Endastöðin

Nýjar sýningar í Listasafninu á Akureyri, gildi listkennslu og sjónvarpsserían Hildur

Gestir Gígju Hólmgeirsdóttir í Endastöðinni eru Borghildur Ína Sölvadóttir brautarstjóri listnáms- og hönnunarbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri, Þórgunnur Oddsdóttir fjölmiðlakona og starfsmaður Menningarfélags Akureyrar og Bjarki Guðmundsson tónlistarkennari við Tónlistarskólann á Akureyri.

Í fyrri hluta þáttarins eru teknar fyrir tvær sýningar sem opnuðu nýlega í Listasafninu á Akureyri. Sýningin Aðflæði, sem er yfirlitssýning á 65 ára ferli Guðmundar Ármanns og svo sýning Bjarkar Viggósdóttur, Hreyfing fyrir sjón.

Í seinni hluta þáttarins er rætt um mikilvægi tónlistar- og listmenntunar, í kjölfar þeirrar umræðu sem spratt upp eftir Laufey Lín tók við sínum öðrum Grammy-verðlaunum, þar sem hún þakkaði tónlistar- og listkennurum sínum sérstaklega fyrir.

Auk þess er rætt stuttlega um fyrstu þættina í sjónvarpsseríunni Hildi.

Birt

6. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Endastöðin

Rætt um menningarvikuna sem er líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.

Þættir

,