Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Í dag eru fjögur ár liðin frá allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu. Fréttamaðurinn Ingólfur Bjarni Sigfússon hefur fylgst með stríðinu og var staddur í Kyev þegar innrás Rússa hófst. Hvernig var upplifunin að vera ytra á þessum degi og hvernig er staðan nú fjórum árum síðar? Ingólfur Bjarni kom til okkar í Morgunútvarpið og ræddi um Úkraínu og Rússland.
Fyrirsætan Tyra Banks hefur ekki komið vel út úr heimildarþáttum á Netflix um raunveruleikaþættina America’s Next Top Model. Þættirnir voru í loftinu á árunum 2003 til 2018 og snerust um að gera ungar konur að fyrirsætum, nánast sama hvað það kostaði. Ein af þeim sem segir hryllingssögu sína í heimildarþáttunum er Shandi Sullivan. Okkar eigin Margrét Maack leigði með henni í New York á sínum tíma og hún kom til okkar og ræddi hennar sögu og þættina almennt.
Alma Möller heilbrigðisráðherra vill skera upp herör gegn offitu og skoðar nú meðal annars að setja á óhollustuskatt, endurskoða greiðsluþátttöku í þyngdarstjórnunarlyfjum og fjölga meðferðarúrræðum. Stór hluti þjóðarinnar glímir við ofþyngd og við ætlum að kynna okkur hvernig þessar aðgerðir horfa við starfsfólki á Reykjalundi, en þar vill fólk leiðrétta ýmislegt sem skolast til í umræðunni um þetta viðkvæma mál. Svava Björk Jónasdóttir hjúkrunarfræðingur, Helga Guðrún Friðþjófsdóttir næringarfræðingur og Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir, yfirlæknir í efnaskipta- og offituteymi Reykjalundar komu í Morgunútvarpið.
Norðmenn unnu til 41 verðlauna á nýafstöðnum vetrarólympíuleikum. Það er nýtt met en þeir áttu sjálfir metið frá 2018, þegar þeir fengu 39 medalíur. Fótboltakapparnir Erling Haaland og Ada Hegerberg eru líka norsk, eins og golfarinn Viktor Hovland og fjölmargt fleira afreksfólk í íþróttum. Af hverju eru Norðmenn svona geggjaðir í íþróttum? Hvað eru þeir að gera öðruvísi en við? Erlingur Jóhannsson, prófessor í Íþrótta og heilsufræði, kom til okkar og svaraði þessum spurningum.
