Á meðan ég man

2001-2005

Í þessum þætti er farið yfir árin 2001 til 2005. Hér sjáum við meðal annars brot af flutningi íslenska Eurovision lagsins Birta bíddu eftir mér, nokkrar frumlegar fréttir Magnúsar Hlyns Hreiðarssonar, Sverri Þór Sverrisson, eða Sveppa, hljóta verðlaun sem sjónvarpsmaður ársins á Edduverðlaununum þar sem hann heldur ræðu um hvernig var hægt kjósa hann oft á netinu, brot úr þættinum Bílasalan Bjallan og frétt um kattastríð í Reykjavík.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Frumsýnt

28. apríl 2011

Aðgengilegt til

12. feb. 2026
Á meðan ég man

Á meðan ég man

Á meðan ég man er íslensk þáttaröð sem gerð var í tilefni af 80 ára afmæli Ríkisútvarpsins árið 2010. Í hverjum þætti er stiklað yfir fimm ára tímabil í sögu Sjónvarpsins frá árunum 1966 til 2005. Í þáttunum er fréttum, atriðum úr skemmtiþáttum, viðtalsbrotum og tónlist frá þessum tímabilum blandað saman. Inn í þessa upprifjun fléttast viðtöl við fólkið sem annaðhvort var áberandi á tímabilinu eða kom við sögu í fréttunum sem rifjaðar eru upp. Umsjónarmaður er Guðmundur Gunnarsson og dagskrárgerð er í höndum Sigurðar Jakobssonar.

Þættir

,