Skeggi

Fyrir átta árum kom út bókin Hljóðin í nóttinni eftir Björgu Guðrúnu Gísladóttur. Þar var Skeggi Ásbjarnarson kennari við Laugarnesskólann sakaður um kynferðisbrot gagnvart drengjum í skólanum. Málið fékk einhverja umfjöllun í fréttum á þessum tíma en síðan ekki söguna meir. Þorsteinn J. var í Laugarnesskólanum og honum var mjög brugðið yfir þessum meintu brotum Skeggja. Hann hóf rannsókn á málinu ásamt Sólveigu Ólafsdóttur doktor í sagnfræði. Í þáttaröðinni er skoðað hvað raunverulega gerðist í skólanum og hlustendur eru hvattir til senda inn upplýsingar sem þeir kunna búa yfir, á [email protected]

Umsjón: Þorsteinn J.

Framleiðandi: Þetta líf. Þetta líf ehf fyrir RUV.

Þættir

,