Loftslagsþerapían - Hlaðvarp

Leyft öllum aldurshópum

Við erum meistarar í afneitun

Afneitunin er hál og marglaga og þrífst best í upplýsingaóreiðu. Það er ótrúlega margt í okkur sem gerir það að verkum að við höfum tilhneigingu til að loka augunum fyrir loftslagsvandanum eða hreinlega afneita honum.

Hvernig náum við höfðinu upp úr sandinum? Er nauðsynlegt að sannfæra fólk um að loftslagsbreytingar séu ógn?

Í þriðja þætti Loftslagsþerapíunnar er fjallað um afneitunarsinna og afneitunariðnað en aðallega afneitunina innra með okkur.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Loftslagsþerapían - Hlaðvarp

Í Loftslagsþerapíunni eru snertifletir loftslagsógnarinnar skoðaðir í sambandi við allt það mannlega. Við tölum um óttann, afneitunina og skömmina, grátum kannski smá en hlæjum líka. Við tölum við siðfræðinga, sálfræðinga, pólitíkusa, presta, vísindamenn og venjulegt fólk. Við horfumst í augu við staðreyndir en látum okkur líka dreyma, reynum að leggja loft-slagsmálin á hilluna og hugsum í lausnum, því það er ekkert annað í stöðunni en að reyna að redda þessu saman. Þetta verður tilfinningarússíbani. Komdu með.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.

Þættir

,