Skeggi

4. þáttur: Ferðin til Limbó

Í fjórða þætti eru leiknar gamlar upptökur með Skeggja úr barnaefni Útvarpsins. Hann ræðir letina í barnatíma frá 1960 og stjórnar svo spurningaleik úr söngleikjum í útvarpssal. Steina Einarsdóttir sem var í öðrum af svokölluðum stjörnubekkjum Skeggja. Hún byrjaði árið 1946. Hún segir frá atviki sem gerðist í tíma þegar Skeggi hafði einn af bekkjarbræðrum hennar í fanginu. Sólveig Ólafsdóttir segir frá þeim gögnum sem hún fékk hjá Borgarskjalasafninu og sömuleiðis ljósmyndir og skólablöð sem fundust í Laugarnesskólanum. Axel sem vill ekki segja eftirnafnið sitt, segir frá misnotkun Skeggja í kenslustundum. Ólöf Ásta Farestveit forstjóri barna og fjölskylduhúss, segir frá því hvaða áhrif kynferðisofbeldi hefur á börn. Anna Björg Thorsteinsson bekkjarsystir Garðars Vals Jónssonar staðfestir kynferðisofbeldi Skeggja á strákum í bekknum.

Viðmælendur.

Steina Einarsdóttir.

Sólveig Ólafsdóttir

Axel

Ólöf Ásta Farestveit

Anna Björg Thorsteinsson

Umsjón: Þorsteinn J.

Rannsóknarvinna: Sólveig Ólafsdóttir

Vakin er athygli á því í þáttunum er fjallað um málefni sem getur reynst erfitt fyrir viðkvæma hlustendur.

Birt

5. nóv. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Skeggi

Fyrir átta árum kom út bókin Hljóðin í nóttinni eftir Björgu Guðrúnu Gísladóttur. Þar var Skeggi Ásbjarnarson kennari við Laugarnesskólann sakaður um kynferðisbrot gagnvart drengjum í skólanum. Málið fékk einhverja umfjöllun í fréttum á þessum tíma en síðan ekki söguna meir. Þorsteinn J. var í Laugarnesskólanum og honum var mjög brugðið yfir þessum meintu brotum Skeggja. Hann hóf rannsókn á málinu ásamt Sólveigu Ólafsdóttur doktor í sagnfræði. Í þáttaröðinni er skoðað hvað raunverulega gerðist í skólanum og hlustendur eru hvattir til senda inn upplýsingar sem þeir kunna búa yfir, á [email protected]

Umsjón: Þorsteinn J.

Framleiðandi: Þetta líf. Þetta líf ehf fyrir RUV.

Þættir

,