Skeggi

3. þáttur: Komiði blessuð og sæl

Í þriðja þætti er rætt við Óttar Guðmundsson geðlækni sem lítur á Skeggja sem sinn besta kennara á öllum hans námsárum. Elín Bára Cooper segir frá tveimur atvikum sem hún segir vitna til um hina myrku hlið Skeggja sem kennara í Lauganesskóla. Það gerir Grímur Rúnar Friðgerisson fyrrverandi nemandi í Lauganesskóla líka.

Rætt er við Hjört Pálsson, sem var dagskrárstjóri útvarpsins á árum áður, um útvarpsmanninn Skeggja. Kristín Ólafsdóttir, systir Páls Björgvins Ólafssonar sem Skeggi skirfaði minningargrein um, segir frá dauða bróður síns sem var bráðkvaddur á skólalóðinni. Einnig er rætt við Guðjón Heiðar Jónsson, eiginmann Kristínar, sem líka var í bekk hjá Skeggja og ber honum góða sögu, mestu leyti.

Umsjón: Þorsteinn J.

Rannsóknarvinna: Sólveig Ólafsdóttir

Vakin er athygli á því í þáttunum er fjallað um málefni sem getur reynst erfitt fyrir viðkvæma hlustendur.

Birt

29. okt. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Skeggi

Fyrir átta árum kom út bókin Hljóðin í nóttinni eftir Björgu Guðrúnu Gísladóttur. Þar var Skeggi Ásbjarnarson kennari við Laugarnesskólann sakaður um kynferðisbrot gagnvart drengjum í skólanum. Málið fékk einhverja umfjöllun í fréttum á þessum tíma en síðan ekki söguna meir. Þorsteinn J. var í Laugarnesskólanum og honum var mjög brugðið yfir þessum meintu brotum Skeggja. Hann hóf rannsókn á málinu ásamt Sólveigu Ólafsdóttur doktor í sagnfræði. Í þáttaröðinni er skoðað hvað raunverulega gerðist í skólanum og hlustendur eru hvattir til senda inn upplýsingar sem þeir kunna búa yfir, á [email protected]

Umsjón: Þorsteinn J.

Framleiðandi: Þetta líf. Þetta líf ehf fyrir RUV.

Þættir

,