Þáttur 10 af 11
Sigríður Guðmundsdóttir sagði Hallfreði Erni Eiríkssyni sögu sem hún heyrði sem barn fyrir vestan af Gísla Súrssyni og frásögnin fengin úr bandasafni Stofnunar Árna Magnússonar. Því…
Í þættinum kennir ýmissa grasa og er nánast allt efni sótt í segulbandasafn Stofnunar Árna Magnússonar. Hallfreður Örn Eiríksson og Árni Björnsson ræða við Margréti Jóhannsdóttur sem er 100 ára. Margrét sagði frá þjóðhátíðinni 1874, en þá var hún 6 ára. Valdimar Björn Valdimarsson segir frá konungskomu á Vestfjörðum 1907. Jóhann Hjaltason kennari sagði frá verslun við Húnaflóa á 19. öld. Marteinn Þorsteinsson sagði frá verslun á Fáskrúðsfirði í byrjun aldarinnar. Að lokum sagði Sverris Kristjánsson sagnfræðingur Stefáni Jónssyni frá verslunarbókum frá tímum einokunarverlunarinnar og er sú frásögn úr segulbandasafni Útvarpsins

Þættir Ragnheiðar Gyðu Jónsdóttur frá árinu 1995.
Fjallað er um sagnamennsku, þjóðsögur og sannar sögur.