Íþróttavarp RÚV

Kjartan Atli Kjartansson

Kjartan Atli Kjartansson stýrði á síðasta tímabili körfuboltaliði Álftaness upp í efstu deild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Kjartan hefur undanfarin átta ár stýrt Körfuboltakvöldi, sjónvarpsþætti sem fjallar einmitt um efstu deild á Íslandi en stígur frá borði. Hann hefur komið víða við í fjölmiðlum, til mynda stýrt eigin útvarpsþætti, verið umsjónarmaður í Íslandi í dag og komið þáttagerð á Stöð2Sport. Hann hefur auk þess þjálfað yngri flokka í körfubolta frá 17 ára aldri, kennt í grunnskóla og skrifað skáldsögur og bækur um körfubolta.

Kjartan Atli er viðmælandi Íþróttavarpsins í þessari viku þar sem hann ræðir meðal annars fjölmiðlastarfið, þjálfarahlutverkið og knattspyrnuferilinn.

Umsjón: Almarr Ormarsson

Frumflutt

23. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Íþróttavarp RÚV

Íþróttavarp RÚV

Hlaðvarpsþættir um íþróttir.

Þættir

,