Íþróttavarp RÚV

Gunnar Huseby, 100 ára

Ein af fyrstu íþróttastjörnum Íslands, Gunnar Huseby, fæddist 4. nóvember 1923 eða fyrir 100 árum. Hann var tvöfaldur Evrópumeistari í kúluvarpi en vandamál með áfengi varð til þess hann keppti aldrei á Ólympíuleikum. Síðar setti hann þó tappann í flöskuna alveg sjálfur. Gunnar setti fjölda Íslandsmeta í kúluvarpi og kringlukasti og var landsfrægur. Í þessum þætti er saga Gunnars Huseby sögð og spiluð brot úr viðtölum við hann. Rætt er við íþróttafréttamennina Ómar Ragnarsson og Bjarna Felixson, Sigurbjörn Árna Arngrímsson frjálsíþróttasérfræðing og Jón Þ. Ólafsson fyrrverandi Íslandsmethafa í hástökki. Lesarar í þættinum eru Hreinn Valdimarsson og Birgir Þór Harðarson.

Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.

Frumflutt

8. ágúst 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Íþróttavarp RÚV

Íþróttavarp RÚV

Hlaðvarpsþættir um íþróttir.

Þættir

,