Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 13. nóvember 2016: Þessi þáttur er helgaður heilbrigðismálum, við fáum innsýn í þann vanda sem erfiðar samgöngur valda heilbrigðisstéttum á Vestfjörðum, heyrum af flensusprautum á einkarekinni heilsugæslu og ræðum geðheilbrigðismál á Akureyrir og forvitnumst um lýðheilsuvísindi og fleira.
Innslög í þáttinn unnu þau Dagur Gunnarsson, Halla Ólafsdóttir, Þórgunnur Oddsdóttir og Sunna Valgerðardóttir.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Í þetta sinn varð fyrir valinu hljómplatan Legend með Bob Marley and the Wailers sem kom út árið 1984. Það er kannski smá svindl að velja safnplötu sem vínil vikunnar, en þetta er mest selda reggae plata allra tíma og mest selda plata Bob Marley og hún er á fjölda lista yfir bestu hljómplötur allra tíma.
A-hlið:
Is This Love
No Woman, No Cry
Could You be Loved
Three Little Birds
Buffalo Soldier
Get Up, Stand Up
Stir It Up
B-hlið:
One Love / People Get Ready
I Shot the Sheriff
Waiting in Vain
Redemption Song
Satisfy My Soul
Exodus
Jamming

frá Veðurstofu Íslands.
Í þáttaröðinni fjallar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður um fyrstu fótboltamennina frá gömlu Júgóslavíu sem komu til Íslands á árunum 1989-1992 til að spila fótbolta og settust svo hér að. Framleiðandi: Þorgerður E. Sigurðardóttir. Hljóðmynd: Jón Þór Helgason.
Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
Með góðri frammistöðu Júgóslavana sem komu fyrstir til að spila fótbolta á Íslandi litu íslensk félög sífellt meira til Balkanskagans í leit að styrkingu. Árið 1992 voru minnst 20 leikmenn frá gömlu Júgóslavíu sem spiluðu í efstu fjórum deildum Íslandsmótsins. Rætt er við Milan Stefán Jankovic, Hajrudin Cardaklija, Zoran Daniel Ljubicic, Ejub Purisevic, Hjörvar Hafliðason og Luka Lúkas Kostic .
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Í þættinum er fjallað er alþjóðamál. Árás Bandaríkjahers á Venesúela og afleiðingar og eftirmála hennar, mögulegt hernám Bandaríkjanna á Grænlandi, mótmælin í Íran og fleiri erlend fréttamál.
Gestir þáttarins í eru Helgi Hrafn Gunnarsson, tækniráðgjafi og fyrrverandi þingmaður, Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir sérfræðingur hjá Alþjóðamálastofnun og Bjarni Bragi Kjartansson Alþjóðstjórnmálafræðingur.
Umsjónarmaður: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Tónlist héðan og þaðan
Útvarpsfréttir.
Fjölmenni hefur safnast saman á ráðhústorginu í Kaupmannahöfn og víðar í Danmörku til að mótmæla stefnu Bandaríkjaforseta um innlimun Grænlands. Grænlendingar hafa boðað til mótmælafunda í Nuuk síðar í dag.
Heilbrigðisráðherra segir ljóst að gera þurfi betur í geðheilbrigðisþjónustu við fanga. Fangar á Hverfisgötu hafa brátt aðgang að þjónustunni allan sólarhringinn.
Búist er við að brottvísanir Sýrlendinga frá Þýskalandi verði meðal helstu umræðuefna þegar forseti Sýrlands kemur opinbera heimsókn til Þýskalands á þriðjudag.
Ólöglegt niðurrif var stöðvað í Kópavogi í gær þegar til stóð að rífa gömlu bæjarskrifstofur bæjarins. Vinnuvélar voru byrjaðar að rífa niður húsið þegar framkvæmdin var stöðvuð.
Álagning olíufélaganna á eldsneytisverð er sögulega há, að sögn sviðsstjóra hagfræði- og greiningasviðs ASÍ. Eldsneytisverð hefur lækkað í takt við væntingar eftir að kílómetragjaldið tók gildi.
Sex leikir fara fram á Evrópumóti karlalandsliða í handbolta í dag. Dagur Sigurðsson mætir til leiks á sínu þriðja stórmóti sem landsliðsþjálfari Króatíu
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Í framhaldsnámi sem einleikari á píanó áttaði Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir sig á því að hún væri ekki efni í píanóleikara, því hana langaði meira að semja tónlist frekar en að spila hana. Hún fór því í nám í tónsmíðum og hefur samið ýmiskonar verk síðan, til að mynda verk fyrir listhópinn Hlökk, sem hún er í, og sönglög við ljóð eftir nöfnu sína Ingibjörgu Haraldsdóttur í félagi við aðra nöfnu sína, Ingibjörgu Fríðu Helgadóttur.
Lagalisti
Konan í speglinum - Upphaf
Óútgefið - O
Óútgefið - að elska er að sökkva
Hulduhljóð - Hulduhvísl (huldufuglar)
Dúo Freyja - Undiralda
Konan í speglinum - Símtal
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Af hverju lesum við ekki um byltingar í íslenskri sögu? Þátturinn byggir að mestu leyti á viðtölum við tvo íslenska fræðimenn á skrifstofum þeirra í Árnagarði auk hugleiðinga höfundar um efnið.
Umsjón Þór Martinsson
Veturinn 2009-2010 fékk Ævar Kjartansson Pál Skúlason, heimspeking og fyrrverandi háskólarektor, til liðs við sig til þess að fjalla um grunnhugmyndir í okkar samtíma. Í fyrsta þættinum spjölluðu þeir um eðli hugmynda almennt en fengu síðan til sín fræðimenn á ýmsum sviðum til þess að ræða hugmyndina um þjóðina, ríkið, samfélagið, hamingjuna, frelsið svo eitthvað sé nefnt.
Gestur Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti. Þau ræða spurninguna hver erum við, hverjir eru þessir Íslendingar?
Umsjón: Ævar Kjartansson og Páll Skúlason
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Á dagskránni í dag: Íslensku bókahönnunarverðlaunin voru afhent í fyrsta sinn, vísindaskáldskapur og innrás utan úr geimnum í Guðir og og annað fólk eftir Steingrím Dúa og samtal þriggja kynslóða og áhugi á sögum sinna nánustu í unglingabókinni Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur.
Viðmælendur: Anton Jónas Illugason, Kristján B. Jónasson, Steingrímur Dúi Másson og Brynhildur Þórarinsdóttir.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við saxófón- og klarinettuleikarann Sölva Kolbeinsson um nýja plötu hans með Hilmari Jenssyni og Magnúsi Trygvasyni Elíassen. Einnig er rætt um glímuna við tónlistina, götin í hlustuninni og margt fleira.

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Kvartett Francesco Cafiso flytur lögin My Old Flame, Imagination, Polka Dots and Moonbeams, Lullaby of Birdland, What's New og Speak Low. Kvintett Rene Thomas leikur lögin Ruby My Dear, Milestones, Like Someone In Love, M.T.C., Spontaneous Effort og Green Street Scene. Van Morrison ásamt Georgie Fame and Friends flytja lögin Heathrow Shuffle, Your Mind Is On Vacation, Who Can I Turn To, Sack o'woe, How Long Has This Been Going On, That's Life og Moondance.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Gjaldskylda fékk flest atkvæði í kosningu um orð ársins 2025. Það vakti athygli á nýliðnu ári þegar erlendir ferðamenn merktu myndir við þekkta ferðamannastaði með staðsetningunni Gjaldskylda. Draga mátti þá ályktun að þeir teldu að staðurinn héti það. Fjallað var um orðin tíu sem hægt var að kjósa um og rifjuð upp nokkur orð fyrri ára.
Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009
Fjallað um Guðrúnu Björnsdóttur frá Kornsá en hún var skólastjóri Barnaskólans á Siglufirði 1909-1918.
Lesið er úr bók Guðrúnar ,,Íslenskar kvenhetjur". Lesari með umsjónarmanni er Anna Helgadóttir.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson

frá Veðurstofu Íslands
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan á stefnumót við sænsku hljómsveitina Sven Ingvars í þættinum.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Í þættinum er fjallað er alþjóðamál. Árás Bandaríkjahers á Venesúela og afleiðingar og eftirmála hennar, mögulegt hernám Bandaríkjanna á Grænlandi, mótmælin í Íran og fleiri erlend fréttamál.
Gestir þáttarins í eru Helgi Hrafn Gunnarsson, tækniráðgjafi og fyrrverandi þingmaður, Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir sérfræðingur hjá Alþjóðamálastofnun og Bjarni Bragi Kjartansson Alþjóðstjórnmálafræðingur.
Umsjónarmaður: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Í þessum þætti lítur Felix til baka og skoðar skemmtilegar fimmur frá 2025. Þar má heyra raddir eins og Elizu Reid sem talar um lærdóminn í forsetatíð Guðna, Guðmund Pétursson tónlistarmann sem segir sögur sem tengjast athyglisverðum matarboðum á tónleikaferðum og Ólöfu Skaftadóttur sem fjallar um fimm atriði sem að hennar mati hafa alls ekki fengið nægilega andstöðu í íslensku samfélagi. En þetta eru bara þrjú dæmi af sjö. Aðrir viðmælendur eru Guðrún Kaldal, Fida Abu Libdeh, Sigsteinn Sigurbergsson og Guðmundur Þórarinsson.
Útvarpsfréttir.
Fjölmenni hefur safnast saman á ráðhústorginu í Kaupmannahöfn og víðar í Danmörku til að mótmæla stefnu Bandaríkjaforseta um innlimun Grænlands. Grænlendingar hafa boðað til mótmælafunda í Nuuk síðar í dag.
Heilbrigðisráðherra segir ljóst að gera þurfi betur í geðheilbrigðisþjónustu við fanga. Fangar á Hverfisgötu hafa brátt aðgang að þjónustunni allan sólarhringinn.
Búist er við að brottvísanir Sýrlendinga frá Þýskalandi verði meðal helstu umræðuefna þegar forseti Sýrlands kemur opinbera heimsókn til Þýskalands á þriðjudag.
Ólöglegt niðurrif var stöðvað í Kópavogi í gær þegar til stóð að rífa gömlu bæjarskrifstofur bæjarins. Vinnuvélar voru byrjaðar að rífa niður húsið þegar framkvæmdin var stöðvuð.
Álagning olíufélaganna á eldsneytisverð er sögulega há, að sögn sviðsstjóra hagfræði- og greiningasviðs ASÍ. Eldsneytisverð hefur lækkað í takt við væntingar eftir að kílómetragjaldið tók gildi.
Sex leikir fara fram á Evrópumóti karlalandsliða í handbolta í dag. Dagur Sigurðsson mætir til leiks á sínu þriðja stórmóti sem landsliðsþjálfari Króatíu
Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.
Helgarútgáfan heilsaði að venju eftir hádegisfréttir á Rás 2 þennan laugardaginn. Meðmælasúpan góða var á sínum stað og gestir þáttarins svo sannarlega ekki af verri endanum ... það eru það nú fæstir. Tinna Hrafnsdóttir leikstjóri og Sveinn Geirsson leikari og tónskáld eru hjón en einnig öflugir samstarfsfélagar í kvikmyndalistinni. Síðustu misserin hafa þau staðið að undirbúningi glænýrrar sjónvarpsþáttaseríu er kallast Hildur og eru byggðir á
spennusögu finnska höfundarins Satu Rämö, sem búsett hefur verið á Ísafirði um hríð.
Tinna leikstýrir þáttunum og Sveinn eða Dói eins og hann er iðulega kallaður sér um tónlistina.
Við fengum að forvitnast um þættina og heyra af tökuferlinu, tónlistinni og þeirra verkefnum en fengum einnig góða súpu af húrrandi góðum meðmælum. Bækur, tónlist, hlaðvörp, sjónvarp og margt fleira.
Tónlistin var með skársta móti en með dyggri aðstoð hlustenda var eitís-tónlistin í forgrunni þennan laugardag, í bland við það ferskasta. Sjá lagalistann hér:
SILVÍA NÓTT - Til hamingju Ísland
BOGOMIL FONT, GREINGARDEILDIN - Bíttu í það súra
BONE SYMPHONY - It's a jungle out there
SVAVAR KNÚTUR - Janúar
THE CURE - Just Like Heaven
ADDISON RAE - Headphones On
BUBBI MORTHENS - Fallegur dagur
SVERRIR STORMSKER OG BUBBI MORTHENS - Þórður
NAKED EYES - Always Something There To Remind Me
JÓN JÓNSSON, SILVÍA NÓTT - Einhver þarf að segja það
ROSALÍA - Memória
PRINCE - Sign 'O' the times
A-HA - Take On Me
SIMPLE MINDS - Don't You (Forget About Me)
HELGAR - Absurd
DURAN DURAN - The Chauffeur
THE LA'S - There She Goes
ELVAR - Miklu betri einn
GEIRI SÆM OG HUNANGSTUNGLIÐ - Er ást í tunglinu
OMD - Enola Gay
GEESE - Cobra
TRACY CHAPMAN - Fast Car
THE CRANBERRIES - Linger
CYNDI LAUPER - Girls Just Want To Have Fun
WHITESNAKE - Here I go again
BRONSKI BEAT - Smalltown boy
DIGITAL ÍSLAND - Eh plan?
PHIL OAKEY,GIORGIO MORODER - Together In Electric Dreams
CHINA CRISIS - Wishful Thinking
FLEETWOOD MAC - Don't Stop

Útvarpsfréttir.
Rapparinn og plötusnúðurinn Ragga Holm á Rás 2 alla laugardaga með tónlistarþáttinn Smell. Frábær upphitun fyrir kvöldið!
Smellur dagsins fór um víðan völl. Ragga fór yfir stórafmæli laganna, þrjú lög sem verða 30 ára 2026. tíminn flýgur svo sannarlega!
Lagalisti:
Sálin Hans Jóns Míns - Krókurinn
Laufey - Mr. Eclectic
Robyn - Dopamine
Chris Rea - The Road To Hell
The White Stripes - My Doorbell
Billie Eilish - Bury A Friend
Syster - Furðuverur
Role Model - Sally, When The Wine Runs Out
Brandi Carlile - Returning To Myself
MGMT - Electric Feel
Ed Sheeran - Azizam
The Knife - Heartbeats
Abba - Honey, Honey
R.E.M. - Losing My Religion
Sálin Hans Jóns Míns - Original
Huntrx - Golden
Fugees - Killing Me Softly With His Song
The Cardigans - Lovefool
Spice Girls - Wannabe
No Doubt - Don't Speak
Úlfur Úlfur - Sumarið
Sienna Spiro - Die On This Hill
Genesis - Invisible Touch
Al Green & Annie Lennox - Put A Little Love In Your Heart
Todmobile - Tryllt
The Fray - How To Save A Life
Wolfmother - Joker And The Thief
Una Torfa - Það Sýnir Sig

Fréttastofa RÚV.
Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Hann heitir Garðar Eyfjörð, kallaður Gæi en oft þekktur undir nafninu Kilo. Við komumst að öllum sannleikanum um þennan stóra karakter í gegnum lögin sem hafa fylgt honum í gegnum ævina, sem kemur við á alls kyns stöðum og heimum.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
Byrjaði rólega, svo aðeins rokkað inn á milli, allt samt í lága drifinu og í mikilli afslöppun.
Lagalisti:
Bylur - Rugl
Kevin Ayers - Song for insane times
Jón Hallur Stefánsson - Ég vil ekki gleyma neinu
Crosby, Stills, Nash & Young - Carry On
Billy Joel - Streetlife Serenade
Ram Jam Black Betty
Weekendson - The Respect
Skálmöld - Gangári
Bubbi Morthens - Blindsker
Sudden Weather Change - Pray mode
Móeiður Júníusdóttir- The end of the tunnels
Kolrassa krókríðandi - Kona
Ingvar Valgeirsson - Varúlfur
Bjartmar Guðlaugsson - Stúdentshúfan
Pálmi Gunnarsson - Þorparinn
Mannakorn - Einhversstaðar einhverntíma aftur
Mike Oldfield, Maggie Reilly - Moonlight shadow
Suzi Quatro - Can the can
ABBA - Gimme Gimme Gimme
Walk The Moon - Shut up and dance
Dimma - Sólmyrkvi
PKPM - Lengi lifi djammið
Muse - Uprising
James - She's A Star
Nýríki Nonni - Vefarinn mikli
Skriðjöklar - Tengja
James - Say something
Ljósin í bænum - Njóttu
Cat Stevens - Into white
Svavar Knútur Kristinsson - Janúar
Ásgeir Aðalsteinsson, Valdimar - Karlsvagninn
Bubbi Morthens - Ástrós (feat. BRÍET)
Magnús Eiríksson, Kristján Kristjánsson Tónlistarm., Þorleifur Guðjónsson - Bein leið
Possibillies - Móðurást
Rolling Stones - Waiting on a friend