019, þegar 10 ár voru liðin frá því að síðasti BicMacinn var framreiddur. Nú eru liðin 30 ár frá því að Davíð Oddson beit í fyrsta BicMacinn, við opnun staðarins í Skeifunni, og að því tilefni flytjum við seríuna Mc'Blessi Ísland á ný.

Steindór Grétar Jónsson ræðir við tónlistarkonuna Ásdísi Maríu Viðarsdóttur sem hefur gert það gott í Þýskalandi og víðar upp á síðkastið. Þau ræða meðal annars starf lagahöfundarins en Ásdís María hefur samið fyrir nokkrar af þekktustu poppstjörnum í heimi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 54 mín.
,