Skeggi

5. þáttur: Blautur koss

Í fimmta þætti rætt við Matthildi Guðnýju Guðmundsdóttur kennara og eiginkonu Jóns Freys Þórarinssonar skólastjóra Laugarnesskóla. Hún er afar ósátt við bók Bjargar Guðrúnar Gísladóttur Hljóðin í nóttinni og lýsingar hennar á samskiptum þeirra Jóns. Bjarni, sem vill ekki segja til eftirnafns, segir frá ofbeldi Skeggja, í kennslustundum og svo í einkatímum á laugardögum. Hann segir jafnframt frá því hann hafi lamið Skeggja þegar hann hitti hann á götu. Hjálmar Gunnar Sigmarsson segir frá áhrifum kynferðisofbeldis á drengi og hvernig þau sár gróa ekki. Sólveig Ólafsdóttir ræðir þögnina um Skeggja og hvað það undarlegt, samkennari og samstarfsmaður Skeggja, Jón Freyr Þórarinsson hafi ekki skrifað um hann minningagrein.

Viðmælendur:

Matthildur Guðný Guðmundsdóttir

Bjarni

Hjálmar Gunnar Sigmarsson

Sólveig Ólafsdóttir

Umsjón: Þorsteinn J.

Rannsóknarvinna: Sólveig Ólafsdóttir

Vakin er athygli á því í þáttunum er fjallað um málefni sem getur reynst erfitt fyrir viðkvæma hlustendur.

Birt

12. nóv. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Skeggi

Fyrir átta árum kom út bókin Hljóðin í nóttinni eftir Björgu Guðrúnu Gísladóttur. Þar var Skeggi Ásbjarnarson kennari við Laugarnesskólann sakaður um kynferðisbrot gagnvart drengjum í skólanum. Málið fékk einhverja umfjöllun í fréttum á þessum tíma en síðan ekki söguna meir. Þorsteinn J. var í Laugarnesskólanum og honum var mjög brugðið yfir þessum meintu brotum Skeggja. Hann hóf rannsókn á málinu ásamt Sólveigu Ólafsdóttur doktor í sagnfræði. Í þáttaröðinni er skoðað hvað raunverulega gerðist í skólanum og hlustendur eru hvattir til senda inn upplýsingar sem þeir kunna búa yfir, á [email protected]

Umsjón: Þorsteinn J.

Framleiðandi: Þetta líf. Þetta líf ehf fyrir RUV.

Þættir

,