Skeggi

6. þáttur: Veriði blessuð og sæl

Í lokaþættinum er rætt við Björgu Guðrúnu Gísladóttur. Hún svarar gagnrýni Matthildar Guðnýjar Guðmundsdóttur um bókina Hljóðin í nóttinni. Silja Aðalsteinsdóttir sem var í Laugarnesskólanum í tvo vetur, útskrifaðist 1955, segir frá reynslu sinni af Skeggja. Tæknimennirnir Þórir Steingrímsson og Hreinn Valdimarsson sögðu frá samstarfi sínu við Skeggja og þáttagerð. Sr Bjarni Karlsson segir frá því orðrómur um kynferðisbrot Skeggja hafi verið í loftinu þegar hann kom til starfa í Laugarneskirkju 1996. Ragnar Þorsteinsson fyrrv sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg ræðir um viðbrögð borgarinnar árið 2014. Mjög fáir höfðu samband við borgina vegna Skeggjamálsins. Sólveig Ólafsdóttir og Björg Guðrún Gísladóttir ræða um málið megi ekki sofna aftur. Björg les tölvupóst frá Guðrúnu Ögmundsdóttur, þar sem hún segist ekkert geta gert í málinu árið 2017.

Viðmælendur:

Björg Guðrún Gísladóttir

Ólöf Ásta Ferestveit

Silja Aðalsteinsdóttir

Sr Bjarni Karlsson

Sólveig Ólafsdóttir

Hreinn Valdimarsson

Þórir Steingrímsson

Ragnar Þorsteinsson

Umsjón: Þorsteinn J.

Rannsóknarvinna: Sólveig Ólafsdóttir

Vakin er athygli á því í þáttunum er fjallað um málefni sem getur reynst erfitt fyrir viðkvæma hlustendur.

Birt

19. nóv. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Skeggi

Fyrir átta árum kom út bókin Hljóðin í nóttinni eftir Björgu Guðrúnu Gísladóttur. Þar var Skeggi Ásbjarnarson kennari við Laugarnesskólann sakaður um kynferðisbrot gagnvart drengjum í skólanum. Málið fékk einhverja umfjöllun í fréttum á þessum tíma en síðan ekki söguna meir. Þorsteinn J. var í Laugarnesskólanum og honum var mjög brugðið yfir þessum meintu brotum Skeggja. Hann hóf rannsókn á málinu ásamt Sólveigu Ólafsdóttur doktor í sagnfræði. Í þáttaröðinni er skoðað hvað raunverulega gerðist í skólanum og hlustendur eru hvattir til senda inn upplýsingar sem þeir kunna búa yfir, á [email protected]

Umsjón: Þorsteinn J.

Framleiðandi: Þetta líf. Þetta líf ehf fyrir RUV.

Þættir

,