Á meðan ég man

1991-1995

Í þessum þætti er farið yfir árin 1991 til 1995. Hér sjáum við meðal annars frétt um geimfar sem spáð hafði verið myndi lenda á Snæfellsjökli, umfjöllun um 50 ára lýðveldisafmælið 17. júní og hátíðarhöld á Þingvöllum og sjáum hljómsveitirnar Jet Black Joe, dönsk, Savanna Tríó, Todmobile, Borgardætur, Dolli og Dengsi og Spoon taka lagið.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Frumsýnt

26. apríl 2011

Aðgengilegt til

12. feb. 2026
Á meðan ég man

Á meðan ég man

Á meðan ég man er íslensk þáttaröð sem gerð var í tilefni af 80 ára afmæli Ríkisútvarpsins árið 2010. Í hverjum þætti er stiklað yfir fimm ára tímabil í sögu Sjónvarpsins frá árunum 1966 til 2005. Í þáttunum er fréttum, atriðum úr skemmtiþáttum, viðtalsbrotum og tónlist frá þessum tímabilum blandað saman. Inn í þessa upprifjun fléttast viðtöl við fólkið sem annaðhvort var áberandi á tímabilinu eða kom við sögu í fréttunum sem rifjaðar eru upp. Umsjónarmaður er Guðmundur Gunnarsson og dagskrárgerð er í höndum Sigurðar Jakobssonar.

Þættir

,