Plata vikunnar

Nanna - How to Start a Garden

Sólóplata Nönnu, How to Start a Garden, er plata vikunnar á Rás 2 þessa vikuna. Nanna hefur marga fjöruna sopið og kannski þekktust fyrir störf sín með hljómsveitinni Of Monsters And Men sem er fyrir löngu orðin vinsæl um allan heim.

Platan sem kom út föstudaginn 5. maí er gefin út á vegum Republic Records en tónlistarkonan tilkynnti um nýja sólóverkefnið í janúar síðastiðnum og hafa lögin Godzilla, Crybaby og Disaster Master þegar verið í spilun á Rás 2. Platan er pródúseruð af Nönnu sjálfri ásamt reynsluboltunum Aaron Dessner og Josh Kaufman úr hljómsveitunum The National og The War on Drugs.

Frumflutt

8. maí 2023

Aðgengilegt til

7. maí 2024
Plata vikunnar

Plata vikunnar

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.

Þættir

,