• 00:04:40Staða flokkanna eftir kosningar
  • 00:22:53Brúðarbúningur með dramatíska sögu til sýnis

Kastljós

Þingmenn um niðurstöður sveitarstjórnarkosninga og brúðarbúningur frá 18.öld

Skýr hægri sveifla var í úrslitum kosninganna og Sjálfstæðisflokkurinn er með pálmann í höndunum í Reykjavík. En hvað segja niðurstöður kosninganna okkur um stöðu flokkanna á landsvísu? Og við hverju búast á næstu misserum? Gestir Kastljóss eru Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar og Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Íslenskur brúðarbúningur frá átjándu öld sem á sér mikla og dramatíska sögu er til sýnis á Þjóðminjasafninu. Sýningarstjóri segir búninginn vera hið heilaga gral íslenskrar menningarsögu. Við kynnum okkur söguna í lok þáttarins.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

18. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þættir

,