Íþróttavarp RÚV

Góð íþrótt Gulli betri: Fjórar Vetrarólympíuleika sögur

Vetrarólympíuleikarnir á Ítalíu eru í fullum gangi og af því tilefni rifjum við upp fjórar ótrúlegar sögur úr litríkri sögu leikanna. Við tökum fyrir íshokkíleik Bandaríkjanna og Sovétríkjanna árið 1980 í miðju kalda stríðinu. Tvær skondnar sögur koma frá leikunum í Calgary í Kanada 1988 en þar stökk Bretinn Eddie the Eagle í skíðastökki og bobsleðalið Jamaíku sigraði hjarta alls heimsins með framgöngu sinni. lokum segjum við ótrúlega sögu skíðakappans Hermans Maier frá Austurríki sem hrasaði illa í sinni fyrstu grein á leikunum 1998 en var mættur í næstu grein aðeins þrem dögum síðar.

Ingólfur Hannesson og Einar Örn Jónsson rifja upp þessar sögur og draga ekkert undan.

Umsjón: Gunnlaugur Jónsson

Birt

15. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Íþróttavarp RÚV

Hlaðvarpsþættir um íþróttir.

Þættir

,