14:30
Talblaðran
Stríðsátök í Júgóslavíu
Talblaðran

Margir líta á myndasögur sem ódýrt uppfyllingarefni dagblaða eða afþreyingu barna og unglinga sem betur ættu að verja tíma sínum til annarra hluta. Þó má segja að teiknimyndir séu elsta þekkta tjáningarform mannkyns, líkt og sjá má af ævafornum hellaristum forfeðra okkar og -mæðra. Í Belgíu og Frakklandi hafa myndasögur meira að segja verið kallaðar „níunda listgreinin“.

Í þessum þáttum verður fjallað um myndasögur vítt og breitt. Í hverri viku kemur nýr þáttarstjórnandi og gerir grein fyrir eftirlætis bókaflokka sínum, höfundi eða einhverri af hinum ótalmörgum undirgreinum myndasögunnar.

Umsjón: Stefán Pálsson og Ragnar Egilsson.

Ásgeir H. Ingólfsson fjallar um myndasögur sem fjalla um stríðsátök í gömlu Júgóslavíu. Það má nefna sem dæmi The Fixer og Safe Area Goradze eftir Joe Sacco, Macedonia eftir Harvey Pekar og Regards From Serbia eftir Aleksandar Zograf.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
e
Endurflutt.
,