Sögur af landi: Endurlit

69. þáttur

Þáttur frá 3. desember 2017: Í þessum þætti er hversdagurinn krufinn. Hvað er gott og slæmt við hann? Er hægt að skrásetja hann svo vel sé? Fötin eru góð vísbending um margt í fari manna, það getur til dæmis verið snúið að gera sér dagamun ef maður klæðist sparifötum hvunndags. Við reynum að fanga augnablikið í hversdeginum með aðstoð nokkurra viðmælenda. Innslög unnu: Dagur Gunnarsson, Jón Þór Kristjánsson og Ágúst Ólafsson.

Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sögur af landi: Endurlit

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þættir

,