
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Bolli Pétur Bollason flytur.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Í fyrsta hluta þáttarins var fjallað stuttlega um Barnamenningarhátíðina Púkann sem hefst á Vesfjörðum í dag og stendur í tíu daga. Skúli Gautason, menningarfulltrúi Vestfjarðastofu, sagði frá.
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, ræddi um ástand og horfur í samfélaginu. Verkalýðsfélögin vinna að kröfugerðum fyrir komandi kjaraviðræður. Finnbjörn telur mikilvægast að verja kaupmátt launafólks en hann hefur rýrnað mjög á síðustu misserum með aukinni verðbólgu og vaxtahækkunum.
Björn Malmquist fjallaði um stjórnmál í Evrópu í spjalli frá Brussel. Fyrir dyrum standa kosningar í Póllandi og Slóvakíu og enn hefur ekki tekist að mynda ríkisstjórn á Spáni eftir kosningarnar þar í júlí. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins flytur stefnuræðu á miðvikudag.
Í síðasta hluta þáttarins var fjallað um staðla. Hægt er að kaupa og taka upp staðla fyrir hitt og þetta í flestri starfsemi samfélagsins og tryggja þar með að bestu leiðir séu farnar við ákvarðanatöku og framkvæmd. Til dæmis eru til staðlar gegn mútum og annarri spillingu. Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs, var gestur.
Tónlist:
Bátarnir á firðinum - Haukur Morthens,
Hann Tumi fer á fætur - Björgvin Halldórsson,
Sagan af Sigga - Ragnheiður Gröndal,
Minkurinn í hænsnakofanum - Ómar Ragnarsson,
Ég ætla að mála allan heiminn elsku mamma - Kristín Lilliendahl.
Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Útvarpsfréttir.

07:30

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Mark Eldred

08:30

Útvarpsfréttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.

Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Fjórði þáttur með lögum Jóhanns G. Jóhannssonar.
Þau sem flytja lögin eru Stefán Hilmarsson, Ruth Reginalds, Bjarki Tryggvason, Pálmi Gunnarsson og Stjórnin.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Útvarpsfréttir.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Lífið er kynlíf er heiti á bók sem kom út í ágúst og er handbók kynfræðings um langtímasambönd. Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur og hjúkrunarfræðingur segir að erfiðleikar í kynlífinu geta orðið banabiti sambanda sem að öðru leyti eru farsæl og hamingjurík. Hún segir að þessir erfiðleikar stafa hins vegar alltof oft af þekkingarleysi. Á undanförnum árum og áratugum hafa rannsóknir og meðferðareynsla kynfræðinga leitt fram aðferðir og ráð sem nýtast öllum við að koma kynlífinu í betra lag. Áslaug kom í þáttinn í dag.
Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn lagði Guðjón vinkilinn við ferðalög og góðan félagsskap.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var Natasha S. rithöfundur og þýðandi. Hún hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir fyrstu bók sína, Máltaka á stríðstímum. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina.
Natasha talaði um eftirfarandi bækur:
Chernobyl bænin e. Svetlana Aleksievits
Horsesoup e. Vladimir Sorokin
Wound e. Oksana Vasyakina
Eden e. Auði Övu Ólafsdóttur
Tónlist í þættinum
Saga farmannsins / Óðinn Valdimarsson (Marty Robbins og Jón Sigurðsson)
Haustkvöld í skógi / Gísli Magnason (Steingrímur M. Sigfússon)
Sveitapiltsins draumur / Hljómar (John Philips, Michelle Gilliam og Ómar Ragnarsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón hefur Hrafnkell Lárusson, sagnfræðingur og nýdoktor við Háskóla Íslands.

Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Ekkert neðansjávareftirlit var í nærri þrjá mánuði með sjókvínni í Patreksfirði áður en tvö göt komu í ljós í lok ágúst. Nærri allir eldislaxarnir sem fundust í ám og Hafrannsóknastofnun hefur greint, komu úr götóttu kvínni. Fundur um málið var í matvælaráðuneytinu fyrir hádegi.
Björgunarfólk frá fjórum löndum er tekið til starfa til Marokkó vegna jarðskjálftans á föstudagskvöld. Enn hefur ekki tekist að ná til sumra allra þorpa sem illa urðu úti. Hátt í 2.500 hafa fundist látnir.
Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá í umfangsmiklu skattsvikamáli sem oftast er kennt við félagið Sæmark Sjávarafurðir og eiganda þess. Upphaf þess má rekja til Panamaskjalanna.
Formaður Kennararsambandsins segir að draga verði lærdóm af því þegar viðkvæmar persónuupplýsingar nemenda í Lágafellsskóla fóru á samfélagsmiðla en hann telur að skólinn hafi brugðist rétt við.
Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, er á leið til Rússlands til fundar við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Hann hefur ekki farið úr landi í rúm fjögur ár.
Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar segir námsefni í kynfræðslu, sem vakið hefur athygli á samfélagsmiðlum og sætt harðri gagnrýni, sett fram til að sporna gegn áhrifum kláms.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Listaverk sem talin eru fölsuð og eignuð merkustu listamönnum þjóðarinnar, ganga kaupum og sölum hér á landi. Verk sem sögð eru nýr angi af hinu svokallaða stóra málverkafölsunarmáli hafa nú komið fram í dagsljósið. Þau hafa meira að segja komist alla leið upp á veggi Listasafns Íslands, þar sem eitt þeirra hangir í dag. Þóra Tómasdóttir, nýr umsjónarmaður Þetta helst, fjallar um fölsuð málverk í þjóðareign í þessum fyrsta þætti og heldur áfram umfjöllun sinni næstu daga. Samsetning og tæknivinnsla er í höndum Sunnu Valgerðardóttur.

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Það er ljóst að jarðskjálftinn stóri sem varð í Marokkó fyrir helgi olli miklu tjóni. Meira en 2000 eru látin og þúsundir slösuðust. Byggingar hrundu, vegir fóru í sundur, skriður féllu og nú er allt kapp lagt á að bjarga fólki. Við ætlum að ræða við Kristínu Jónsdóttur jarðskjálftafræðing um þá krafta sem voru þarna að verki.
Vegagerðin hefur líklega aldrei verið betur tækjum búin en nú. Í sumar kom ný sending af alls konar afar sérhæfðum tækjum sem eiga að gera stofnuninni betur kleift að meta ástand vega og viðhaldsþörf. Þar á meðal er nýtt falllóð, jarðsjárdróni og kúlnakvörn. Birkir Hrafn Jóakimsson, forstöðumaður stoðdeildar Vegagerðarinnar, segir okkur frá tækjakosti í skemmu og á rannsóknarstofu Vegagerðarinnar í Suðurhraunin í Garðabæ.
Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV til okkar. Hún ætlar að dusta rykið af 70 ára gamalli upptöku úr óskalagaþættinum ?Þetta vil ég heyra? þar sem Gunnar Thoroddsen var gestur.

Útvarpsfréttir.
Í þættinum verður ferðast á fáfarnar en áhugaverðar slóðir vítt og breitt um veröldina. Saga hvers staðar verður rakin og tónlist tengd honum leikin. Í hverjum þætti verður rætt við fólk sem hefur ferðast um viðkomandi land og það segir frá þeim áhrifum sem það varð fyrir af náttúru og menningu. Netfang þáttarins: <a href="mailto:[email protected]">[email protected]</a>
Umsjón Magnús R. Einarsson. Þættirnir eru einnig á Hlaðvarpi Rúv <a href="http://www.ruv.is/podcast"> HLAÐVARP RÚV</a>
Í þættinum er ferðast á fáfarnar en áhugaverðar slóðir vítt og breitt um veröldina. Saga hvers staðar er rakin og tónlist tengd honum leikin. Í hverjum þætti er rætt við fólk sem hefur ferðast um viðkomandi land og það segir frá þeim áhrifum sem það varð fyrir af náttúru og menningu.
Ingunn Anna Jónasdóttir, kennari, hefur búið og dvalið í hinum ýmsu ríkjum Afríku um margra ára skeið. Undanfarin 3 ár í Sierra Leone. Hún segir af upplifun sinni og starfi hjá einni fátækustu þjóð heims, sem er fyrst nú að rétta úr kútnum eftir hörmulega 10 ára borgarastyrjöld.

Útvarpsfréttir.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Í þessum fyrsta þætti er fjallað um tvennt sem má vel tengja saman; Skáldskapur rithöfunda sem búa ekki í sínu fæðingarlandi og skrifa jafnvel verk sín ekki á sínu móðurmáli. Á Íslandi hafa nýir vindar borist um bókmenntalífið á undanförnum árum með tilkomu æ fleiri skálda af erlendum uppruna sem fest hafa hér rætur og yrkja bæði á íslensku og öðrum málum. Við fjöllum um þessa þróun og lítum inn á ljóðasamkomur sem hófu göngu sína í sumar, Reykjavík Poetics. Þá förum við líka til meginlands Evrópu og skoðum feril skáldsagnarisans Milan Kundera sem féll frá á þessu ári og hans flóknu tengsl við sínar heimaslóðir. Auk þess verður vöngum velt yfir nafni þáttarins og viðhorfi fólks til bóka og lesturs í gegnum tíðina.
Viðmælendur: Jón Karl Helgason, Friðrik Rafnsson, Mao Alheimsdóttir, Natasha S. og Kjartan Már Ómarsson.
Umsjónarmaður: Jóhannes Ólafsson.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Þegar tappari pálmavínsdrykkjumanns fellur óvænt frá leggur drykkjumaðurinn í leiðangur til að hafa uppi á honum í Dauðramannaþorpinu. Svo hljóðar efnislýsing bókarinnar Pálmavínsdrykkjumaðurinn eftir nígeríska rithöfundinn Amos Tutuola sem kom út í íslenskri þýðingu hjá Angústúru á dögunum. En bókin er frá miðri síðustu öld og að öllum líkindum fyrsta afríska skáldsagan á ensku sem kom út utan heimalandsins. Við ræðum við Janus Chr. þýðanda bókarinnar í þætti dagsins.
Nýverið kom út þrítugasta og fyrsta bókin í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar og kallast hún Meinlætahnútar og mýkjandi plástrar, lækningaiðkanir Jóns Bergsted í Húnavatnssýslu,1828-1838. Jón lauk formlegri skólagöngu sinni við fermingaraldurinn og var því algjörlega sjálflærður læknir. Í dagbók hans er að finna lýsingar á þeim sjúkdómum sem hrjáðu yfir 400 nafngreinda sjúklinga í sýslunni og þeim úrræðum sem Jón beitti. Við kynnum okkur Jón og lækningaraðferðir hans í þætti dagsins.
En þátturinn hefst á rýni Evu Halldóru Guðmundsdóttur á Ást Fedru sem frumsýnt var um liðna helgi í Þjóðleikhúsinu.

Útvarpsfréttir.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Við heimsækjum lítið sýningarrými sem stendur við Strandgötu í Hafnarfirði, Litla Gallerý. Þar taka á móti okkur Olivia Kwok, Borghildur Indriðadóttir og Freyja Eilíf en þær eru aðstandendur sýningarinnar Terminal X Tangibility and Waves - áþreifanleiki og bylgjur sem opnaði þann 7. september síðastliðinn.
Anna Marsibil Clausen gerði fjögurra þátta seríu um sögu McDonalds, skyndibitakeðjunnar, hér á landi, árið 2019, þegar 10 ár voru liðin frá því að síðasti BicMacinn var framreiddur. Nú eru liðin 30 ár frá því að Davíð Oddson beit í fyrsta BicMacinn, við opnun staðarins í Skeifunni, og að því tilefni flytjum við seríuna Mc'Blessi Ísland á ný.
Steindór Grétar Jónsson ræðir við tónlistarkonuna Ásdísi Maríu Viðarsdóttur sem hefur gert það gott í Þýskalandi og víðar upp á síðkastið. Þau ræða meðal annars starf lagahöfundarins en Ásdís María hefur samið fyrir nokkrar af þekktustu poppstjörnum í heimi.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Björgunarsveitum í Marokkó gengur seint að koma til aðstoðar fólki sem missti allt í jarðskjálftanum á föstudagskvöld. Hátt í 2.700 hafa fundist látin.
Höfuðkúpubein úr manni fundust í fyrri viku undir gólffjölum í risi Ráðherrabústaðarins við Tjarnargötu, þar sem endurbætur standa yfir. Margrét Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og fyrrverandi Þjóðminjavörður, gerir ráð fyrir að beinunum hafi verið komið fyrir í húsinu eftir að það var flutt frá Önundarfirði, þar sem það stóð upphaflega.
Geðhjálp segir að því fari fjarri að fatlað fólk sé ofþjónustað. Fjármálaráðherra sendi fötluðu fólki kaldar kveðjur þegar hann segir að skoða þurfi hvort því sé veitt þjónusta umfram það sem lög bjóða.
Setja á fullkomna gasmæla í hvern þéttbýliskjarna á Reykjanesskaga þar sem búast má við fleiri eldgosum á skaganum. Verið er að bæta viðbúnað Umhverfisstofnunar við eldgosum, í stað þess að redda mælum þegar gos er hafið.
Formaður deildar sauðfjárbænda segir að göngur og réttir hafi gengið vel í haust en hefur áhyggjur af því að fleiri bændur bregði búi. Landbúnaðurinn hefur ekki aðgang að sama fé og fjárfestar sem kaupi upp jarðir.
Laufey Lín Jónsdóttir tónlistarkona hefur slegið met Lady Gaga og Tonys Bennett á streymisveitunni Spotify í flokki djasstónlistar.
Þing verður sett á morgun. Fjármálaráðherra hefur boðað miklar aðhaldsaðgerðir. Í vor og sumar hefur mikið verið rætt um ágreining eða núning milli stjórnarflokkanna og þá helst Sjálfstæðisflokksins og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Eva Heiða Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir alltaf erfitt að sjá fyrir hvað veldur helst ágreiningi en útlendingamálin og boðaður niðurskurður í fjárlögum sé til þess líklegur.
Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred. Útsendingu stjórnaði Annalísa Hermannsdóttir.

Í Krakkakiljunni er fjallað um barnabækur úr öllum áttum, bæði gamlar og nýjar. Fulltrúar bókaormaráðs KrakkaRÚV koma í heimsókn til okkar, segja frá og spyrja höfundinn út í bókina.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Sigyn Blöndal
Í Krakkakiljunni í dag ætlar rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir að segja okkur frá bókinni sinni Herra Bóbó, Amelía og ættbrókin. Svo fræðumst við um bandaríska barnabókahöfundinn Dr. Seuss.
Umsjón: Ísabel Dís Sheehan og Sölvi Þór Jörundsson Blöndal

Veðurstofa Íslands.

Dánarfregnir.

Hljóðritanir frá sumartónlistarhátíðum víðs vegar að úr Evrópu.
Hljóðritun frá tónleikum sönghópsins The King's Singers sem fram fóru í Concertgebouw-tónlistarhúsinu í Amsterdam, 20. júlí s.l.
Tónleikarnir báru yfirskrifitna „Songbirds" og á efnisskrá eru verk innblásin af söngfuglum eftir György Ligeti, Franz Schubert, Maurice Ravel ofl og útsetningar á lögum eftir söngfugla á borð við Fleetwood Mac, Paul McCartney og Freddie Mercury.
Umsjón hefur Elísabet Indra Ragnarsdóttir.

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Það er ljóst að jarðskjálftinn stóri sem varð í Marokkó fyrir helgi olli miklu tjóni. Meira en 2000 eru látin og þúsundir slösuðust. Byggingar hrundu, vegir fóru í sundur, skriður féllu og nú er allt kapp lagt á að bjarga fólki. Við ætlum að ræða við Kristínu Jónsdóttur jarðskjálftafræðing um þá krafta sem voru þarna að verki.
Vegagerðin hefur líklega aldrei verið betur tækjum búin en nú. Í sumar kom ný sending af alls konar afar sérhæfðum tækjum sem eiga að gera stofnuninni betur kleift að meta ástand vega og viðhaldsþörf. Þar á meðal er nýtt falllóð, jarðsjárdróni og kúlnakvörn. Birkir Hrafn Jóakimsson, forstöðumaður stoðdeildar Vegagerðarinnar, segir okkur frá tækjakosti í skemmu og á rannsóknarstofu Vegagerðarinnar í Suðurhraunin í Garðabæ.
Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV til okkar. Hún ætlar að dusta rykið af 70 ára gamalli upptöku úr óskalagaþættinum ?Þetta vil ég heyra? þar sem Gunnar Thoroddsen var gestur.

Skáldsaga eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur sem kom út árið 1990. Sagan segir frá Nínu, glæsilegri nútímakonu sem vakir yfir deyjandi móður sinni. Sögusviðið eru Vestfirðir og í verkinu er horfið til fortíðar í leit að lifsgildum. Fríða hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 1990 fyrir skáldsöguna og Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1992.
Margrét Helga Jóhannsdóttir les.
(Áður á dagskrá 1999)

Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Lífið er kynlíf er heiti á bók sem kom út í ágúst og er handbók kynfræðings um langtímasambönd. Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur og hjúkrunarfræðingur segir að erfiðleikar í kynlífinu geta orðið banabiti sambanda sem að öðru leyti eru farsæl og hamingjurík. Hún segir að þessir erfiðleikar stafa hins vegar alltof oft af þekkingarleysi. Á undanförnum árum og áratugum hafa rannsóknir og meðferðareynsla kynfræðinga leitt fram aðferðir og ráð sem nýtast öllum við að koma kynlífinu í betra lag. Áslaug kom í þáttinn í dag.
Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn lagði Guðjón vinkilinn við ferðalög og góðan félagsskap.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var Natasha S. rithöfundur og þýðandi. Hún hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir fyrstu bók sína, Máltaka á stríðstímum. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina.
Natasha talaði um eftirfarandi bækur:
Chernobyl bænin e. Svetlana Aleksievits
Horsesoup e. Vladimir Sorokin
Wound e. Oksana Vasyakina
Eden e. Auði Övu Ólafsdóttur
Tónlist í þættinum
Saga farmannsins / Óðinn Valdimarsson (Marty Robbins og Jón Sigurðsson)
Haustkvöld í skógi / Gísli Magnason (Steingrímur M. Sigfússon)
Sveitapiltsins draumur / Hljómar (John Philips, Michelle Gilliam og Ómar Ragnarsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Við heimsækjum lítið sýningarrými sem stendur við Strandgötu í Hafnarfirði, Litla Gallerý. Þar taka á móti okkur Olivia Kwok, Borghildur Indriðadóttir og Freyja Eilíf en þær eru aðstandendur sýningarinnar Terminal X Tangibility and Waves - áþreifanleiki og bylgjur sem opnaði þann 7. september síðastliðinn.
Anna Marsibil Clausen gerði fjögurra þátta seríu um sögu McDonalds, skyndibitakeðjunnar, hér á landi, árið 2019, þegar 10 ár voru liðin frá því að síðasti BicMacinn var framreiddur. Nú eru liðin 30 ár frá því að Davíð Oddson beit í fyrsta BicMacinn, við opnun staðarins í Skeifunni, og að því tilefni flytjum við seríuna Mc'Blessi Ísland á ný.
Steindór Grétar Jónsson ræðir við tónlistarkonuna Ásdísi Maríu Viðarsdóttur sem hefur gert það gott í Þýskalandi og víðar upp á síðkastið. Þau ræða meðal annars starf lagahöfundarins en Ásdís María hefur samið fyrir nokkrar af þekktustu poppstjörnum í heimi.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson og Hafdís Helga Helgadóttir
7:15 - Austurfrétt greindi frá því á dögunum að ekkert fjarskiptafyrirtæki hafi sýnt því áhuga að koma á ljósleiðarasambandi í Stöðvarfirði sökum fámennis. Íbúafundur var haldinn í bænum í síðustu viku í tilefni þess að eitt ár er liðið síðan Stöðvarfjörður hóf þátttöku í byggðaverkefninu Brotthættar byggðir undir heitinu Sterkur Stöðvarfjörður en þar gafst íbúum færi á að tjá sig um það sem gengið hefur á síðan þá. Við ræðum við Valborgu Ösp Á. Warén, verkefnisstjóra, um fundinn og lélegt netsamband í firðinum.
7:30 - Á þriðja þúsund létust í jarðskjálftanum sem reið yfir Marokkó um helgina. Björgunarsveitir vinna í kapphlaupi við tímann að bjarga eftirlifendum úr rústum þorpa og bæja í Atlasfjöllum. Við ræðum við Jón Bjarna Steinsson, veitingamann, sem er staddur í Marrakesh.
7.45- Haustið er tími nýrra dagbóka, strokleðra og háleitra markmiða. En hvernig búum við okkur sem best undir langhlaupið sem veturinn framundan er? Hvernig höldum við þetta sem best út og náum markmiðum okkar? Inga Þórisdóttir Markþjálfi kíkir til okkar.
8.05 Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands kemur til okkar. Við ætlum jafnt að ræða við hann um mál nemenda og aðstandenda í Lágafellsskóli þar sem viðkvæmar og meiðandi persónuupplýsingar komust í hendur nemenda sem láku þeim á samfélagsmiðla. Margar spurningar hafa vaknað um allt frá persónuvernd barna til símanotkunnar nemenda. Við ætlum líka að ræða hinseginfræðslu i grunnskólum við hann.
8:30 - Heimir Már Pétursson, fréttamaður, verður gestur okkar eftir fréttayfirlitið hálf níu. Hann hefur fært rök fyrir því að koma á fót neðanjarðarlestarkerfi í stað borgarlínu.
8:45 - Íþróttir vikunnar verða á sínum stað. Nóg að frétta þaðan að vanda. Rubiales sagði til að mynda af sér sem forseti spænska knattspyrnusambandsins. Við ræðum það og margt fleira í lok þáttar við Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamann.
Lagalisti:
BRÍET & ÁSGEIR - Venus.
LAUFEY - California and Me.
Birkir Blær - Thinking Bout You.
PÁLMI GUNNARSSON - Hvers vegna varstu ekki kyrr.
Moses Hightower - Sjáum hvað setur.
ELTON JOHN - Goodbye Yellow Brick Road.
VÖK - Headlights.

Útvarpsfréttir.

07:30

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Mark Eldred

08:30

Útvarpsfréttir.

Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
Morgunverkin 11. september 2023
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson
Tónlist frá útsendingarlogg 2023-09-11
BJÖRK OG DAVID ARNOLD - Play Dead.
Rúnar Þór Pétursson - Kóngurinn vetur.
MANIC STREET PREACHERS - A Design for Life.
ELÍN HALL - Rauðir draumar.
CALEB KUNLE - All in your head.
Minogue, Kylie - Tension [Radio Edit] [Super Clean].
POST MALONE - Enough Is Enough.
SIA - Chandelier.
JÚNÍUS MEYVANT - Color Decay.
Hreimur - Þar sem himinn ber við haf.
SMITHS - Ask.
MUGISON - Stóra stóra ást.
VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON, VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON - Þú átt mig ein.
PETER GABRIEL - Sledgehammer.
BLUR - Barbaric.
Bríet - Esjan.
SOFFÍA BJÖRG - Promises.
HAPPY MONDAYS - Step On.
PATRi!K & LUIGI - Skína.
THE KILLERS, THE KILLERS - Your Side of Town.
NEW ORDER, NEW ORDER - True Faith.
ROMY - The Sea.
OLIVIA NEWTON-JOHN - Magic.
Una Torfadóttir - Þú ert stormur (Pride lagið 2023).
Lada Sport - The world is a place for kids going far.
GEORGE MICHAEL & MARY J. BLIGE - As.
Bubbi Morthens - Þínir löngu grönnu fingur.
LÓN - Cold Crisp Air.
JOHN GRANT - GMF.
TAME IMPALA - The Less I Know The Better.
LAUFEY - California and Me.
DAVID BOWIE & PAT METHENY - This Is Not America.
Rolling Stones, The - Angry.
RED RIOT - Got This Thing.
JÓNFRÍ - Andalúsía.
SYKURMOLARNIR - Ammæli.
THE DIN PEDALS - Ashtray.
BENNI HEMM HEMM & URÐUR & KÖTT GRÁ PJÉ - Á óvart.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Ekkert neðansjávareftirlit var í nærri þrjá mánuði með sjókvínni í Patreksfirði áður en tvö göt komu í ljós í lok ágúst. Nærri allir eldislaxarnir sem fundust í ám og Hafrannsóknastofnun hefur greint, komu úr götóttu kvínni. Fundur um málið var í matvælaráðuneytinu fyrir hádegi.
Björgunarfólk frá fjórum löndum er tekið til starfa til Marokkó vegna jarðskjálftans á föstudagskvöld. Enn hefur ekki tekist að ná til sumra allra þorpa sem illa urðu úti. Hátt í 2.500 hafa fundist látnir.
Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá í umfangsmiklu skattsvikamáli sem oftast er kennt við félagið Sæmark Sjávarafurðir og eiganda þess. Upphaf þess má rekja til Panamaskjalanna.
Formaður Kennararsambandsins segir að draga verði lærdóm af því þegar viðkvæmar persónuupplýsingar nemenda í Lágafellsskóla fóru á samfélagsmiðla en hann telur að skólinn hafi brugðist rétt við.
Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, er á leið til Rússlands til fundar við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Hann hefur ekki farið úr landi í rúm fjögur ár.
Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar segir námsefni í kynfræðslu, sem vakið hefur athygli á samfélagsmiðlum og sætt harðri gagnrýni, sett fram til að sporna gegn áhrifum kláms.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Umsjón: Siggi Gunnars & Lovísa Rut
Siggi Gunnars og Lovísa Rut voru landamæraverðir í Popplandi og þar var mikið að vanda, allskonar tónlist og tónlistarfréttir, nýtt og gamalt í góðu blandi.
VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON - Í Rúmi Og Tíma.
Stone, Angie - Wish I didn't miss you (radio edit).
JALEN NGONDA - Come Around and Love Me.
Marvin Gaye - I Want You.
Teitur Magnússon - Vinur vina minna.
SYSTUR - Furðuverur.
AVICII - Hey Brother.
Oliver Anthony Music - Rich Men North of Richmond (Lyrics!).
HIPSUMHAPS - Hjarta.
THE BAMBOOS - Ex-Files.
SISTER SLEDGE - Thinking Of You.
Hreimur - Þar sem himinn ber við haf.
PÁLMI GUNNARSSON - Ég skal breyta heiminum.
LENNY KRAVITZ - Again.
Laufey - Promise.
MAMA CASS - Dream A Little Dream Of Me.
Raye - Worth It.
ÁSDÍS - Angel Eyes.
EMMSJÉ GAUTI - Klisja.
GOTYE - Somebody That I Used To Know.
DAVID GRAY - Babylon.
BRÍET & ÁSGEIR - Venus.
ÁRNÝ MARGRÉT - I went outside.
boygenius - Cool About It.
SKE - Julietta 2.
NANNA - How to start a Garden.
JESSIE J & B.O.B. - Price tag.
UXI - Take You Home.
THE BLACK KEYS - Howlin' For You.
DESTINY'S CHILD - Independent women - Part I.
RED RIOT - Got This Thing.
THE CLASH - Train In Vain.
Sigur Rós - Hoppipolla.
LANA DEL RAY - Say Yes to Heaven.
BILLIE EILISH - What Was I Made For.
JAMES BLAKE - Loading.
VALDIMAR - Yfirgefinn.
Bombay Bicycle Club - Diving (ft. Holly Humberstone).
PETER GABRIEL - Olive Tree.
Troye Sivan - Rush.
Dusty Springfield - Am I The Same Girl.
LAUFEY - From The Start.
JÚNÍUS MEYVANT - Color Decay.
ELÍN HALL - Er Nauðsynlegt að Skjóta Þá?

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Áherslur í kyn og hinsegin fræðslu í grunnskólum hafa vakið athygli undanfarið eftir að myndir af kennsluefni fóru á flug á samfélagsmiðlum og hafa sætt þar harðri gagnrýni. Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar segir námsefninu ætlað að sporna gegn áhrifum kláms. Kennsluefni þar sem BDSM hneigð er listuð með öðrum kynhneigðum og texta þar sem stendur :"þú átt þinn líkama og mátt taka myndir af honum en þarft þess alls ekki." er meðal þess sem vakið hefur hörð viðbrögð. Í gagnrýninni sem fram hefur komið er ekki gerður greinamunur á annars vegar kynfræðslu og hinsvegar hinseginfræðslu sem fram fer innan skólanna. Við ætlum að fá til okkar á eftir Tótlu I. Sæmundsdóttur fræðslustýru samtakanna 78 og fá hana til að greina þarna á milli, ræða við hana um aðkomu samtakanna að hinseginfræðslu í skólum og spyrja út í hvað það er sem þau eru að kenna í skólunum.
Samtökin Framvís sem eru samtök vísifjárfesta á Íslandi fengu nýverið KPMG til að gera skýrslu um jafnrétti í fjárfestingum sprotafyrirtækja en þau þróa flest lausnir og afurði byggðar á íslensku hugviti. Við athugum mátti sjá að frekar var fjárfest í karlateymum en kvennateymum en samtökin vilja sjá þetta breytast og að það sé jafnrétti í fjárfestingum sprotafyrirtækja. Ísland stendur sig þó betur en nágrannaþjóðir okkar en betur má ef duga skal.Við fáum til okkar Sigurð Arnljótsson en hann er stjórnarformaður Framvís til að segja okkur nánar frá þessari skýrslu og almenn um stöðu sprotafyrirtækja og fjárfestinga í greininni.
Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins ætlar að leggja fram frumvarp í haust þar sem að hún mun leggja til breytingar á greiðsluþátttöku hins opinbera vegna tæknifrjóvgana og ófrjósemisaðgerða. Við ætlum að heyra í Hildi á eftir og fá að heyra hvað það er sem hún mun leggja til í fyrirhuguðu frumvarpi.
íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta tekið gleði sína á ný því kaupmaðurinn á horninu skýtur aftur upp kollinum. Með komu Pikkoló sem er í raun sjálfbær þróun kaupmannsins getur fólk aftur nálgast vörur sínar skammt frá heimilum sínum sem hefur líka áhrif á umferðina. Ragna Margrét Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Pikkoló kemur til okkar í þáttinn og segir okkur betur frá.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tekur á móti Bosníu á Laugardalsvelli í kvöld í undankeppni EM 2024. Næstum tvö ár eru frá síðasta heimasigri Íslands á vellinum. Þá hefur liðið aðeins unnið tvo leiki á vellinum síðustu fjögur ár. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður kemur til okkar og hitar upp fyrir leikinn.
En við by

Útvarpsfréttir.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Björgunarsveitum í Marokkó gengur seint að koma til aðstoðar fólki sem missti allt í jarðskjálftanum á föstudagskvöld. Hátt í 2.700 hafa fundist látin.
Höfuðkúpubein úr manni fundust í fyrri viku undir gólffjölum í risi Ráðherrabústaðarins við Tjarnargötu, þar sem endurbætur standa yfir. Margrét Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og fyrrverandi Þjóðminjavörður, gerir ráð fyrir að beinunum hafi verið komið fyrir í húsinu eftir að það var flutt frá Önundarfirði, þar sem það stóð upphaflega.
Geðhjálp segir að því fari fjarri að fatlað fólk sé ofþjónustað. Fjármálaráðherra sendi fötluðu fólki kaldar kveðjur þegar hann segir að skoða þurfi hvort því sé veitt þjónusta umfram það sem lög bjóða.
Setja á fullkomna gasmæla í hvern þéttbýliskjarna á Reykjanesskaga þar sem búast má við fleiri eldgosum á skaganum. Verið er að bæta viðbúnað Umhverfisstofnunar við eldgosum, í stað þess að redda mælum þegar gos er hafið.
Formaður deildar sauðfjárbænda segir að göngur og réttir hafi gengið vel í haust en hefur áhyggjur af því að fleiri bændur bregði búi. Landbúnaðurinn hefur ekki aðgang að sama fé og fjárfestar sem kaupi upp jarðir.
Laufey Lín Jónsdóttir tónlistarkona hefur slegið met Lady Gaga og Tonys Bennett á streymisveitunni Spotify í flokki djasstónlistar.
Þing verður sett á morgun. Fjármálaráðherra hefur boðað miklar aðhaldsaðgerðir. Í vor og sumar hefur mikið verið rætt um ágreining eða núning milli stjórnarflokkanna og þá helst Sjálfstæðisflokksins og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Eva Heiða Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir alltaf erfitt að sjá fyrir hvað veldur helst ágreiningi en útlendingamálin og boðaður niðurskurður í fjárlögum sé til þess líklegur.
Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred. Útsendingu stjórnaði Annalísa Hermannsdóttir.

Létt tónlist af ýmsu tagi.
Umsjón: Rósa Birgitta Ísfeld.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Að venju er af nægu að taka af tónlist og við förum yfir nýjust útgáfur undanfarinna vikna á Kvöldvaktinni, meðal þeirra sem bjóða upp á nýtt efni að þessu sinni eru Laufey, Sigrid, DCFC, Killers, Spacestation, Ólafur Bjarki, Bakar ofl ofl.
Lagalistinn
LAUFEY - California and Me.
Björk Guðmundsdóttir Tónlistarm. - Alarm Call
SIGRID - The Hype.
PRIMAL SCREAM - Trippin on your love (feat. Haim).
DEATH CAB FOR CUTIE - An Arrow In The Wall (CHVRCHES Remix).
THE KILLERS - Your Side of Town.
FONTAINES D.C. - A Hero's Death.
Spacestation - Hver í fokkanum?.
THE DANDY WARHOLS - Get Off.
QUEENS OF THE STONE AGE - Paper Machete.
ÓLAFUR BJARKI - Malbik endar.
COCTEAU TWINS - Iceblink luck.
BRÍET & ÁSGEIR - Venus.
Pale Waves, Beach Weather - Unlovable (Lyrics!).
BAKAR - Alive!.
Colony House - Cannonballers.
STEREOLAB - Captain Easychord.
UXI - Take You Home.
Hopkins, Jon, Purity Ring dúó - Breathe this air (single version).
Chemical Brothers, The, Beck - Skipping Like A Stone [Single Edit].
Roosevelt - Rising (bonus track wav).
Chromeo, La Roux - Discoproof.
ROMY - The Sea.
STARDUST - Music sounds better with you.
PEGGY GOU - (It Goes Like) Nanana.
MADONNA - Borderline.
JÓNFRÍ - Andalúsía.
Hot Chip, Pinku, Yune - Fire of Mercy.
Roosevelt - Rising
PATRi!K & LUIGI - Skína.
THE KOLORS - ITALODISCO.
DJ Shadow - Ozone Scraper
Depeche Mode - Speak To Me [HI-LO Remix].
Wolf Alice hljómsveit - More Than This.
BLUR - Barbaric.
BELLE & SEBASTIAN - Nobody's Empire.
BEABADOOBEE - the way things go.
ELÍN HALL - Er nauðsynlegt að skjóta þá?.
Benni Hemm Hemm - Þú lýstir upp herbergið
Prins Póló - Fallegi smiðurinn
The Hives - Two Kinds of Trouble
Soft Play - Punk's Dead

Útvarpsfréttir.

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.

Tónlist að hætti hússins.