Á meðan ég man

1996-2000

Í þessum þætti er farið yfir árin 1996 til 2000 og við sjáum meðal annars frétt um fyrstu sprengingu fyrir Hvalfjarðargöngum, brot úr þættinum Heilsuhorn Gauja litla, frétt um 2000 vandann, brot úr unglingaþættinum Ó, frétt um Harald Örn Ólafsson sem komst fyrstu Íslendinga upp á Norðurpólinn, brot úr þættinum Kolkrabbinn og fleira.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Frumsýnt

27. apríl 2011

Aðgengilegt til

12. feb. 2026
Á meðan ég man

Á meðan ég man

Á meðan ég man er íslensk þáttaröð sem gerð var í tilefni af 80 ára afmæli Ríkisútvarpsins árið 2010. Í hverjum þætti er stiklað yfir fimm ára tímabil í sögu Sjónvarpsins frá árunum 1966 til 2005. Í þáttunum er fréttum, atriðum úr skemmtiþáttum, viðtalsbrotum og tónlist frá þessum tímabilum blandað saman. Inn í þessa upprifjun fléttast viðtöl við fólkið sem annaðhvort var áberandi á tímabilinu eða kom við sögu í fréttunum sem rifjaðar eru upp. Umsjónarmaður er Guðmundur Gunnarsson og dagskrárgerð er í höndum Sigurðar Jakobssonar.

Þættir

,