18:00
Kvöldfréttir útvarps
Geta mögulega komist burt í lok vikunnar

Fréttir

Fréttir

Íslendingar sem eru strandaglópar í Mið-Austurlöndum vegna stríðsins þar gætu átt möguleika á að komast frá átakasvæðum með björgunarflugum á fimmtudag og föstudag.

Norðmenn segjast vilja ræða um fælingaráætlun Frakka með kjarnavopnum, rétt eins og Danir og Svíar gerðu í gær - og útiloka ekki að slík vopn verði til staðar í Noregi á tímum ófriðar.

Heilbrigðisráðherra segir að alltaf hafi verið rukkað fyrir læknisviðtal vegna viðhaldsmeðferða við ópíóíðafíkn. Sett verði í skoðun að gera meðferðina gjaldfrjálsa í upphafi hennar.

Hópur á vegum stjórnvalda vinnur við að kortleggja hversu margir leggi leið sína til Vestfjarða og á Snæfellsnes til að berja sólmyrkvann augum í ágúst. Skipuleggja þarf umferðarstýringu, neyðarviðbragð og möguleg takmörk á aðgengi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,