Konungssinnar í Kísildal

Þeir ætla að lifa að eilífu

Í áttunda þættinum sökkvum við okkur ofan í baráttuna gegn dauðanum sem er háð þessa dagana í Kísildalnum og mögulega í heilbrigðisráðuneyti Donalds Trump. Peter Thiel, Jeff Bezos, Sam Altman og fleiri tækniforstjórar moka peningum í rannsóknir á langlífi. Þeir ætla lifa eilífu. Andlit þessarar hugmyndafræði er Bryan Johnson, undir formerkjunum Don’t Die, ekki deyja. Við skoðum tengsl Trans-húmanisma við MAHA-hreyfinguna svokölluðu, Make America Healthy Again.

Frumflutt

10. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Konungssinnar í Kísildal

Konungssinnar í Kísildal

Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum í febrúar.

Frá því hann tók við embætti forseta hefur hann unnið því gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið.

Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar.

Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem stýrir samfélaginu eins og sprotafyrirtæki. Það þarf byggja upp einveldi, nýtt konungsdæmi, segja jafnvel sumir.

Í þessum þáttum sökkvum við okkur ofan í þessar byltingarhugmyndir og hugsuðina á bakvið þær, konungssinnana í Kisildal.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson.

Þættir

,