10:15
Bíll, við þurfum að ræða saman
Bíllinn er snilld
Bíll, við þurfum að ræða saman

Í þessari þáttaröð hættir Arnar með bílnum, eða allavega endurskoðar samband sitt við hann.

Þáttasería um ástarsambönd og sambandsslit, borgarskipulag og óreiðu, rúntinn, bílaþvott, tæknilega skynsemishyggju, sjálfstæði og ósjálfstæði.

Við getum ekki haldið áfram að treysta á bílinn sem aðal ferðamáta okkar. En af hverju er það svona erfitt? Ég elska bílinn. Ég veit ekki hvernig ég gæti lifað hér án hans, ég elska að keyra, ég næ tengingu við sjálfan mig og aðra í honum. Hann hreyfanleg rót í mínu lífi.

En bökkum aðeins. Hvernig varð þetta svona? Hvernig getur málmílát með vél og gúmmídekkjum orðið órjúfanlegur partur af sjálfi okkar og þjóð? Hvað gerist þegar draumkenndu hveitibrauðsdagar okkar með bílnum eru taldir? Þurfum við að kveðja bílinn alfarið eða getum við fundið jafnvægi í sambandi okkar sem þjónar báðum aðilum?

Þáttagerð: Arnar Geir Gústafsson og Snorri Rafn Hallsson.

Arnar fer til sálfræðings vegna sambandsörðugleika við bílinn. Þeir rekja hvernig þessi tenging mótast gegnum bílateppi í æsku og kynþokkafullra kappaksturstölvuleikja á unglingsárum. Arnar fer á puttunum austur fyrir fjall með manni sem elskar að gönna. Að lokum er fjallað um hvernig hin auma manneskja þróaðist í kentár og að lokum í Bílamanninn.

Þáttagerð: Arnar Geir Gústafsson og Snorri Rafn Hallsson.

Viðmælendur: Kristján Ýmir.

Höfundur og leikari Gönna-atriðis: Birnir Jón Sigurðsson.

Er aðgengilegt til 12. maí 2024.
Lengd: 42 mín.
,