Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Í dag er 17. maí - þjóðhátíðardagur Norðmanna - og það er mánuður í þjóðhátíðardag okkar Íslendinga; 17. júní. Þá verða 80 ár liðin frá stofnun lýðveldisins. Afmælinu verður fagnað með ýmsum hætti á árinu og þegar hefur eitt og annað verið gert. Margrét Hallgrímsdóttir heldur utan um afmælishaldið á vegum forsætisráðuneytisins og sagði okkur frá því sem stendur.
Hvítasunnan er fram undan. Í hugum sumra er hvítasunnuhelgin fyrst og fremst frí og ferðalög - á mánudag er almennur frídagur - en innan kristinnar kirkju hefur hún töluverða þýðingu: Hvítasunnan er ein þriggja höfuðhátíða hennar. Í aðdraganda hvítasunnunnar fjölluðum við um hvítasunnuna og hvítasunnukirkjuna Fíladelfíu; Helgi Guðnason forstöðumaður var gestur þáttarins.
Kristján Sigurjónsson, ritstjóri FF7, var líka með okkur í þættinum. Á dagskránni voru yfirlýsingar forstjóra Play um að mögulega fari flugfélagið að fljúga til Íslands frekar en frá landinu, vinsælar verslunarborgir í Evrópu - sem hafa tekið breytingum eftir Brexit, og gervigreind í ferðaþjónustu.
Tónlist:
Haukur Morthens, Hljómsveit - Ég skal bíða þín.
Haukur Morthens, Orion kvintettinn - Þér ég ann.
Hljómsveit Hauks Morthens, Haukur Morthens - Í hjarta þér.
Gospelkór Fíladelfíu, Gospelkór Fíladelfíu - Guð þú ert minn Guð.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Bjarni Snæbjörnsson. Hann hefur leikið og sungið víða á sviði frá útskrift úr leiklistarnámi, en svo vakti hann sérstaka athygli þegar hann samdi söngleikinn Góðan daginn faggi, sem sýndur var í Þjóðleikhúskjallaranum. Í sýningingunni rifjaði Bjarni upp æskuna og glímu sína við að koma út úr skápnum og horfast í augu við það hver hann var, baráttu við fordóma, ekki síst sína eigin. Sýningin varð gríðarlega vinsæl, var sýnd næstum 150 sinnum, ekki bara í Þjóðleikhúsinu heldur víða um landið. Og nú er nýkomin út bókin Mennska eftir Bjarna og hann hefur hleypt af stokkunum samnefndu hlaðvarpi. Við fórum auðvitað aftur í tímann með honum, eins og við gerum alltaf með föstudagsgestinum, enda er æska hans nátengd því sem hann hefur verið að fjalla um í sínum verkum. Bjarni sagði okkur meðal annars frá dvöl sinni í Ástralíu, námsárunum í leiklistarskólanum og því hvernig hann sættist að lokum við sjálfan sig.
Svo kom Sigurlaug Margrét í matarspjallið. Við skoðuðum með henni sænska matreiðslubók sem heitir Salt og sumar og svo tökum við aðeins upp þráðinn frá síðasta matarspjalli, eftir viðbrögð frá hlustendum við því sem þar kom fram. Fiskisúpa, saffran og birkirúnstykki komu við sögu.
Tónlist í þættinum í dag:
Heim í Búðardal / Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
To Be Free / Emilíana Torrini (E.G. White og Emilíana Torrini)
Hello / Adele (Adele Adkins & Greg Kurstin)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Kvikusöfnun er komin að efri þolmörkum undir Svartsengi og því líkur á kvikuhlaupi á allra næstu dögum segir Kristín Jónsdóttir, fagstjóri á Veðurstofunni. Hún segir þó mikilvægt að hafa í huga að atburðarásin verði ekki alltaf sú sama.
Það skýrist eftir hádegi hvort gæsluvarðhalds eða farbanns verði krafist yfir skipstjóra og stýrimanni flutningaskipsins Longdawn sem talið er að hafi rekist á strandveiðibát út af Garðskaga í fyrrinótt.
Ísraelsmenn herða enn sókn sína í Rafah þrátt fyrir áhyggjur alþjóðasamfélagsins. Bandaríkjaher hefur hafið flutning á neyðaraðstoð um bráðabirgðabryggju.
Bæjarstjórn Ölfuss heldur aukafund í dag til að ræða gagnrýni fiskeldisfyrirtækisins First Water á fyrirhugaða mölunarverksmiðju Heidelberg í bænum. Bæjarstjórinn segir bréf fyrirtækisins hafa áhrif á íbúakosningu, en fulltrúi minnihlutans segir það engu breyta.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrum utanríkisráðherra leiðir hóp sérfræðinga sem leggja eiga mat á framkvæmd og undirbúning kosninganna til Evrópuþingsins í næsta mánuði. Meira en fjögur hundruð milljónir eru á kjörskrá í tuttugu og sjö aðildarríkjum Evrópusambandsins.
Olíubrúsi sást á gólfi á skrifstofu Austurljóss á Egilsstöðum sem eyðilagðist í eldsvoða á sunnudag. Eigandi fyrirtækisins telur að kveikt hafi verið í húsnæðinu. Lögreglan rannsakar eldsupptök og reynir að ná gögnum af lítt bráðnuðu minniskorti öryggismyndavélar.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Konur sem aðhyllast fæðingar án aðkomu fagfólks vilja að kerfið virði val þeirra og ákvarðanir. Landlæknir og yfirljósmóðir á Landspítalanum taka undir að konur eigi að hafa val en ítreka áhættur sem því fylgja að fæða án fagmenntaðra. Það séu margir áhættuþættir sem konur ekki geti greint sjálfar og að skima þurfi fyrir til að tryggja öryggi. Rætt er um tortryggni á báða bóga og hvort eitthvað sé hægt að gera til að vinna á henni.vViðmælendur eru Ronja Mogensen, Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir og Alma Möller. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Við ætlum að forvitnast um nýja tækni í siglingum og hvernig hægt er að minnka eldsneytisnotkun og þar með útblástur og tryggja betur öryggi á sjó. Karl Birgir Björnsson er einn stofnenda og framkvæmdastjóri íslenska sprotafyrirtækisins Hefring Marine, sem sérhæfir sig í slíkum lausnum en Karl fékk sérstaka viðurkenningu Sjávarklasans í gær fyrir árangur með nýsköpunarfyrirtæki.
Í vikunni fór fram málþing í ráðhúsi Reykjavíkur þar sem sérfræðingar fóru yfir stöðuna hvað varðar loftmengun í Reykjavík. Milljónir deyja á heimsvísu á hverju ári af völdum loftmengunar og tugir hér á landi. Og á höfuðborgarsvæðinu gengur illa að uppræta hana. Samfélagið var á málþinginu.
Við heyrum líka eina málfarsmínútu.
Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-05-17
Khan, Shafqat Ali - Valley of memories.
Nenes - Heiwa no Ryuka.
Asake - Terminator (bonus track wav).
Uwaifo, Victor - West African safari.
Baca, Susana - Mario Lando.
Hassan, Mariem - El Sáhara es un tesuro.
Shrivastav, Baluji, Khan, Nusrat Fateh Ali - Rahway wasdi jhok fariadan di.
Portugues, Ramon el, Nunez, Gerardo - Marques de Porrina.
Listafólk frá Rúmeníu- Joc de doi din Banat
Trio Djurdjevic de Jabukovac - Batrineasca.
Omorfoula-Listafólk frá Grikklandi
Fjallað er um sögu fjármálamarkaða og mannlegt eðli í heimi peninga, freistingar og græðgi. Íslenska efnahagshrunið er borið saman við þekkt söguleg flugeldahagkerfi s.s. ENRON. Hagfræðingar, geðlæknar, siðfræðingar, sagnfræðingar og þátttakendur í íslenska efnahagsunrinu tjá sig um þá atburði sem leiddu til hrunsins mikla í október 2008. Í þáttunum er ennfremur rifjaðar upp fréttir, viðtöl og samsæriskenningar í bland við tónlist og fróðleik um manninn, fjármál og heimssöguna.
Höfundur þáttanna er Þórður Víkingur Friðgeirsson verkfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík.
(Áður á dagskrá 2010)
Í þættinun er m.a. útskýrt er afhverju fjármálamarkaðir eru stundum kallaðir „hættulegustu staðir í heimi“. Fjármálaafurðir, sem stundum eru kallaðar peningaleg gereyðingarvopn, eru útskýrðar og hryllingssögur og fjármálahneyksli rifjuð upp. Sagt er frá þeim vandræðum sem íslenski fjármálamarkaðurinn rataði í strax frá upphafi og hefði mátt vera vísbending um það sem síðar varð. Meðal þeirra sem koma fram er Loftur Ólafsson viðskiptafræðingur sem segir sögu íslenska hlutabréfamarkaðarins.
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Rætt um menningarvikuna sem er að líða, það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir og Júlía Aradóttir.
Gestir þáttarins eru þau Sigríður Pétursdóttir og Sigursteinn Másson. Rætt er um hlaðvarpið Bréfberinn á Rás 1, útskriftarsýningu mastersnema í myndlist í Marshall-húsinu, gervigreind, sjónvarpsþættina Bodkin á Netflix og XXX Rottweilerhunda.
Kvöldfréttir útvarps
Munurinn á fylgi Katrínar Jakobsdóttur, Höllu Hrundar Logadóttur og Baldurs Þórhallssonar nær því ekki að vera tölfræðilega marktækur, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Halla Tómasdóttir heldur áfram að bæta við sig.
Heildarumfang aðgerða ríkisstjórnarinnar vegna jarðhræringanna í Grindavík nálgast hundrað milljarða. Þótt allir séu ekki ánægðir er verið að gera mjög mikið, segir forsætisráðherra.
Skipstjóri og stýrimaður flutningaskipsins Longdawn, sem talið er að hafi siglt á strandveiðibátinn Höddu voru í dag úrskurðaðir í fjögurra vikna farbann.
Það vantar sannarlega hjúkrunarfræðinga og það er stærsti vandi Landspítalans, segir forstjóri sjúkrahússins. Nærri helmingur nýrra starfsmanna á milli áranna 2022 og 2023 var með erlent ríkisfang
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Í þættinum er haldið áfram að ræða við forsetaframbjóðendur og nú er röðin komin að Baldri Þórhallssyni. Það verður einnig fjallað um nýja greiningu Deloitte á stöðunni í Grindavík. Er hægt að gæða bæinn lífi á ný og hvað kostar það? Rúmlega fimmtungur innviða er skemmdur og óvissa ríkir um framhaldið, bæði ofanjarðar og neðan. Þá er einnig sagt frá dönskum herskipum á norðurslóðum sem sinntu varnarhlutverki sínu með fallbyssum sem engin leið var að miða á skotmörk svo gagn væri að.
Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Tónlist af plötum breska gítarleikarans Ronnie Wood. Lögin sem hljóma í þættinum eru Am I Grooving You, Every Picture Tells A Story, I Got Lost When I Found You, Big Bayou, Black Limousine, Come To Realise, Worry No More, Seven Days, Fountain of Love og Somebody Else Might.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Fjallað er um sögu fjármálamarkaða og mannlegt eðli í heimi peninga, freistingar og græðgi. Íslenska efnahagshrunið er borið saman við þekkt söguleg flugeldahagkerfi s.s. ENRON. Hagfræðingar, geðlæknar, siðfræðingar, sagnfræðingar og þátttakendur í íslenska efnahagsunrinu tjá sig um þá atburði sem leiddu til hrunsins mikla í október 2008. Í þáttunum er ennfremur rifjaðar upp fréttir, viðtöl og samsæriskenningar í bland við tónlist og fróðleik um manninn, fjármál og heimssöguna.
Höfundur þáttanna er Þórður Víkingur Friðgeirsson verkfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík.
(Áður á dagskrá 2010)
Í þættinun er m.a. útskýrt er afhverju fjármálamarkaðir eru stundum kallaðir „hættulegustu staðir í heimi“. Fjármálaafurðir, sem stundum eru kallaðar peningaleg gereyðingarvopn, eru útskýrðar og hryllingssögur og fjármálahneyksli rifjuð upp. Sagt er frá þeim vandræðum sem íslenski fjármálamarkaðurinn rataði í strax frá upphafi og hefði mátt vera vísbending um það sem síðar varð. Meðal þeirra sem koma fram er Loftur Ólafsson viðskiptafræðingur sem segir sögu íslenska hlutabréfamarkaðarins.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Við ætlum að forvitnast um nýja tækni í siglingum og hvernig hægt er að minnka eldsneytisnotkun og þar með útblástur og tryggja betur öryggi á sjó. Karl Birgir Björnsson er einn stofnenda og framkvæmdastjóri íslenska sprotafyrirtækisins Hefring Marine, sem sérhæfir sig í slíkum lausnum en Karl fékk sérstaka viðurkenningu Sjávarklasans í gær fyrir árangur með nýsköpunarfyrirtæki.
Í vikunni fór fram málþing í ráðhúsi Reykjavíkur þar sem sérfræðingar fóru yfir stöðuna hvað varðar loftmengun í Reykjavík. Milljónir deyja á heimsvísu á hverju ári af völdum loftmengunar og tugir hér á landi. Og á höfuðborgarsvæðinu gengur illa að uppræta hana. Samfélagið var á málþinginu.
Við heyrum líka eina málfarsmínútu.
Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Bjarni Snæbjörnsson. Hann hefur leikið og sungið víða á sviði frá útskrift úr leiklistarnámi, en svo vakti hann sérstaka athygli þegar hann samdi söngleikinn Góðan daginn faggi, sem sýndur var í Þjóðleikhúskjallaranum. Í sýningingunni rifjaði Bjarni upp æskuna og glímu sína við að koma út úr skápnum og horfast í augu við það hver hann var, baráttu við fordóma, ekki síst sína eigin. Sýningin varð gríðarlega vinsæl, var sýnd næstum 150 sinnum, ekki bara í Þjóðleikhúsinu heldur víða um landið. Og nú er nýkomin út bókin Mennska eftir Bjarna og hann hefur hleypt af stokkunum samnefndu hlaðvarpi. Við fórum auðvitað aftur í tímann með honum, eins og við gerum alltaf með föstudagsgestinum, enda er æska hans nátengd því sem hann hefur verið að fjalla um í sínum verkum. Bjarni sagði okkur meðal annars frá dvöl sinni í Ástralíu, námsárunum í leiklistarskólanum og því hvernig hann sættist að lokum við sjálfan sig.
Svo kom Sigurlaug Margrét í matarspjallið. Við skoðuðum með henni sænska matreiðslubók sem heitir Salt og sumar og svo tökum við aðeins upp þráðinn frá síðasta matarspjalli, eftir viðbrögð frá hlustendum við því sem þar kom fram. Fiskisúpa, saffran og birkirúnstykki komu við sögu.
Tónlist í þættinum í dag:
Heim í Búðardal / Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
To Be Free / Emilíana Torrini (E.G. White og Emilíana Torrini)
Hello / Adele (Adele Adkins & Greg Kurstin)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Rætt um menningarvikuna sem er að líða, það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir og Júlía Aradóttir.
Gestir þáttarins eru þau Sigríður Pétursdóttir og Sigursteinn Másson. Rætt er um hlaðvarpið Bréfberinn á Rás 1, útskriftarsýningu mastersnema í myndlist í Marshall-húsinu, gervigreind, sjónvarpsþættina Bodkin á Netflix og XXX Rottweilerhunda.
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Í dag var sungið um sumardrauma, blús og Betur. Huggulegheit með Huldu á föstudagsmorgni.
Lagalisti:
Sigurður Guðmundsson - Kappróður.
Elton John - Guess that's whey they call it the blues.
Snorri Helgason og Friðrik Dór - Birta.
Magnús Þór og Árstíðir - Elísabet.
Emilíana Torrini - Elísabet.
Kacey Musgraves - Slow burn.
Brunaliðið - Ég er á leiðinni.
Genesis - That's all.
Edie Brickell and the New Bohemians - What I am.
Simon og Garfunkel - Homeward bound.
Pearl Jam - Better man.
Liam Gallagher - One of us.
Fríða Hansen - Það var komið sumar.
Kvikmyndahátíðin í Cannes í Frakklandi er núna í gangi og þar eigum við fulltrúa en aðstandendur kvikmyndarinnar Ljósbrot eru þar úti til að kynna myndina. Ljósbrot er að fá glimrandi dóma hjá gagnrýnendum þarna úti. Leik- og tónlistarkonan Elín Hall fer með eitt aðalhlutverkið í myndinni. Hún verður á línunni beint úr heimi fallega og fræga fólksins.
Stundum gleymist í umræðunni um forsetakosningar í Bandaríkjunum að forsetaframbjóðendurnir eru þrír. Sá þriðji, RFK jr eða Robert F. Kennedy yngri vakti athygli í síðustu viku þegar hann sagði orm hafa dvalið í heilanum á sér og étið hluta af honum fyrir góðum 15 árum síðan. Bryndís Sigurðardóttir smitsjúkdómalæknir ræðir við okkur um sníkjudýrið sem um ræðir og jafnvel fleiri.
Góðar fréttir bárust af gangi mála hjá Þórkötlu fasteignafélagi í vikunni. Félagið hefur yfirfarið og samþykkt kaup á 660 húseignum í Grindavík. Það eru um 85% af þeirri 781 umsókn sem hefur borist. Þrátt fyrir það kvarta margir Grindvíkingar enn yfir seinagangi og erfiðri stöðu sem skapast vegna hans. Örn Viðar Skúlason -framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Þórkötlu kemur.
Á sumrin keppast yfirleitt stóru kvikmyndaverið í Hollywood til þess að sýna stærstu kvikmyndir sínar og í ár er engin undantekning. Við fáum Ragnar Eyþórsson, sérslegan kvikmyndaáhugamanna og framleiðanda á RÚV, til að taka saman fyrir okkur það helsta.
Og til að ræða fréttir vikunnar fáum við til okkar þau Helgu Völu Helgadóttur, lögmann og fyrrum þingmann og Björn Inga Hrafnsson af vefmiðlinum Viljanum.
Tónlist:
RAGNHILDUR GÍSLA - Sjáumst þar.
LAUFEY - California and Me.
ELÍN HALL - Er nauðsynlegt að skjóta þá?.
Greiningardeildin, Bogomil Font - Sjóddu frekar egg.
UNUN - Lög Unga Fólsins.
PETER GABRIEL - Big Time.
UNUN - Lög Unga Fólsins.
HAUKUR MORTHENS - Hæ Mambó.
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Það eru 100 ár frá fæðingardegi meistara Hauks Morthens. Jónatan Garðarsson kom í heimsókn og rakti merkilega sögu Hauks. Magnús Þór Sigmundsson var svo indæll að koma enskri útgáfu af laginu Álfar á Hjartagosa og gaf þeim góðfúslegt leyfi til að spila það. Lagalisti fólksins var magnaður rétt eins og venjulega, þemað var hvítt.
Lagalisti þáttarins:
Björk & Carcass - Isobel
Grande, Ariana - We can't be friends (wait for your love).
MANFRED MANN - Blinded by the light.
GILDRAN - Vorkvöld í Reykjavík.
GDRN - Háspenna.
Kiriyama Family - Keep calm.
EDWYN COLLINS - A Girl Like You.
Haukur Morthens - Kaupakonan Hans Gísla Í Gröf.
HAUKUR MORTHENS - Ég Hugsa Heim.
Audioslave - Like a stone.
PEARL JAM - Even Flow.
CHAKA KHAN, CHAKA KHAN - Ain't nobody.
Kool and The Gang - Summer madness.
LYNN COLLINS - Think About It.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Sjalið.
IGGY POP - The Passenger.
TODMOBILE - Brúðkaupslagið.
BILLY IDOL - White Wedding.
Spacestation - Hvítt vín.
NÝDÖNSK - Kirsuber.
Beatles, The - Helter skelter.
BLAZROCA OG ÁSGEIR TRAUSTI - Hvítir skór.
MOODY BLUES - Nights In White Satin [Short Version].
OFFSPRING - Pretty fly (for a white guy).
Procol Harum - A whiter shade of pale.
JEFFERSON AIRPLANE - White Rabbit.
Taugadeildin - Hvi?tar grafir.
THE WHITE STRIPES - Seven Nation Army.
DIDO - White Flag.
WHITESNAKE - Here I Go Again.
PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON - Hvítt Drasl.
MOTÖRHEAD - White Line Fever.
CREAM - White Room.
Grandmaster Flash & Melle Mel - White lines (don't don't do it).
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Kvikusöfnun er komin að efri þolmörkum undir Svartsengi og því líkur á kvikuhlaupi á allra næstu dögum segir Kristín Jónsdóttir, fagstjóri á Veðurstofunni. Hún segir þó mikilvægt að hafa í huga að atburðarásin verði ekki alltaf sú sama.
Það skýrist eftir hádegi hvort gæsluvarðhalds eða farbanns verði krafist yfir skipstjóra og stýrimanni flutningaskipsins Longdawn sem talið er að hafi rekist á strandveiðibát út af Garðskaga í fyrrinótt.
Ísraelsmenn herða enn sókn sína í Rafah þrátt fyrir áhyggjur alþjóðasamfélagsins. Bandaríkjaher hefur hafið flutning á neyðaraðstoð um bráðabirgðabryggju.
Bæjarstjórn Ölfuss heldur aukafund í dag til að ræða gagnrýni fiskeldisfyrirtækisins First Water á fyrirhugaða mölunarverksmiðju Heidelberg í bænum. Bæjarstjórinn segir bréf fyrirtækisins hafa áhrif á íbúakosningu, en fulltrúi minnihlutans segir það engu breyta.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrum utanríkisráðherra leiðir hóp sérfræðinga sem leggja eiga mat á framkvæmd og undirbúning kosninganna til Evrópuþingsins í næsta mánuði. Meira en fjögur hundruð milljónir eru á kjörskrá í tuttugu og sjö aðildarríkjum Evrópusambandsins.
Olíubrúsi sást á gólfi á skrifstofu Austurljóss á Egilsstöðum sem eyðilagðist í eldsvoða á sunnudag. Eigandi fyrirtækisins telur að kveikt hafi verið í húsnæðinu. Lögreglan rannsakar eldsupptök og reynir að ná gögnum af lítt bráðnuðu minniskorti öryggismyndavélar.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Margt upp á teningnum í Popplandi í þetta skiptið. Það er föstudagur fyrir þriggja daga helgi og við fáum góða gesti í Kiasmos sem eru mættir aftur og ætla að halda tónleika 27.maí í Gamla Bíó. Svo senda þau Sverrir Norland og Ásdís okkur póstkort með nýjum lögum, allt þetta og svo margt meira í Popplandi dagsins!
Lagalisti:
Prins Póló, Moses Hightower - Eyja.
THE STREETS - Fit But You Know It.
Baker, Hak - DOOLALLY (Lyrics!).
Yard Act - The Trench Coach Museum.
Lipa, Dua - Illusion.
LL COOL J - Mama Said Knock You Out.
BEASTIE BOYS - Intergalactic.
MARK RONSON & KING PRINCESS - Happy together.
YG Marley - Praise Jah In the Moonlight.
SUGABABES - Overload.
Kiriyama Family - Haven't found it.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir Söngkona - Hetjan.
Björgvin Þór Þórarinsson - Lifandi inní mér.
BIG COUNTRY - Look Away.
Emilíana Torrini - Miss flower.
Djo - End of Beginning.
Mt. Joy - Highway Queen.
Bubbi Morthens - Dansaðu.
BARAFLOKKURINN - I don't like your style.
Snorri Helgason, Friðrik Dór Jónsson - Birta.
KIASMOS, KIASMOS - Looped.
Kiasmos hljómsveit - Flown.
PATTI SMITH - Because the Night.
Bryan Ferry - Dont stop the dance.
Ultraflex - Say Goodbye.
Kahan, Noah, Post Malone - Dial Drunk.
DAÐI & GAGNAMAGNIÐ - 10 Years (Ísland Eurovision 2021).
JAGÚAR - Disco Diva.
Svavar Knútur Kristinsson - Refur.
Helgi Björnsson - Einn af okkar allra bestu mönnum (korter í vegan).
Lorde - Take Me to the River.
THE CARDIGANS - Lovefool.
Kiriyama Family - Imagine.
Archives, Nia - Cards On The Table.
THE MAVERICKS - Dance The Night Away.
Una Torfadóttir - Yfir strikið.
GDRN - Háspenna
Sigrún Stella - Kveðja
Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.
Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.
Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið að kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess að kynnast henni betur.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur að akstur vegna farsímanotkunar sé einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.
Allt bendir til þess að fólk sem notar síma við akstur sé fjórum sinnum líklegra til að lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra að fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. Nú hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið að hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt að tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.
Íbúar í Ölfusi eru að fara að kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig að mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið að boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur er 85 ára í dag - í því tilefni ætlum við að heyra stuttlega í formanninum Ragnheiði Thorsteinsson.
Atli Fannar Bjarkason verður hjá okkur til þess að fara yfir meme vikunnar.
Baldur Þórhallsson er flestum kunnugur. Hann er einn af okkar snjöllustu stjórnmálaskýrendum, baráttumaður fyrir réttindum hinsegin fólks og nú forsetaframbjóðandi. Hann verður á grillinu í dag og svarar spurningum um allt og ekkert.
Síðasti dagur Alþingis fyrir hlé er í dag. Höskuldur Kári Schram, þingfréttaritari RÚV, fer yfir stöðu þingsins og hvað tekur við þegar þing hefst á ný eftir forsetakosningar.
Kvöldfréttir útvarps
Munurinn á fylgi Katrínar Jakobsdóttur, Höllu Hrundar Logadóttur og Baldurs Þórhallssonar nær því ekki að vera tölfræðilega marktækur, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Halla Tómasdóttir heldur áfram að bæta við sig.
Heildarumfang aðgerða ríkisstjórnarinnar vegna jarðhræringanna í Grindavík nálgast hundrað milljarða. Þótt allir séu ekki ánægðir er verið að gera mjög mikið, segir forsætisráðherra.
Skipstjóri og stýrimaður flutningaskipsins Longdawn, sem talið er að hafi siglt á strandveiðibátinn Höddu voru í dag úrskurðaðir í fjögurra vikna farbann.
Það vantar sannarlega hjúkrunarfræðinga og það er stærsti vandi Landspítalans, segir forstjóri sjúkrahússins. Nærri helmingur nýrra starfsmanna á milli áranna 2022 og 2023 var með erlent ríkisfang
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Í þættinum er haldið áfram að ræða við forsetaframbjóðendur og nú er röðin komin að Baldri Þórhallssyni. Það verður einnig fjallað um nýja greiningu Deloitte á stöðunni í Grindavík. Er hægt að gæða bæinn lífi á ný og hvað kostar það? Rúmlega fimmtungur innviða er skemmdur og óvissa ríkir um framhaldið, bæði ofanjarðar og neðan. Þá er einnig sagt frá dönskum herskipum á norðurslóðum sem sinntu varnarhlutverki sínu með fallbyssum sem engin leið var að miða á skotmörk svo gagn væri að.
Sultan er 30 mínútna lagalisti settur saman fyrir þig í hverri viku. Hlustaðu á Sultuna í útvarpinu eða í spilaranum þegar þér hentar. Á föstudögum er sulta dagsins indie disco.
Fréttastofa RÚV.
Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70´s, 60´s, 80´s 50´s, 90´s rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að tala og syngja og maður á að hlusta hátt.
Lög sem spiluð voru í Füzz í kvöld
Mínus - Romantic Exorcism
Patti Smith - Dancing Barefoot
Blink 182 - All the Small Things
Weezer - My Name is Jonas
Tame Impala - Elephant
Jimi Hendrix - Castles made of sand
Radiohead - Karma Police
The Rolling Stones - Miss you
CREAM - Strange Brew
Jimmy Eat World - The Middle
Jet Black Joe - Freedom
Lenny Kravitz – Are you gonna go my way
Marilyn Manson - The Beautiful People
Talking Heads - Psycho Killer
Síðan Skein Sól - Lof mér að lifa
Guns n Roses - Live and let die
Brain Police - Jacuzzi suzy
Alice Cooper - School´s out
The Pixies - I bleed
Metallica - -The Unforgiven
Mínus - Here comes the night
System of a Down - B.Y.O.B.
Korn - Good God
Kolrassa Krókríðandi - Opnaðu Augun Þín
Blondie - Call me
Iron Maiden - Run to the hills
The Runaways - Cherry Bomb
Foreigner - Juke Box Hero
Smashing Pumpkins - Tonight, tonight
Nirvana - Where did you sleep last night
The Stone Roses - I wanna be adored
Mínus - The long face
Bon Jovi - Always
Janis Joplin - Get it while you can
Deftones - Be quiet and drive ( Far away)
Blönduð tónlist frá því í kringum aldamótin.