Skeggi

2. þáttur: Þú varst sólargeisli

Í öðrum þætti segir Hrafnhildur Valgarðssdóttir frá kynnum sínum af Skeggja. Hún bjó Kirkjuteigi 13, þar sem Skeggi kom í mat í um 40 ár. Hún var líka nemandi Skeggja í Laugarnesskóla. Sólveig Ólafsdóttir doktor í sagnfræði segir frá æviferli Skeggja og minningagrein sem hann skrifaði 1949. Páll Guðfinnur og Garðar Valur segja frá reynslu sína.

Sex þátta heimildaröð unnin fyrir Rás 1 um Skeggja Ásbjarnarson kennara við Laugarnesskóla og meint kynferðisbrot hans gagnvart drengjum í skólanum. Fyrsti þáttur ber yfirskriftina Vinur barnanna.

Umsjón: Þorsteinn J.

Rannsóknarvinna: Sólveig Ólafsdóttir

Vakin er athygli á því í þáttunum er fjallað um málefni sem getur reynst erfitt fyrir viðkvæma hlustendur.

Birt

22. okt. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Skeggi

Fyrir átta árum kom út bókin Hljóðin í nóttinni eftir Björgu Guðrúnu Gísladóttur. Þar var Skeggi Ásbjarnarson kennari við Laugarnesskólann sakaður um kynferðisbrot gagnvart drengjum í skólanum. Málið fékk einhverja umfjöllun í fréttum á þessum tíma en síðan ekki söguna meir. Þorsteinn J. var í Laugarnesskólanum og honum var mjög brugðið yfir þessum meintu brotum Skeggja. Hann hóf rannsókn á málinu ásamt Sólveigu Ólafsdóttur doktor í sagnfræði. Í þáttaröðinni er skoðað hvað raunverulega gerðist í skólanum og hlustendur eru hvattir til senda inn upplýsingar sem þeir kunna búa yfir, á [email protected]

Umsjón: Þorsteinn J.

Framleiðandi: Þetta líf. Þetta líf ehf fyrir RUV.

Þættir

,