Á meðan ég man

1986-1990

Í þessum þætti er farið yfir árin 1986 til 1990 og sjáum við meðal annars Magnús L. Sveinsson klippa á 76 ára gamalt ölbann á Íslandi, frétt um neyðarlendingu Ómars Ragnarssonar á Esjunni, krýningu Lindu Pétursdóttur sem Ungfrú Alheimur og heimkomu hennar til Vopnafjarðar, frétt um dagmömmu sem vann 25 milljónir í happdrætti og lengstu afmælistertu sem um getur á 200 ára afmæli Reykajvíkurborgar.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Frumsýnt

23. apríl 2011

Aðgengilegt til

12. feb. 2026
Á meðan ég man

Á meðan ég man

Á meðan ég man er íslensk þáttaröð sem gerð var í tilefni af 80 ára afmæli Ríkisútvarpsins árið 2010. Í hverjum þætti er stiklað yfir fimm ára tímabil í sögu Sjónvarpsins frá árunum 1966 til 2005. Í þáttunum er fréttum, atriðum úr skemmtiþáttum, viðtalsbrotum og tónlist frá þessum tímabilum blandað saman. Inn í þessa upprifjun fléttast viðtöl við fólkið sem annaðhvort var áberandi á tímabilinu eða kom við sögu í fréttunum sem rifjaðar eru upp. Umsjónarmaður er Guðmundur Gunnarsson og dagskrárgerð er í höndum Sigurðar Jakobssonar.

Þættir

,